Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Page 35

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Page 35
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 86. árg. 2010 31 Stofnað var til golfmóts hjúkrunarfræðinga um 2000 í formannstíð Herdísar Sveinsdóttur. Áður hafði verið reynt að koma þessu af stað en ekki tekist. Tilgangurinn var að efla félagsandann og búa til tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga að koma saman utan vinnu. Í undir búningshópi eru nú fjórir hjúkrunarfræðingar. Fyrir utan Steinunni er Guðrún Jónsdóttir en hún vinnur á Sólvangi. Marta Sigurgeirsdóttir vinnur á slysa­ og göngudeild í Fossvogi og Arndís Jónsdóttir er í líknar­ teymi Landspítalans. Þær hafa sinnt þessu starfi síðast­ liðin tvö ár. Eins og kemur fram í viðtali við Steinunni eru þær allar hollsystur úr hjúkrunarnáminu. Síðustu ár hafa árlega verið haldin tvö golfmót. Fyrsta mótið í ár var haldið 28. maí sl. á Hamarsvellinum í Borgarnesi. Sextíu og fjórir mættu til keppni og hafa þátttakendur aldrei verið fleiri. Veðrið var með besta móti. Vinningshafi í forgjafaflokki 0­24 var Kristín Pálsdóttir með 39 punkta og í flokki 24,1­36 Hólmfríður Bragadóttir, einnig með 39 punkta. Síðara mót ársins verður haldið 27. ágúst á Nesvellinum á Seltjarnarnesi. Mótin hafa oftast verið punktamót en í slíku móti fær keppandinn upphaflega punkta miðað við forgjöf hans. Þetta merkir að hann hefur möguleika á að vinna jafnvel þó að hann leiki á móti mjög góðum golfurum. Hann fær svo stig eða missir miðað við árangur. Til dæmis eru gefin tvö stig fyrir að leika holu á pari en par er sá fjöldi högga sem ætlað er að meðalmaður leiki holuna á. Golfmót hjúkrunarfræðinga Undirbúningshópurinn. Frá vinstri Guðrún Jónsdóttir, Marta Sigurgeirsdóttir, Steinunn Kristinsdóttir og Arndís Jónsdóttir. ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Þorsteinn Elísson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta ekki svo dýr ef maður spilar mikið. Utan höfuðborgarsvæðisins er árgjaldið oft ekki svo hátt. Við eigum sumarbústað á Flúðum og spilum mikið á vellinum þar,“ segir Steinunn. „Það kom mér á óvart hvað það er skemmtilegt að spila golf. Þetta er útivera, hreyfing og félagsskapur og skemmtilegt áhugamál fyrir fjölskylduna. Þegar börnin eru á unglingsárunum á maður oft ekki mikið sameiginlegt en að spila golfhring saman er góð leið til þess að umgangast unglinga. Ég hef kynnst fólki á öllum aldri sem ég hefði líklega ekki kynnst annars staðar. Þá hef ég kynnst aftur nokkrum hollsystrum úr hjúkrunarnáminu í gegnum golfið,“ segir Steinunn að lokum.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.