Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Blaðsíða 33
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 86. árg. 2010 29
Åsa Moberg rithöfundur kom frá Svíþjóð til þess
að halda erindi um Florence Nightingale.
um konuna með lampann. Hún lagði
áherslu á að kynna baráttukonuna Florence
Nightingale, sem með ótrúlegri seiglu og
baráttu náði að hrinda úr vegi nánast
óyfirstíganlegum hindrunum sem á vegi
hennar urðu til að verða hjúkrunarfræðingur
og gera hjúkrun að viðurkenndri starfsgrein
sem krafðist fullgildrar menntunar.
Åsa heillaði áheyrendur með frásögn
sinni af baráttu og vísindakonunni
Nightingale sem hafði brennandi áhuga
á hagfræði, tölfræði, stjórnun, kvenfrelsi,
guðfræði og heimspeki og var virkur
þátttakandi í samfélagsumræðunni á
sinni tíð. Åsa sagði frá því hvernig sýn
hennar breyttist eftir því sem hún kynntist
þessari stórbrotnu manneskju sem þrátt
fyrir veikindi stærstan hluta ævi sinnar lét
ekki deigan síga heldur vann frá morgni til
kvölds og skildi eftir sig 16 500 blaðsíðna
bindi um hjúkrun og ýmis önnur málefni
sem henni voru hugstæð. Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga vinnur nú að því að
fá hingað til lands ritsafn Nightingale og
vonandi verður þess ekki langt að bíða
að öll 16 bindin verði til hér á landi.
Að venju lagði Alþjóðaráð hjúkrunar
fræðinga (ICN) fram þema fyrir 12. maí
2010. Í ár vildi ICN leggja áherslu á gæði
hjúkrunarþjónustu og mikilvægi þess að
hjúkrunarfræðingar taki að sér aukið hlut
verk og stýringu á þjónustu við langveika.
Svæðisdeild höfuðborgarsvæðisins og
fræðslunefnd hjúkrunarráðs LSH stóðu
saman fyrir viku hjúkrunar á LSH eins og
kemur fram í annarri grein hér í blaðinu.
Fr
ét
ta
pu
nk
tu
r
Stofnaður hefur verið Minningarsjóður
Margrétar Oddsdóttur skurðlæknis. Margir
hjúkrunarfræðingar þekktu Margréti en hún
lést í janúar 2009.
Sjóðnum er ætlað að styrkja skurðlækningar
við brjóstakrabbameini við Landspítala. Að
undirbúningi til stofnunar sjóðsins standa
fulltrúar lækna og hjúkrunarfræðinga sem
annast skurðmeðferð brjóstakrabbameins,
fulltrúar góðgerðarfélagsins Bætum
einstök brjóst og ættingjar Margrétar.
Fyrir liggur stofnframlag ofangreindra aðila. Fjárvarsla verður hjá
Landspítala.
Lífslíkur kvenna með brjóstakrabbamein hafa batnað mikið síðastliðna
áratugi. Vegna þess hve lífslíkur eru góðar er vaxandi áhersla
skurðmeðferðar lögð á lífsgæði krabbameinsgreindra kvenna, meðal
annars með endursköpunaraðgerðum á brjóstum á sérhæfðum
brjóstamiðstöðvum. Skurðmeðferð hefur því orðið umfangsmeiri þar
sem oft fer saman aðgerð til lækningar á krabbameini og aðgerð
til að leiðrétta það lýti sem krabbameinsaðgerðin veldur. Ör þróun
innan þessa sviðs kallar á meiri og betri aðstöðu fyrir bæði sjúklinga
og meðferðaraðila. Hlutverk Minningarsjóðs Margrétar Oddsdóttur er
að styðja og styrkja þessa starfsemi.
Áhugasamir geta heiðrað minningu Margétar með stofnframlagi til
sjóðsins. Kennitala sjóðsins er 7004101610 og reikningsnúmer
013015381828. Bent er á vefsíðuna brjost.is þar sem meðal annars
má finna skipulagsskrá sjóðsins.
Fyrir undirbúningshópi Minningarsjóðs Margrétar Oddsdóttur fer
Þorvaldur Jónsson skurðlæknir og veitir hann frekari upplýsingar sé þess
óskað. Í hópnum er einnig Jarþrúður Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Minningarsjóður
Margrétar Oddsdóttur