Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2011, Blaðsíða 42
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 87. árg. 201138
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Viltu komast í kynni við Mosa?
Hafðu samband við þjónustuver MP banka í síma
540 3200, með tölvupósti á thjonusta@mp.is eða komdu
við í útibúum okkar í Ármúla 13a eða Borgartúni 26.
Skemmtileg saga um ævintýri Mosa eftir Úlf Eldjárn fylgir
með, en einnig er hægt að hlusta á hana í flutningi Arnar
Árnasonar á sérstakri heimasíðu Mosa, www.mp.is/mosi
.
Hann er af sjaldgæfri dýrategund sem kallast mosalingar. Þeir una sér best í mjúkum skógarbotni.
Honum finnst best að borða hnetur og lítil bleik ber. Þessi fallegi baukur er hannaður af íslenska
hönnunarfyrirtækinu Tulipop fyrir MP banka og hjálpar krökkum sem eru 12 ára og yngri að spara.
Mosi hjálpar krökkunum að safna á skemmtilegan hátt
Fram undan hjá stuðningsnetinu
Í febrúar síðastliðnum var farið af stað
við gerð auglýsingaefnis fyrir stuðnings
netið. Auglýsingastofan Expó gaf
vinnu sína og voru teknar myndir af
stuðningsfulltrúum fyrir veggspjöld
og eins komu stuðningsfulltrúar í
myndbandsupptökur þar sem þeir
ræddu ýmis atriði tengd eigin reynslu af
krabbameini. Myndböndin munu verða
til sýnis á vefsíðu Krafts og á vefsíðum
Youtube. Stefnt er að því að kynna
stuðningsnetið betur inni á sjúkrahúsum
en fram að þessu hafa einungis tvær
kynningar átt sér stað, önnur á LSH,
deild 11B, og hin á FSA. Báðum var
vel tekið og fékk stuðningsnetið hrós
fyrir faglegt utanumhald, þjálfun og
handleiðslu stuðningsfulltrúa.
Þeir sem eiga hlut að stuðningsnetinu
vonast til að fagaðilar í heilbrigðisgeiranum
verði meðvitaðri um stuðningsnetið og séu
Heimildir
Gunnjóna Una Guðmundsdóttir og Ragnheiður
Alfreðsdóttir (2008). Rannsókn á jafningja
fræðslu stuðningshópa KÍ. Ráðgjafarþjónusta
Krabbameinsfélags Íslands. Skógarhlíð 8, 105
Reykjavík.
Pistrang, N., Solomons, W., og Barker, C. (1999).
Peer support for women with breast cancer:
The role of empathy and selfdisclosure.
Journal of Community and Applied Social
Psychology, 9, 217229.
Usher, J., Kirsten, L., Butow, P., og Sandoval, M.
(2006). What do cancer support groups pro
vide which other supportive relationships do
not? The experience of peer support groups
for people with cancer. Social Science &
Medicine, 62 (10), 25652576.
Weber, B.A., Roberts, B., Yarandi, H., Mills, T.L.,
Chumbler, N.R., og Algood, C. (2005). Dyadic
support and quality of life after radical prosta
tectomy. Journal of Men’s Health and Gender,
4 (2), 156164.
Weber, B.A., Yarandi, H., Mills, T.L., Chumbler, N.R.,
og Wajsman, Z. (2007). The impact of dyadic
social support for men with prostate cancer.
Journal of Aging and Health, 19 (4), 630645.
tilbúnir að benda öðrum á möguleikann á
stuðningi. Stuðningsnetinu er ekki ætlað
að fara inn á svið fagstétta heldur styðja
krabbameinsgreinda og aðstandendur
á þann hátt sem einungis jafningi
getur gert; það er einstaklingur sem
hefur staðið í sömu sporum og getur
miðlað reynslu sinni á viðeigandi hátt,
sýnt skilning og verið til staðar með
virkri hlustun. Þess má geta varðandi
dæmisöguna hér á undan að allir sem
sinntu stuðningnum, Ragnheiður sem lét
vita af netinu, unga konan sem óskaði
eftir og þáði stuðninginn, Gyða sem
kallaði til viðeigandi stuðningsfulltrúa, og
stuðningsfulltrúarnir báðir brostu af gleði
og stolti þegar beiðnin var rædd þeirra
á milli. Það gleður hjartað að geta leitt
saman aðila þar sem annar gefur hinum
það sem skiptir svo miklu máli þegar
krabbamein er annars vegar – von.
Gyða Eyjólfsdóttir er doktor í ráðgjafarsálfræði
og starfar sem sálfræðingur hjá Sálarafli.