Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2011, Page 52
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 87. árg. 201148
Aðalbjörg Finnbogadóttir, adalbjorg@hjukrun.is
AÐALFUNDUR 2011
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn 19. maí
næstkomandi. Aðalfundur er haldinn árlega og fer hann með æðsta vald í
málefnum félagsins. Á aðalfundinum verður meðal annars lögð fram endurgerð
stefna félagsins í hjúkrunar og heilbrigðismálum til ársins 2020.
Aðalfundurinn verður haldinn á Grand
hóteli í Reykjavík fimmtudaginn 19. maí
og hefst hann kl. 9:00. Á fundinum verða
venjuleg aðalfundarstörf. Kynnt verður
skýrsla stjórnar frá liðnu starfsári, reikningar
félagsins lagðir fram og ákvörðun
tekin um félagsgjöld. Starfsáætlun og
fjárhagsáætlun næsta starfsárs verða
afgreiddar, tillögur um lagabreytingar
hjúkrunar og heilbrigðismálum til ársins
2020. Hópur hjúkrunarfæðinga undir
stjórn Vigdísar Hallgrímsdóttur, hjúkrunar
fræðings og verkefnastjóra, hefur unnið
að endurgerð stefnunnar undan farin
misseri. Margir félagsmenn hafa tekið
þátt í verkinu bæði sem þátttakendur í
fjölmörgum rýnihópum og á hjúkrunarþingi
félagsins síðastliðið haust.
Hjúkrunarþingið var helgað stefnu
félagsins. Á þinginu unnu yfir 50
hjúkrunarfræðingar í 6 hópum í hálfan
dag við að fara yfir þau drög sem þá
lágu fyrir. Hverjum hóp var falið að fjalla
um einn þátt eða kafla í stefnu félagsins
og koma með innlegg og athugasemdir
eftir því sem þurfa þótti. Í lok þingsins
skiluðu hóparnir niðurstöðum sínum
til stefnumótunarnefndarinnar sem
vann úr þeim. Lokaskrefið er síðan
að leggja stefnu FÍH í hjúkrunar og
heilbrigðismálum fyrir aðalfund félagsins
til samþykktar eða synjunar.
Félagið hefur markað stefnu varðandi
hjúkrunarþjónustu og lýðheilsu; leiðtoga
hlut verk ábyrgð og forræði; öryggi, gæði
og starfsþróun; menntun, þekkingu og
þróun hjúkrunar og upplýsingatækni. Auk
þess setti stjórn FÍH fram áhersluatriði
lagðar fram og kosnir fulltrúar svæðisdeilda
í stjórn félagsins auk annarra mála. Öll
gögn varðandi aðalfundinn verða sett á
vefsvæði félagsins þar sem þau verða
aðgengileg félagsmönnum og eru þeir
hvattir til að kynna sér þau vel fyrir fundinn.
Eitt af meginmálum fundarins er stefna
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í
Frá aðalfundinum 2010.
Tillögur til lagabreytinga skulu berast stjórn FÍH fyrir .......................................................................... 20. apríl
Málefni, sem óskast tekin fyrir á fundinum, skulu berast stjórn fyrir .................................................... 20. apríl
Félagsmenn skulu hafa fengið skriflegt fundarboð á aðalfundinn fyrir ................................................. 5. maí
Fundargögn aðalfundar skulu komin á vefsvæði félagsins fyrir ........................................................... 11. maí
Síðasti dagur skráningar félagsmanna á aðalfundinn er ...................................................................... 11. maí
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn .......................................................... 19. maí
Mikilvægar dagsetningar fyrir aðalfund 2010