Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Blaðsíða 54
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 86. árg. 201050
Vika hjúkrunar var haldin á
Landspítala 10.–14. maí í
samvinnu við svæðisdeild
höfuðborgarsvæðisins.
Var það sjöunda árið í
röð sem hún er haldin
á svipuðu formi. Vikan
er haldin í vikunni sem
12. maí ber upp en sá
dagur er fæðingardagur
Florence Nightingale
sem er talin frumkvöðull
hjúkrunar.
Fæðingardagur Florence Nightingale er
haldinn hátíðlegur um allan heim og í ár
undir kjörorðinu „Nurses leading chronic
care“ (lauslega þýtt: Hjúkrunarfræðingar
eru í fararbroddi í hjúkrun langveikra).
Í ár eru enn fremur 100 ár frá því að
Nightingale lést rúmlega 90 ára gömul.
Á viku hjúkrunar var því reynt að tengja
marga viðburði minningu hennar og
vekja athygli á framlagi hennar sem
vísindamanns og frumkvöðuls í hjúkrun.
Fjölbreytt dagskrá var í boði alla
vikuna og voru atburðir vel sóttir af
hjúkrunarfræðingum. Blandað var
saman fyrirlestrum, opnu húsi þar sem
deildir á LSH kynntu starfsemi sína og
veggspjaldasýningu. Það er greinilegt að
hjúkrunarfræðingar leggja mikinn metnað
í veggspjaldasýninguna enda verður
hún glæsilegri ár frá ári. Í ár kynntu
hjúkrunarfræðingar starf sitt, rannsóknir
og gæðaverkefni á rúmlega fjörutíu
veggspjöldum á Hringbraut og í Fossvogi.
Veggspjaldasýningin stóð frá 7. til 21.
maí. Markhópur veggspjaldasýningarinnar
á viku hjúkrunar er ekki eingöngu
hjúkrunarfræðingar, ljósmæður og
aðrar fagstéttir heldur einnig sjúklingar
og aðstandendur þeirra. Áhersla viku
Dóróthea Bergs, dorothea@landspitali.is
Veggspjaldasýningin opnuð mánudaginn 10. maí.
VIKA HJÚKRUNAR 2010 Á LANDSPÍTALA
hjúkrunar 2010 var á skráningu hjúkrunar
enda er verið að innleiða nýjungar í með
ferðarskráningu í rafrænni sjúkraskrá.
Veggpjaldasýningin var formlega opnuð
mánudaginn 10. maí. Í hádeginu þann
dag var síðan boðið upp á fyrirlestra í
Hringsal. Hildur Einarsdóttir, sérfræðingur
í hjúkrun, sagði frá nýrnaskólanum sem er
ætlaður nýrnasjúklingum og fjölskyldum
þeirra. Anna Guðrún Gunnarsdóttir
hjúkrunarfræðingur kynnti göngudeild
hjartabilaðra sem er hjúkrunarstýrð
þjónusta við hjartasjúklinga. Á þriðjudag
voru tvö erindi í Hringsal. Þorbjörg Sóley
Ingadóttir, sérfræðingur í hjúkrun, sagði
frá stuðningi við langveika lungnasjúklinga
og fjölskyldur þeirra og Ingibjörg Bernhöft
hjúkrunarforstjóri kynnti hjúkrunarheimili
framtíðarinnar. Á miðvikudag, fæðingar
degi Florence Nightingale, var kynning á
nýju sjúklingaflokkunarkerfi sem kallast
RAFAELA og stendur til að innleiða á
Landspítala. Viðstaddir voru mjög áhuga
samir og spurðu mikið um nýtingu þessa
sjúklingaflokkunarkerfis fyrir hjúkrun.
Síðasti fyrirlesturinn á viku hjúkrunar var
síðan frásögn Aðalbjargar Þorvarðardóttur
hjúkrunarfræðings af því að takast á
við eigin líðan eftir að hún greindist
með langvinnan sjúkdóm. Var þetta mjög
fræðandi og áhugavert innlegg og átti
það sem og aðrir fyrirlestrar vel við þema
viku hjúkrunar.
Opið hús var hjá göngudeild húð og
kynsjúkdómadeildar í Fossvogi og nýrri
hjartagátt við Hringbraut. Vel var mætt
í þessi opnu hús enda fróðlegt að fá
tækifæri til að kynna sér deildir með ólíka
starfsemi.
Hápunktur vikunnar var á föstudaginn
þegar framkvæmdastjóri hjúkrunar
bauð í súpu og samveru í Kbyggingu
við Hringbraut. Þar bauðst hjúkrunar
fræðingum sem og öðrum starfsstéttum
tækifæri til að hittast, ræða saman og
gæða sér á dýrindissúpu.
Fræðslunefnd hjúkrunarráðs þakkar þeim
sem tóku þátt í viku hjúkrunar og vonar
að allir hafi notið þess sem í boði var.
Dóróthea Bergs er sérfræðingur í hjúkrun
langveikra í endurhæfingu á Grensási og
formaður fræðslunefndar hjúkrunarráðs á
Landspítala.
v
Við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri er í boði
nám til meistaragráðu í heilbrigðisvísindum.
Námið er 120 einingar og samanstendur af sex 10
eininga námskeiðum og 60 eininga rannsóknar verkefni.
Einnig er í boði 40 eininga diplómunám.
Námið er opið öllum sem hafa lokið BS námi eða
sambærilegri menntun á heilbrigðisssviði.
Diplómu- og meistaranám
í heilbrigðisvísinDum
Umsóknarfrestur til 5. júní
Nánari upplýsingar á www.unak.is
viltu læra meira?