Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Síða 11

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Síða 11
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 3. tbl. 89. árg. 2013 7 Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala árið 2000 tók hún við stöðu sviðsstjóra hjúkrunar á lyflækningasviði II en undir það svið heyrðu sérhæfðu krabbameinsdeildirnar og líknardeildin í Kópavogi. Þá stýrði hún fagráði krabbameinshjúkrunar á Landspítala fyrstu árin. Kristín lét af störfum sem sviðsstjóri árið 2009 þegar núverandi stjórnskipulag Landspítala tók gildi en starfaði með fagráði krabbameinshjúkrunar þar til hún lét af störfum á Landspítala árið 2012. Undir stjórn Kristínar síðastliðin 30 ár hefur orðið mikil framþróun í málum krabbameinshjúkrunar. Sérhæfingin og sérþekkingin hefur stóreflst og þjónusta við þennan sjúklingahóp á Landspítala hefur byggst upp á heildrænan hátt. Kristín hefur unnið mjög óeigingjarnt starf í þágu hjúkrunar og verið öflugur frumkvöðull og talsmaður krabbameinshjúkrunar alla sína tíð. Fyrir allt þetta og meira til vill fagdeildin heiðra Kristínu sérstaklega. Heiðursfélagar fagdeildarinnar verða sæmdir gullnælu og henni fylgir æviaðild að fagdeildinni. Lesa má viðtal við Kristínu Sophusdóttur í 4.tbl. Tímarits hjúkrunarfræðinga 2010. Fjórtán af átján styrkþegum ásamt þremur úr stjórn vísindasjóðs. Vísindasjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Frá 1994 hafa vinnuveitendur hjúkrunar fræðinga greitt sem nemur 1,5% af föstum dagvinnulaunum þeirra í vísindasjóð Félags íslenskra hjúkrunar­ fræðinga. Sjóðurinn er í vörslu félagsins og skiptist í A­ og B­hluta. Aðild að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar sem eru félagsmenn í FÍH og voru í vinnu samkvæmt kjarasamningi félagsins fyrir 31. desember árið fyrir úthlutun. Stjórn sjóðsins 2013­2015 skipa: Dr. Auðna Ágústdóttir formaður Aðalbjörg J. Finnbogadóttir, sviðstjóri fagsviðs FÍH Guðbjörg Guðmundsdóttir, sérfræðingur í hjúkrun Hlíf Guðmundsdóttir, sérfræðingur í hjúkrun og fulltrúi stjórnar FÍH

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.