Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Page 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Page 25
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 86. árg. 2010 21 kunningjar til að leita ráða við ýmsum einkennum og kvillum. Ef við erum öll meðvituð um sérstöðu kvenna varðandi einkenni og líðan eigum við auðveldara með að beina þeim í átt að nánari greiningu og meðhöndlun. Úrtök í rannsóknum á einkennum og líðan sjúklinga með hjarta­ og æðasjúkdóma hafa hingað til verið að miklum meiri hluta karlar. Lyfjarannsakendur hafa einnig beint sjónum sínum að körlum og eru til dæmis færri lyf prófuð á konum með tilliti til aukaverkana. Það hefur þó sýnt sig að konur fá önnur einkenni, oft aukaverkanir og jafnvel aðrar en karlar og því er mikilvægt að þær séu þátttakendur í þessum rannsóknum. Átakið beinist einnig að konum þar sem þær hafa oft mikil áhrif á þá sem í kringum þær eru. Við erum börnunum okkar fyrirmynd um heilbrigðan lífsstíl, við nöldrum í makanum og sendum hann í eftirlit og uppvinnslu, við sinnum öldruðum foreldrum og við eigum líka oft stóra vinkvennahópa. Sem heilbrigðisstétt og að miklum meirihluta konur eru hæg heimatökin hjá okkur hjúkrunarfræðingum að hvetja aðrar konur og fólk almennt til að huga að heilsunni áður en hún brestur. Eins og máltækið segir: „Ef þú hugar ekki að heilsunni í dag gæti verið að þú hafir ekki heilsu til að huga að á morgun.“ Ég skora á Guðríði K. Þórðardóttur að skrifa næsta þankastrik. Fr ét ta pu nk tu r Veglegar peningagjafir færðar Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur Í vetur hafa Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur borist veglegar peningagjafir. Í janúar afhenti Jón Sigvaldason Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur gjafabréf að upphæð 100 þúsund krónur. Gjöfin er til minningar um eiginkonu hans, Mary Alberty Sigurjónsdóttur heilsuverndarhjúkrunarkonu. Á lokaverkefnisdegi hjúkrunarfræðideildar gaf 25 ára útskriftarárgangur Háskóla Íslands gjafabréf að upphæð 81 þúsund krónur. Markmið Rannsóknasjóðs Ingibjargar R. Magnúsdóttur er að efla rannsóknir í hjúkrunarfræði og ljósmóðurfræði. Styrkir eru veittir til hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi vegna rannsóknarverkefna sem falla að markmiðum sjóðsins. Fyrirhugað er að úthluta næst úr sjóðnum haustið 2010. Sjóðurinn tilheyrir styrktar­ sjóðum Háskóla Íslands og er einn af virkustu sjóðum hans. Sjóðurinn var stofnaður 29. júní 2007. Ingibjörg R. Magnúsdóttir er fyrrverandi námsbrautar­ stjóri í hjúkrunarfræði við Háskólann og fyrr­ verandi skrifstofustjóri í heilbrigðis­ og trygg inga­ málaráðuneytinu. Hún hefur verið einn ötulasti tals­ maður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem stóð að stofnun náms brautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1973. Jón Sigvaldason afhendir Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur peningagjöf.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.