Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Blaðsíða 17

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Blaðsíða 17
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 86. árg. 2010 13 www.linde­healthcare.is fyrir dag­ og göngudeildir (interRAI Community Mental Health, CMH) og fyrir réttargeðþjónustu. Megináhersla með notkun allra interRAI kerfa er að stefna að auknum lífsgæðum í heilbrigðis­ og félagsþjónustu aldraðra, langveikra og fatlaðra einstaklinga. Heildræn mynd af ástandi Rakel segir að niðurstöður úr heildrænu geðheilbrigðismati gefi heildræna mynd af ástandi, þjónustu og þjónustuþörf. Í matskerfinu eru yfir 800 breytur og að auki val fyrir sjúkdómsgreiningar og lyf. Mikilvægt er þó að nota ekki einungis niðurstöður úr matstækjunum einar og sér heldur er það góð viðbót við aðrar upplýsingar sem liggja fyrir ásamt þekkingu fagfólks sem sinnir viðkomandi einstaklingi. Upplýsingar úr kerfunum gefa einnig stjórnendum tækifæri til að skoða stöðu hverrar deildar, bera saman mismunandi þjónustuþörf og þörf um samsetningu á þekkingu og mönnun mismunandi eininga. Einnig gefst tækifæri til að skoða hvers konar úrræði hentar best fyrir hvern einstakling. Þegar einstaklingur er lagður inn er hann skráður í matskerfið en þess ber að geta að hér er um að ræða aðgangsstýrt kerfi sem aðeins meðferðaraðilar einstaklinga hafa aðgang að. Fimm fagaðilar, þ.e. læknir, hjúkrunarfræðingur, sálfræðingur, félagsráðgjafi og iðjuþjálfi sem veita einstaklingi meðferð, skrá í matskerfið. Samvinna er við annað starfsfólk en ábyrgðin liggur hjá áðurnefndum fagaðilum. Gert er ráð fyrir að hvert mat taki ekki lengri tíma en þrjá sólarhringa og koma niðurstöður úr kerfinu strax og mat hefur verið staðfest. Vísindaleg nálgun „Með notkun InterRAI matskerfa hefur skapast vísindaleg nálgun upplýsinga­ öflunar sem styður við nútímaaðferðafræði. Hér kemur að fjölfaglegur hópur þekkingar starfsfólks sem vinnur með sjúklingi og fjölskyldu hans að því að ná sem heild rænastri mynd af ástandinu á hverjum tíma. Þegar einstaklingur er þátttakandi í mati þá gerist hann meira meðvitaður um eigin meðferð. Með því skapast oft sameiginlegt átaksverkefni milli þess sem meðferðina fær og fagfólks og er það gífurlega mikilvægt til að ná sem bestum árangri. Meðferðaráætlanir og markmiðasetningar hafa þá fengið sterkari stoð til árangurs.“ Rakel sér fyrir að í framtíðinni verði hægt að forgangsraða í meðferðarúrræði þar sem byggt er m.a. á niðurstöðum úr InterRAI matstækjunum. InterRAI tækin gefa kost á að tengjast saman þannig að heildræn sýn upplýsinga skapast og gefur það möguleika á nákvæmari og betri eftirfylgd og stuðningi. Enn fremur eru aðrir möguleikar svo sem samanburður á milli landa, fjölþjóða verkefnavinna fagaðila, auknar forsendur til námstækifæra og rannsókna. Bornar saman meðferðarleiðir Rakel kveðst mjög ánægð með þann árangur sem innleiðing kerfisins hefur skilað á geðsviði. Hún segir að yfirstjórn geðsviðs og Landspítala og starfsfólk, sem hefur unnið með kerfið, hafi sýnt mikinn áhuga. Hún hrósar starfsfólkinu á geðsviði sem hefur verið ósérhlífið við að vinna að þróun þessa verkefnis og sýnt mikinn áhuga á að læra vel að meta í kerfinu og vinna úr niðurstöðum með það fyrir augum að bæta þjónustu við þá einstaklinga sem það sinnir. Á geðsviði Landspítala starfar stýrinefnd interRAI sem hefur umsjón með þróun og fræðslu og vinnur í samvinnu við fram­ kvæmdastjóra geðsviðs, Pál Matthías son. Með stýrinefndinni starfa leið beinendur deilda og faghópa en þeir veita stuðning og ráðgjöf við verkefnið á vettvangi. Einnig er starfandi interRAI samstarfshópur sem samanstendur af fulltrúum frá geðsviði, öldrunarþjónustu á lyflækningasviði og heilbrigðis­ og upplýsingatæknideild Land spítala ásamt fulltrúa frá Háskóla Íslands og vinnur sá hópur í nánu samstarfi með fulltrúa heil brigðisráðuneytisins. Náin samvinna er við hugbúnaðarfyrirtækið Stika og fleiri aðila. „Sá árangur, sem matið skilar, er meðal annars heildræn mynd á meðferð fólks. Þegar við höfum notað þessa matsaðferð í einhvern tíma munum við geta borið saman mismunandi meðferðarleiðir milli líkra sjúklingahópa og væntanlega séð hvar má betur gera.“ Mannlegi þátturinn ekki út undan Rakel telur af og frá að notkun rafræns matkerfis leiði til þess að hinn mannlegi þáttur þjónustunnar verði út undan þó svo að það verði einn af leiðandi þáttunum í upplýsingaöflun og meðferðaráætlunum. „Áður voru tiltölulega fáir fagaðilar sem mátu almennt ástand hvers sjúklings en nú koma fleiri að málum, fagfólkið sem er að sinna mismunandi meðferðarformum. Þetta gefur tækifæri til að vinna meira með sjúklingnum sjálfum og fjölskyldu hans og einnig hjálpast starfsfólkið við að meta og ræða málin á teymisfundum með það fyrir augum að finna bestu úrlausnirnar. Mælitækin eru vísindaleg nálgun sem byggist á útreikningum og fræðum geðheilbrigðisfræða og sem hafa verið unnin af stórum hópi fræðimanna og rannsakenda um heiminn,“ segir Rakel Valdimarsdóttir að síðustu. Ísaga lógó
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.