Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Blaðsíða 22
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 86. árg. 201018
Heilsufarssaga
Spyrja um:
1. Hjarta og æðasjúkdóma, sykursýki og
gigt
2. Lyfjanotkun, svo sem bólgueyðandi lyf
3. Fyrri sár
4. Reykingar
Klínískt mat og mælingar
1. Skoða fætur og fótleggi
2. Skoða sárið og meta ástand þess
3. Þreifa púlsa í a. dorsalis pedis og a.
posterior tibialis
4. Mæla ökklahandleggsþrýstingshlutfall
(ABPI) með hjálp Doppler til að meta
slagæðaflæði til fóta
5. Mæla blóðþrýsting
6. Mæla blóðsykur ef ekki er saga um
sykursýki
7. Ekki er mælt með rútínubundnum
sýkla ræktunum úr langvinnum sárum,
sýklaræktanir eru einungis teknar ef
klínísk merki eru um sýkingu
Meðferð
Þegar greining á orsök fótasárs er staðfest
beinist meðferðin að undirliggjandi orsök
auk þess að stuðla að sem hagstæðustu
aðstæðum í sárinu með staðbundinni
meðferð.
Meðferð bláæðasára snýst fyrst og fremst
um að losa og koma í veg fyrir bjúgsöfnun
í fótleggjum með þrýstingsumbúðum
en þær flýta sárgræðslu bláæðasára
(O´Meara, Cullum & Nelson, 2009).
Þrýstingsumbúðir eru lagðar með því
að vefja teygjubindum um fótlegg á
sérstakan hátt. Mælt er með því að
nota stuttstrekkjanleg bindi (teygjubindi
sem teygjast ekki meira en 90% af
lengd sinni). Áður en teygjubindin
eru lögð er bólstrað með gifsbómull.
Meðferð með þrýstingsumbúðum
krefst þess að slagæðaflæði sé óskert
(ABPI ≥ 0,8) og því þarf að mæla ökkla
handleggsþrýstingshlutfall áður en
meðferð hefst. Búið er um sárið með
rakadrægum umbúðum sem þó tryggja
rakan sárabeð og ekki festast ofan í
sárinu. Mælt er með því að skola sárið
volgu kranavatni við hver umbúðaskipti
og nota jafnvel milda fljótandi sápu á
fyrstu stigum sársins. Bláæðasár eru
yfirleitt mikið vessandi í upphafi meðferðar
og þarfnast umbúðaskipta í samræmi við
það. Þegar meðhöndlun á orsök vessans
hefur borið árangur er að jafnaði nóg að
skipta um umbúðir vikulega.
Meðferð slagæðasára. Ef grunur leikur á
skertu slagæðaflæði á að vísa sjúklingi
á sáramiðstöð eða til æðaskurðlæknis
til frekari greiningar með það í huga
að bæta blóðflæði með æðaaðgerð.
Þegar blóðflæði er skert eru skilyrði til
sáragræðslu skert. Sárameðferðin snýst
þá um að vernda sárið fyrir hvers kyns
hnjaski svo sem núningi eða þrýstingi.
Gæta þarf að því að búa um sárið þannig
að umbúðir þrengi ekki að eða festist
ofan í sárinu. Sárinu á að halda þurru til
að draga úr hættu á sýkingu, því má ekki
nota loftþéttar umbúðir. Ekki er heldur
mælt með þrýstingsumbúðum.
Meðferð sykursýkisára er flókin og krefst
aðkomu margra sérfræðigreina. Þeim ætti
alltaf að vísa á sáramiðstöð. Gera á
ráð fyrir að sjúklingur með sykursýkisár
sé með skert slagæðaflæði þar til búið
er að útiloka það með rannsóknum. Í
meðferð sykursýkisára er nauðsynlegt að
aflétta þrýstingi af sárinu með því að
leiðrétta skóbúnað. Sjúklingur getur þurft
meðferðarskó með sérsniðnu innleggi
eða sérsmíðaða skó. Einkennandi fyrir
sykursýkisár er þykkur siggkantur sem
veldur þrýstingi og hindrar blóðflæði að
sárinu. Einnig er hætta á að siggkanturinn
vaxi yfir op sársins með þeim afleiðingum
að graftarpollar myndast ofan í því. Til
að hindra að slíkt gerist þarf að fjarlægja
siggkantinn jafnt og þétt. Það er gert með
því að tálga siggið með skurðhníf. Alls
Tafla 3. Meðferð og ástand sára.
Meðferð Tíðni skiptinga Þrýstingsumbúðir
Sár með drepi Fjarlægja drep með hníf eða skærum.
Þvo með kranavatni og e.t.v. mildri sápu (ilmefnalausri og
pH 4,5 – 5,5).
Gel og/ eða lokaðar loftþéttar umbúðir ef mýkja á upp
dauða vefinn.
Skipta daglega eða annan
hvern dag til að byrja með.
Forðast þrýstingsumbúðir.
Sýkt sár Þvo með kranavatni og e.t.v. mildri sápu (ilmefnalausri og
pH 4,5 – 5,5).
Umbúðir með silfri.
Aðrar umbúðir sem hindra bakteríuvöxt.
Skipta daglega eða annan
hvern dag.
Mælt með
þrýstingsumbúðum ef þær
eiga við að öðru leyti.
Vessandi sár Þvo með kranavatni og e.t.v. mildri sápu (ilmefnalausri og
pH 4,5 – 5,5).
Nota vel vessadrægar umbúðir t.d. svampa, þörunga eða
trefjar.
Vernda heila húð með sinkáburði eða filmu (Cavilon).
Skipta eftir þörfum þar
til meðhöndlun á orsök
vessans hefur borið árangur.
Mælt með
þrýstingsumbúðum ef þær
eiga við að öðru leyti.
Granulerandi sár Þvo með kranavatni, sápa óþörf.
Halda sári röku með viðeigandi umbúðum, t.d. svömpum.
Íhuga húðflutning ef um stórt sár er að ræða.
Skipta vikulega eða eftir
þörfum.
Mælt með
þrýstingsumbúðum ef þær
eiga við að öðru leyti.
Heimild tafla 13: Sáramiðstöð Landspítala, leiðbeiningar um langvinn fótasár.