Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Side 53
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 86. árg. 2010 49
kostar bæði mannafla og fjármuni, ekki
hvað síst þegar gengi íslensku krónunnar
er jafn óhagstætt og nú er. Því er hollt
og nauðsynlegt að meta reglulega hvað
FÍH og hjúkrunarfræðingar geta lagt til
slíks samstarfs og hvaða ávinning FÍH og
hjúkrunarfræðingar geta haft af erlendu
samstarfi.
Samvinna hjúkrunarfræðinga á Norður
löndum (SSN) er svæðisbundin samvinna
stéttarfélaga hjúkrunarfræðinga á Norður
löndum. Meginmarkmið sam takanna er
upplýsingamiðlun og samvinna í málum
sem hafa áhrif á hjúkrun og hjúkrunar
fræðinga. Sem dæmi um ávinning
íslenskra hjúkrunarfræðinga af þessu
sam starfi má nefna þá vinnu sem fram
hefur farið við að skilgreina gæðavísa
í hjúkrun fyrir byltur, næringu, verki,
sár og mönnun. Sérfræðingar í þessum
málaflokkum meðal hjúkrunarfræðinga í
hverju landi unnu í hópum að skilgreiningu
gæðavísanna. Niðurstöður hópanna hafa
þegar verið kynntar formanni starfshóps
á vegum norræna ráðherraráðsins
sem ætlað er að setja gæðavísa fyrir
heilbrigðisþjónustu. Þannig mun þetta
samnorræna starf hjúkrunarfélaganna
hafa bein áhrif á gæðastaðla í
heilbrigðisþjónustu á Norðurlöndunum.
SSN hefur í framhaldinu boðað til opinnar
ráðstefnu um gæðavísa og orðræðu í
hjúkrun í Stokkhólmi dagana 23.–24.
nóvember. Annað dæmi um ávinning
íslenskra hjúkrunarfræðinga af SSN
samstarfinu er samvinna og gagnkvæm
upplýsingagjöf í aðdraganda síðustu
kjarasamningalotu félagsins sumarið
2008. Mánuðina áður en kjaraviðræður
FÍH og ríkisins hófust höfðu þrjú
hjúkrunarfélög á Norðurlöndunum
átt í kjara viðræðum við sín stjórnvöld
og danskir hjúkrunarfræðingar höfðu
verið í margra vikna verkfalli. Fréttir af
að gerðum systur samtakanna og gagn
kvæm upplýsingagjöf um áherslur og
aðgerðir hafði bein jákvæð áhrif á gang
kjara viðræðna FÍH við viðsemjendur.
Evrópusamtökum hjúkrunarfræðinga
(EFN) er fyrst og fremst ætlað að hafa
áhrif á setningu laga og reglugerða
Evrópusambandsins (ESB) í málum er
varða hjúkrun og hjúkrunarfræðinga.
Með aðild að EFN gefst FÍH ekki aðeins
tækifæri til að fylgjast með stefnu
ESB í hjúkrunar og heilbrigðismálum
heldur getur félagið einnig haft áhrif á
hagsmunagæslu EFN gagnvart ESB. Þó
Ísland eigi ekki aðild að ESB hafa lög
og reglugerðir sambandsins bein áhrif
á Íslandi og á Íslendinga vegna EES
samningsins. Meðal þeirra mála, sem til
umfjöllunar eru innan EFN, eru flutningar
sjúklinga milli landa, frjálst flæði vinnuafls
innan EES og gagnkvæm viðurkenning
prófa. Þá má nefna umfjöllun um
ábyrgð hjúkrunarfræðinga yfir skipulagi
og veitingu hjúkrunarþjónustu. Einnig
hefur mikið verið fjallað um menntun
hjúkrunarfræðinga, þá ekki síst með
hliðsjón af Bolognaáætluninni. Þessi
vinna innan EFN hefur verið dýrmætur
gagnagrunnur í umsögnum FÍH um
breytingar á íslenskum lögum og
setningu reglugerða er varða hjúkrunar
og heilbrigðisþjónustu.
Alþjóðaráð hjúkrunarfræðinga (ICN)
eru samtök hjúkrunarfélaga í 120
löndum. Samtökin hafa sett sér þrjú
meginmarkmið: Að auka samstarf og
einingu meðal hjúkrunarfræðinga um
allan heim, að stuðla að alþjóðlegum
framförum í hjúkrun og að hafa áhrif á
heilbrigðisstefnu stjórnvalda í aðildar
ríkjunum. Til að ná þessum markmiðum
gefur ICN út fjöldann allan af yfirlýsingum,
ályktunum og áskorunum, sem byggðar
eru á niður stöðum starfshópa og þinga
á vegum samtakanna. Þannig má í raun
segja að ICN leggi ákveðinn grunn að
því hvernig hjúkrun er kynnt um allan
heim. Meðal yfirlýsinga, sem ICN hefur
gefið út og hefur gagnast FÍH vel í
niðurskurðarumræðunni að undanförnu,
er yfirlýsing samtakanna um samsetningu
mannafla og tilflutning verkefna á milli
einstakra starfshópa.
FÍH hefur einnig tekið virkan þátt í
kjaravettvangi ICN í samráðshópi 11
hjúkrunarfélaga, meðal annarra breska
hjúkrunarfélagsins, þess kana díska
og þess bandaríska. Þessi samráðs
vettvangur hefur nýst vel til gagnkvæmrar
upplýsingamiðlunar um laun
hjúkrunarfræðinga, vinnutíma, starfs
umhverfi, trúnaðarmannakerfi og fleira.
Í ljósi ofangreinds má ljóst vera að
FÍH og önnur hjúkrunarfélög geta haft
mikinn ávinning af alþjóðlegu samstarfi,
ekki hvað síst á tímum niðurskurðar og
breytinga. Ávinningurinn fer hins vegar að
verulegu leyti eftir virkni félagsins sjálfs. Í
þessu eins og svo mörgu öðru gildir að
bera sig eftir björginni.
SUMAROPNUN
1. júní til 31. ágúst
er afgreiðslutími skrifstofu
Fíh frá kl 09:00 til 16:00