Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2011, Page 41
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 87. árg. 2011 37
í sumum tilfellum eru lagðir til fleiri en
einn stuðningsfulltrúi út af sömu beiðni
– einn sem er með svipaðan bakgrunn
á einu sviði og annar stuðningsfulltrúi
með svipaðan bakgrunn á öðru sviði.
Allt er gert til að uppfylla þarfir þeirra
sem óska eftir stuðningi. Miðað er við
að stuðningsfulltrúi sé búinn að hafa
samband við þann sem óskar eftir
stuðningnum innan sólarhrings.
Um hvað er rætt?
Á skráningarblöðunum má sjá að rætt
er um allt það sem kemur fram í töflu 2
en þó mest um greininguna, meðferðina,
tilfinningar, samskipti við aðra, fjármál og
batahorfur. Einnig er rætt um dauðann
en stuðningsfulltrúar hafa óskað eftir
viðbótarfræðslu um það efni.
Af hverju jafningjastuðningur?
Í íslenskri rannsókn á jafningjastuðningi
frá 2008 nýttu einungis um 3% þeirra
(Usher o.fl., 2006; Weber o.fl., 2005;
Weber o.fl., 2007). Jafningjastuðningur
kemur ekki í stað stuðnings fagfólks en
virðist bæta við hann. Þeim sem þiggja
stuðninginn finnst ómetanlegt að bera
sig saman við aðra manneskju sem hefur
sigrast á sjúkdómnum. Þannig kemur í
ljós að báðir aðilar hafa upplifað svipaðar
tilfinningar, jafnvel brugðist við á sama
hátt og staðið frammi fyrir svipuðum
aðstæðum og spurningum.
Dæmisaga
Ung kona, sem nýlega hafði greinst
með krabbamein, hafði samband við
ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins
og ræddi þar við Ragnheiði Alfreðsdóttur,
hjúkrunarfræðing og forstöðumann
þjónustunnar. Meðal annars sem farið
var yfir í samtali þeirra var að konan gæti
óskað eftir stuðningi frá stuðningsneti
Krafts. Konan ætti að byrja í lyfjameðferð
daginn eftir og óskaði eftir að fá að
tala við einhvern sem hafði fengið sama
krabbamein. Einmitt þá var einungis hægt
að útvega karlkyns stuðningsfulltrúa sem
hafði átt í sömu veikindum og ræddu þau
saman um klukkustund eftir að beiðnin
barst Gyðu. Þremur vikum síðar óskaði
hún eftir því að fá að ræða við konu
sem hefði átt við sama krabbamein að
stríða og var þá hægt að verða við
þeirri bón. Stuðningsfulltrúinn kom í
heimsókn til hennar og hafði konan þetta
um heimsóknina að segja: „Hún kom
inn, brosandi og falleg. Með sítt hár og
aðlaðandi. Ég fór að gráta því léttirinn var
svo mikill. Hún leit eðlilega út og leit út
fyrir að vera hamingjusöm. Hún sýndi mér
örið sitt. Ég fékk trú á að ég gæti komist
í gegnum þetta og það yrði allt í lagi með
mig. Þetta var svona hallelújamóment.“
sem greinast með krabbamein slíkan
stuðning (Gunnjóna Una Guðmundsdóttir
og Ragnheiður Alfreðsdóttir, 2008) og
af þeim óskuðu 89% eftir að fá að
hitta sjálfboðaliðann aftur. Í rannsókn
Gunnjónu Unu frá 2006 (sjá í fyrrnefndri
rannsókn) kom fram að tæp 40%
sjúklinga á krabbameinsdeild LSH töldu
að það væri hjálplegt að tala við jafningja.
Það er óljóst hvers vegna svo lítill hluti
þeirra sem telur að jafningjastuðningur
geti verið hjálplegur, sækir sér slíkan
stuðning. Ef til vill vita sjúklingar ekki
hvert er hægt að leita.
Erlendar rannsóknir sýna að jafn
ingjastuðningur minnkar þunglyndi, eykur
stjórn, flýtir fyrir aðlögun að krabba
meinsferlinu, eykur trú einstaklingsins á
því að hann geti tekist á við krabbameinið,
minnkar álag á aðstandendur og þeim
krabba meinsgreinda finnst hann tilheyra
hópi annarra krabbameinsgreindra. Að
auki virðist stuðningurinn geta lengt
þann tíma sem sjúklingur á eftir ólifaðan
VIÐ
ERUM TIL
STAÐAR
FYRIR
ÞIG
Stuðningsfélag fyrir fólk
á aldrinum 18 – 40 ára sem
greinst hefur með krabbamein
og aðstandendur þeirra
Stuðningsnet Krafts Sími: 470 2700
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
www.kraftur.org
kraftur@kraftur.org
470 2700
KRAFTUR.ORG
w w w . k r a f t u r. o r g
Nokkrir stuðningsfulltrúar Krafts.
Þeir lesendur Tímarits hjúkrunar fræð inga, sem eiga snjallsíma, geta nú náð í slóð
að rafrænni útgáfu tímaritsins hér í blaðinu. Þá er hægt að lesa allar greinar í
Tímariti hjúkrunarfræðinga beint í símanum.
Tekin er mynd með myndavél símans af merkinu hér til hliðar. Síminn les svo
myndina og býr til netslóð að efnisyfirliti þar sem finna má öll tölublöð frá 2003.
Þetta er gert á mismunandi hátt eftir gerð símans en að jafnaði þarf fyrst að sækja
forrit sem getur lesið svokölluð tvívídda QR-strikamerki.
Tímarit hjúkrunarfræðinga í snjallsíma