Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Blaðsíða 34
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 86. árg. 201030
Steinunn útskrifaðist úr Hjúkrunarskóla
Íslands 1975 og hefur síðan unnið
víða. Fljótlega eftir útskrift gerðist hún
deildarstjóri á æðaskurðdeild LSP og
vann þar í nokkur ár.
Hún hefur einnig unnið úti á landi og á
hjartadeild. Um tíma bjó hún í Noregi
og lærði þar heilsugæsluhjúkrun.
Eftir heimkomu réð hún sig á
heilsugæslustöðina á Selfossi en fluttist
1991 í Lágmúla þar sem hún vinnur enn.
Hún hefur einnig tekið vaktir á læknavakt
og leyst af í Noregi. Þá tók hún sér
tíma, eins og margir hjúkrunarfræðingar,
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is
SKEMMTILEG ÚTIVERA OG
FÉLAGSSKAPUR
Æ fleiri hjúkrunarfræðingar hafa á undanförnum árum byrjað að spila golf. Þetta
hefur gerst samfara aukinni þátttöku kvenna í golfi. En hvað er það sem er svo
heillandi við golf? Steinunn Kristinsdóttir er einn þeirra hjúkrunarfræðinga sem
stundar golf og segir hún hér sína sögu.
að fara í sérskipulagða BSnámið og
brautskráðist úr því 1994.
Steinunn byrjaði að spila golf þegar
hún bjó á Selfossi. Hún vissi ekkert um
golf þegar hún fór í 10 tíma golfkennslu
eitt rigningasumar en heillaðist og
keypti þá golfstígvél sem hún hefur ekki
notað síðan. Öll fjölskyldan spilar golf.
Sonur hennar fékk mikinn áhuga, bjó
á golfvellinum þegar hann var táningur
og fór svo að keppa í golfi. Á þeim tíma
fór Steinunn að taka þátt í kvennastarfi
Golfklúbbs Reykjavíkur en það var mjög
öflugt. „Þetta var góð leið til að kynnast
fólki í klúbbnum,“ segir Steinunn. „Nú
eru margar konur í golfi en þá vorum við
talsvert færri og gott fyrir konurnar að
hafa þennan vettvang.“
Flestir sem spila ekki golf hafa heyrt talað
um forgjöf en það er ein helsta leiðin til
þess að meta hæfni golfmannsins. Þessi
tala á að vera sem lægst og atvinnumenn
eru nálægt núll. „Ég hef nú 23 í forgjöf en
hef komist lægst í 19,“ segir Steinunn.
„Maður reynir alltaf að lækka forgjöfina
með því að æfa sig og spila og vonandi
stendur þetta til bóta. Sumir æfa sig
allt árið. Hægt er að fara í Bása og fleiri
staði og spila innanhús, fara á púttkvöld.
Svo fara margir til útlanda í golfferðir en
það er hægt að gera allt árið. Sjálf er ég
nýkomin heim úr golfferð. Þetta lengir
golfsumarið töluvert.“
Steinunn segir að golf sé góð leið til þess
að njóta íslenska sumarsins. Það sé
hægt að spila fram á nótt og til sé mikið
af góðum og skemmtilegum golfvöllum
um allt land. „Þegar við byrjuðum í
golfi fórum við mikið á 9 holu velli utan
við höfuðborgina. Þar er oftast ekki
eins margir að spila og hægt að ganga
hringinn hægar.“ Margir byrjendur segja
að þeim finnist erfitt að hugsa til þess
að vera fyrir þeim sem á eftir koma en
Steinunn segir að það lærist fljótt að
ganga hringinn rösklega og verður ekkert
vandamál.
Golf er oft sagt vera dýr íþrótt. Er hægt að
vera golfari á hjúkrunarlaunum? „Að vísu
kostar það að kaupa búnað og árgjaldið
er tiltölulega hátt. En þegar búið er að
borga árgjaldið í klúbbi er hver hringur