Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Page 41
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 86. árg. 2010 37
Mynd 1. Eðlilegt bein og beinþynning. Heimild: menopause.online.com.
daga ársins á bráðadeildum sjúkra
húsanna en það samsvarar um 380
miljónum króna uppreiknað á verðgildi
2008. Þennan kostnað mætti sjálfsagt
tvöfalda ef tekið er tillit til annars kostnaðar,
meðal annars endurhæfingar og dvalar á
öðrum sjúkrastofnunum eftir dvölina á
bráðasjúkrahúsunum.
Fjöldi brota vegna beinþynningar mun
að öllum líkindum margfaldast á næstu
áratugum vegna breyttrar aldurs
samsetningar þjóðarinnar. Spá Hagstofu
Íslands gerir ráð fyrir að næstu tuttugu
árin fjölgi landsmönnum um 14% og því
fjölgi íbúum 65 ára og eldri um 68%.
Skilgreining beinþynningar
Beinþynning er oftast hluti af eðlilegu
öldrunarferli bæði hjá konum og körlum
en getur einnig orðið fylgikvilli ýmissa
sjúkdóma og lyfja. Beinþynning er lang
vinnur, hægfara sjúkdómur í beinum sem
einkennist af rýrnun á steinefnum og
misröðun á innri byggingu beinsins með
þeim afleiðingum að beinstyrkur skerðist
og hættan á beinbrotum eykst. Mæling á
beinþéttni er talin hafa besta forspárgildi
um hverjir séu í hættu á að brotna eða
jafn vel og blóðþrýstingur varðandi líkur
á heilablóðfalli eða kólesterólmæling út
af líkum á kransæðasjúkdómum (Gunnar
Sigurðsson, 2001, Cummings o.fl., 1993).
Þess vegna setti hópur sérfræðinga á
vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar
innar fram skilgreiningu á beinþynningu
sem byggist á mælingu á beinþéttni
með svokallaðri DEXAmælitækni (sjá
síðar). Þar er beinþynning skilgreind sem
beinþéttni sem er meira en 2,5 staðalfrávik
neðan við meðaltal ungra einstaklinga
af sama kyni (Tgildi < 2,5) Beingisnun
(osteopenia) er skilgreind sem beinþéttni
1,02,5 staðalfrávikum neðan við meðaltal
ungra einstaklinga af sama kyni; skráð
sem Tgildi 1,0 til 2,5 (sjá töflu 1).
Algengi sjúkdómsins markast því af
þessum skilgreiningum. Framskyggnar
hóp rannsóknir hafa sýnt að brotahættan
tvöfaldast fyrir hvert staðalfrávik neðan við
meðalgildi á beinþéttni.
Meinafræði beinþynningar
Undirrót beinþynningar er misræmi í
samspili milli beinmyndunar og beinniður
brots á þann veg að annaðhvort er
beinnýmyndun of lítil eða beinniðurbrot
of mikið. Röskun á jafnvægi milli bein
uppbyggingar og beinniðurbrots í átt að
beintapi er undanfari beinþynningar (sjá
mynd 1).
Bein líkamans eru samansett af skelbeini
(80%) og frauðbeini (20%) (Lemke, 2005).
Skelbein er ytri hlið beinanna. Frauðbein
er beinvefurinn í innri hluta beinanna,
til dæmis í endum langra beina og í
mjaðmagrindarbeinum ásamt því að vera
meginuppistaða hryggjarliðsbolanna.
Meginburðarafl og styrkur hryggjarliðsbola
byggist á innri uppröðun beinvefjarins í
frauðbeinshlutanum og samsvarar það
90% af styrk beinsins. Skelbein er hins
vegar tíu sinnum sterkara en frauðbein.
Bein er lifandi vefur í stöðugri endurmyndun
alla ævi. Beinmyndun er flókið samspil milli
beinbrjóta (osteoclastes) og beinbyggja
(osteoblastes). Eðlileg beinmyndun fer
þannig fram að beinvefur er brotinn niður
af beinfrumum sem nefnast beinbrjótar.
Samtímis er nýr beinvefur myndaður af
beinbyggjum. Beinmagni er að mestu leyti
stjórnað af erfðum en önnur mikilvæg
atriði í beinmyndun eru hormónar, næring
og regluleg líkams þjálfun. Kalk og
Dvítamínneysla er nauð synleg fyrir eðlilega
beinmyndun. Östrógen, testósterón og
kalsítónín eru hormónar sem hvetja
beinbyggja og þar með beinnýmyndun.
Beinbyggjafrumur hafa yfirhöndina
fyrstu tvo áratugina í lífi fólks og
hámarksbeinmagni er náð um 2428
ára aldur. Upp úr 30 ára aldri byrjar
beinmagnið að minnka, og við tíðahvörf
gisna bein kvenna með meiri hraða en áður
(Burke, 2001). Þannig er talið að 1520%
af beinmagni tapist fyrsta áratuginn eftir
tíðahvörf. Beinþynning hjá körlum er tengd
lækkuðu testósterónmagni með aldrinum.
Þetta gerist þó mun síðar hjá körlum,
ekki fyrr en upp úr sjötugu. Beinbrot eru
ekki eingöngu háð beinþéttninni heldur
hefur aldur einnig áhrif á brotatíðni óháð
beinmassanum og vöðvabygging, byltur
og innri gerð beinsins hafa einnig áhrif á
brotahættuna.
Sjúkdómsgreining
Beinþynning er oft ekki greind fyrr
en einstaklingurinn brotnar þar
sem beinniðurbrotið er þögult og
einkennalaust. Það er því mikilvægt að
greina beinþynningu tímanlega og helst
áður en beinin brotna til þess að geta með
góðum forvörnum eða lyfjameðferð komið
í veg fyrir fyrsta beinþynningarbrotið.
Tafla 1. Skilgreining Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar á beinþynningu.
Eðlileg beinþéttni: Tgildi > 1,0
Beingisnun (osteopenia): Tgildi 1,0 til 2,5.
Beinþynning (osteoporosis): Tgildi < 2,5
Tgildi er fjöldi staðalfrávika frá meðalgildi beinþéttni ungra (2030 ára) einstaklinga af sama kyni.