Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Blaðsíða 49
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 3. tbl. 89. árg. 2013 45
Ritrýnd fræðigrein
SCIENTIFIC PAPER
UMRÆÐA
Fram kom að því betur sem væntingar sjúklinga um fræðslu
voru uppfylltar, því betra var mat þeirra á heilsufari 67
mánuðum eftir aðgerðina. Sýnt hefur verið fram á jákvæð
tengsl fræðslu við heilsutengd lífsgæði hjá sjúklingum sem fara
í skurðaðgerð (LeinoKilpi o.fl., 2005). Ekki fundust rannsóknir
þar sem tengsl uppfylltra fræðsluþarfa og heilsufars voru
metin og því má ætla að frekari rannsókna sé þörf á því sviði.
Hjúkrunarfræðingar þurfa samt sem áður að vera meðvitaðir
um tengsl uppfylltra fræðsluþarfa og heilsufars og nota það
sem hvatningu til að sinna sjúklingafræðslu.
Sjúklingar í þessari rannsókn telja heilsufar sitt betra 67
mánuðum eftir aðgerðina en fyrir, með áhrifastærð 0,39 sem
útskýrir þá um leið 39% í dreifingu breytunnar (Levine og
Hullett, 2002). Sambærilegar niðurstöður hafa komið fram
um mat á heilsufari með EQvas eftir bæklunarskurðaðgerðir
(Jansson o.fl., 2005).
Fræðsla
Sjúklingar höfðu miklar væntingar til fræðslu en misjafnlega
tókst að uppfylla þær. Rannsókn Rankinen o.fl. (2007) sýndi
minni væntingar til fræðslu fyrir aðgerð en hér kom fram.
Fengin fræðsla á sjúkrahúsi eftir aðgerð er meiri hér sem lýsir
sér í lægra meðaltali á spurningalista á tíma 2 og 3 heldur en
í öðrum rannsóknum (LeinoKilpi o.fl., 2005; Rankinen o.fl.,
2007). Hins vegar virðist fræðsluþörfum vera síður sinnt hér
þar sem munur á tíma 1 og 2 er meiri en mælist hjá Rankinen
og félögum. Niðurstöður Sveinsdóttur og Skúladóttur (2012)
benda einnig til þess sama. Í rannsókn þeirra meðal 137
Tafla 3. Mat sjúklinga á heilsutengdum lífsgæðum sínum eftir tíma (EQ5D).
Tími 1
(fyrir aðgerð)
Tími 2
(við útskrift)
Tími 3
(67 mánuðum eftir
aðgerð)
Dreifigreining endurtekinna mælinga
(n=271) (n=209) (n=205) pgildi áhrifastærð
Hreyfigeta 1,9 (0,3) 1,7 (0,5) 1,3 (0,5) <0,001 0,52
Sjálfsumönnun 1,2 (0,4) 1,7 (0,5) 1,1 (0,2) <0,001 0,62
Venjubundin störf og
athafnir
1,8 (0,6) 2,2 (0,7) 1,3 (0,5) <0,001 0,58
Verkir/óþægindi 2,3 (0,5) 2,0 (0,4) 1,7 (0,5) <0,001 0,49
Kvíði/þunglyndi 1,4 (0,6) 1,2 (0,4) 1,2 (0,4) <0,001 0,17
Meðaltöl, staðalfrávik (sf), tölugildi frá 1 til 3, því lægra meðaltal því meiri eru lífsgæðin.
Dreifigreining endurtekinna mælinga, pgildi, áhrifastærð (eta2) með tölugildi frá 0 til 1.
Tafla 4. Heilsufar (EQvas) eftir tíma og bakgrunnsbreytum þar sem marktækur munur kom fram.
Tími 1
(fyrir aðgerð)
Tími 2
(við útskrift)
Tími 3
(67 mán. eftir aðgerð)
Dreifigreining endurtekinna mælinga
pgildi áhrifastærð
Heilsufar nú 59 (19,8)
[1095]
63 (17,5)
[1597]
71 (17,6)
[5100]
0,001 0,39
Kyn tpróf
Kona 56 (20,9)
[1095]
61 (17,1)
[2096]
71 (17,8)
[10100]
p=0,006
Karl 63 (18,0)
[2095]
64 (17,9)
[5100]
72 (17,5)
[1597]
Langvinnur sjúkdómur tpróf
Já 54(20,5)
[1093]
58 (18,3)
[1590]
65 (19,4)
[1093]
p<0,001
Nei 64 (18,0)
[6588]
66 (16,2)
[6588]
p=0,003
75(15,3)
[6588]
p<0,001
Meðaltöl, staðalfrávik (innan sviga), spönn [innan hornklofa], tölugildi eru frá 0100, því hærra sem gildið er því betra er heilsufarið.
pgildi, áhrifastærð (eta2), tölugildi frá 0 til 1.