Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Side 7
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 3. tbl. 89. árg. 2013 3
Formannspistill
Ég vil byrja fyrsta formannspistil minn
á að þakka ykkur, kæru félagsmenn,
fyrir það traust og þann stuðning
sem þið sýnduð mér í nýafstöðnum
kosningum til formanns Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga. Ég hlakka til að
takast á við krefjandi og viðamikið starf
formannsins og heiti því að gera mitt
allra besta til að tryggja hagsmuni allra
hjúkrunarfræðinga og vinna ötullega að
eflingu hjúkrunar í íslensku samfélagi.
Fram undan eru mörg verkefni sem við
hjúkrunarfræðingar munum takast á við.
Viðamesta verkefnið verður án efa gerð
nýrra kjarasamninga. Stórt skref var
stigið sl. vetur þegar fráfarandi ríkisstjórn
viðurkenndi að um kynbundinn launamun
væri að ræða hjá ríkisvaldinu og hóf
aðgerðir til að útrýma honum. Það er
algerlega óviðunandi að hefðbundnar
kvennastéttir fái ekki sambærileg
laun við hefðbundnar karlastéttir með
sambærilega menntun og ábyrgð. Það
hlýtur því að vera okkar helsta krafa
að jafna laun hjúkrunarfræðinga á við
laun annarra háskólamenntaðra stétta
hjá ríkinu. Launamuni kynjanna verður að
útrýma í eitt skipti fyrir öll.
Það sem heillaði mig við hjúkrunarstarfið,
þegar ég valdi mér starfsvettvang, var
hversu fjölbreytt starf hjúkrunarfræðingsins
er. Hjúkrunarfræðingar koma alls staðar
að heilbrigðiskerfinu hvort sem um ræðir
klíníska vinnu, kennslu, stýringu verkefna
innan stofnana, stjórnun og stefnumótun
eða ákvarðanatöku í stjórnsýslunni. Að
auki starfa fjölmargir hjúkrunarfræðingar
utan heilbrigðiskerfisins á hinum
almenna vinnumarkaði. Þessi fjölbreytti
starfsvettvangur, ásamt auknum kröfum
um sérhæfingu í hjúkrun, hefur þó gert
það að verkum að hjúkrunarfræðingar
eiga erfitt með að sjá sig sem eina stóra
heild heldur skilgreina sig í smærri hópum
í tengslum við vinnuumhverfi sitt. Ég tel
afar mikilvægt að við hjúkrunarfræðingar
horfum á okkur sem einn stóran og
öflugan hóp, hóp fagmanna með
framúrskarandi menntun, yfirgripsmikla
þekkingu og faglega færni. Við erum
hópur fagmanna sem er nauðsynlegur og
mikilvægur hlekkur í þeirri þjónustu sem
veitt er í heilbrigðiskerfinu, hópur sem með
mikilli samstöðu eru allir vegir færir hvort
sem um ræðir kjarabaráttu eða eflingu
hjúkrunar innan heilbrigðiskerfisins.
Eitt langar mig að biðja ykkur, kæru
félagsmenn, að taka með ykkur inn í
sumarið. Það er sú hugsun að félagið
okkar er einungis eins sterkt og þeir
félagsmenn sem í því eru. Með því að taka
þátt í starfsemi félagsins leggið þið ykkar
af mörkum til að gera félagið að öflugu
fag og stéttarfélagi sem er í stakk búið
að vinna að málefnum hjúkrunarfræðinga
með breiðri samstöðu. Ég hvet ykkur til
að bjóða fram aðstoð ykkar í starfsemi
félagsins hvort sem um ræðir nefndarvinnu
eða þátttöku í viðburðum á vegum þess.
Það er okkar hjúkrunarfræðinga að móta
félagið á þann veg að það þjóni okkar
hagsmunum og starfi í okkar þágu. Ég
fagna allri gagnrýni og tel það vera eina
af forsendum þess að efla gott félag að
heyra álit félagsmanna á starfseminni.
Eitt er víst að hlutirnir breytast einungis ef
ábendingum er komið í hendur réttra aðila
og hvet ég ykkur til að hafa samband við
mig ef eitthvað er, hvort sem um lof eða
last er að ræða eða ábendingar um hvað
betur megi fara.
Að lokum vil ég þakka fráfarandi
formanni, Elsu B. Friðfinnsdóttur, fyrir
það góða starf sem hún hefur unnið
fyrir hönd hjúkrunarfræðinga síðastliðin
10 ár og óska ég henni velfarnaðar í
þeim verkefnum sem hún tekur sér fyrir
hendur.
MEÐ MIKILLI SAMSTÖÐU ERU OKKUR
ALLIR VEGIR FÆRIR
Ólafur Guðbjörn Skúlason.