Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Page 32
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 86. árg. 201028
Aðalbjörg Finnbogadóttir, adalbjorg@hjukrun.is
HÁTÍÐARDAGSKRÁ Á ALÞJÓÐADEGI
HJÚKRUNARFRÆÐINGA 12. MAÍ
Haldið var að venju upp á fæðingardag Florence Nightingale. Úthlutað var úr
vísindasjóði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og sænskur rithöfundur fjallaði
um sína sýn á Florence.
Mikil vinna er að fara yfir allar styrkumsóknir.
Í stjórn vísindasjóðs sitja frá vinstri Aðalbjörg
Finnbogadóttir, starfsmaður stjórnar, Guðbjörg
Guðmundsdóttir, Ragnheiður Gunnarsdóttir og
Auðna Ágústsdóttir, formaður stjórnar.
meðal rannsóknir meistara og doktors
nema en eitt meginhlutverk hans er að
styrkja hjúkrunarfræðinga sem vinna að
rannsóknum og fræðiskrifum sem gildi
hafa fyrir hjúkrun. Með þessu framlagi
vísindasjóðs leggur Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga sitt af mörkum til
vísindalegrar þekkingaröflunar í hjúkrun
og þar með eflingar heilbrigðisþjónustu
á Íslandi.
Sænskur rithöfundur í heimsókn
Åsa Moberg er sænskur blaðamaður
og rithöfundur og vel þekkt í heimalandi
sínu. Hún hefur skrifað 17 bækur, meðal
annars bók um Simone de Beauvoire.
Árið 2007 skrifaði hún bók um Florence
Nightingale sem hefur vakið athygli.
Bókin nefnist Hon var ingen Florence
Nightingale. Människan bakom myten.
Bókin er ekki til hér á landi en hægt er að
fá hana pantaða hjá bóksölum.
Åsa Moberg fjallaði í sínu erindi um hina hlið
Nightingale sem er öndverð við ímyndina
Að þessu sinni ákvað Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga að bjóða upp
á sérstaka hátíðardagskrá 12. maí í
tilefni þess að í águst verða liðin 100
ár frá andláti Florence Nightingale.
Félagið vildi með því heiðra minningu
þessarar forustukonu og fyrirmyndar
hjúkrunarfræðinga þar sem sérstök
áhersla var lögð á að minnast vísinda
og fræðikonunnar Florence Nightingale.
Hátíðarfundurinn var haldinn á Grand
hóteli og var þéttsetinn salurinn.
Elsa B. Friðfinnsdóttir setti dagskrána
og óskaði hjúkrunarfræðingum til
hamingju með daginn. Elsa minnti á
hve mikinn þátt Nightingale átti í að
breyta hjúkrun og viðhorfum annarra
til hjúkrunar. Það efast enginn um að
umhyggjan var einn af hornsteinunum
í hennar störfum. Nightingale hafi þó
einnig lagt mikla áherslu á vísindastörf,
7 rannsakendur innan barnahjúkrunar hlutu styrk úr vísindasjóði FÍH 2010.
hagnýtingu vísindalegrar þekkingar
í þágu skjólstæðinga og samfélagsins
alls, ögun í vinnubrögðum, skráningu og
úrvinnslu upplýsinga, leiðtogahlutverkið
og svona mætti áfram telja.
Úthlutun úr Bhluta vísindasjóðs
Að loknu ávarpi formanns FÍH voru
afhentir styrkir úr Bhluta vísindasjóðs
félagsins. Auðna Ágústsdóttir, formaður
stjórnar vísindasjóðs, afhenti styrkina og
kynnti rannsóknarefni þeirra sem styrkina
hlutu. Þótti þessi úthlutun rýma vel við
efni og áherslur dagsins og má með sanni
segja að kjörorðið „Hjúkrun – þekking í
þína þágu“ hafi átt einstaklega vel við. Til
úthlutunar úr sjóðnum voru 10 milljónir
króna. Alls fengu 30 hjúkrunarfræðingar
styrki úr sjóðnum og voru styrkirnir á
bilinu tvö til fimm hundruð þúsund hver.
Sjóðurinn styrkir vísindarannsóknir, þar á