Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Page 10
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 3. tbl. 89. árg. 20136
FRÉTTAPUNKTUR
Á aðalfundi fagdeildar krabbameins hjúkrunar
fræðinga 7. mars sl. var kynnt ákvörðun stjórnar
fagdeildar að gera Kristínu Auði Sophusdóttur
að fyrsta heiðursfélaga fagdeildarinnar. Svo
vitað sé er það í fyrsta sinn sem fagdeild
útnefnir heiðursfélaga en í Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga eru þeir núna 10.
HEIÐURSFÉLAGI FAGDEILDAR
KRABBAMEINSHJÚKRUNAR FRÆÐINGA
Í ár barst 21 umsókn í B-hluta vísindasjóðs. Stjórn
sjóðsins ákvað að veita 18 styrki til hjúkrunarfræðinga
sem stunda rannsóknir á sviði hjúkrunarfræði, samtals að
upphæð rúmar 7 milljónir króna. Styrkirnir voru afhentir
við hátíðlega athöfn miðvikudaginn 8. maí í húsnæði
félagsins að Suðurlandsbraut. Veittir voru 9 styrkir til
vísindarannsókna, 4 til rannsókna í doktorsnámi og 5 til
rannsókna í meistaranámi.
Vísindasjóður félagsins styrkir einnig árlega alla félags-
menn sína til símenntunar í faginu í gegnum A-hluta
18 hjúkrunarfræðingar hlutu styrk
úr Bhluta vísindasjóðs 2013
Kristín Auður Sophusdóttir lauk hjúkrunarprófi frá Hjúkrunarskóla Íslands
1974. Hún hefur síðan lokið sérnámi í hjúkrun hand og lyflækninga frá
Nýja hjúkrunarskólanum, sérnámi í krabbameinshjúkrun við Finseninstitutet
í Kaupmannahöfn, BSprófi í hjúkrunarfræði frá HÍ 1995 og diplómanám í
stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu frá EHÍ.
Kristín hefur verið stjórnandi mestallan sinn starfsferil og tekið þátt í
stofnun flestra sérhæfðra krabbameinsdeilda Landspítalans. Hún var
hjúkrunarframkvæmdastjóri á Landspítalanum frá 1993 og við sameiningu
sjóðsins. Nýlega fengu félagsmenn úthlutað úr A-hluta
vísindasjóðs án umsóknar. Samtals greiddi félagið út rúmar
132 milljónir úr A-hluta vísindasjóðs til félagsmanna.
Þetta er einstakt þar sem mjög fá stéttarfélög eiga
vísindasjóð. Flestir háskólamenntaðir ríkisstarfsmenn gáfu
eftir slíka sjóði í kjarasamningum 2008 en Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga leggur mikla áherslu á að styðja við
vísindavinnu félagsmanna. Með þessum styrkjum leggur
félagið sitt af mörkum til þess að efla þekkingu og nýsköpun
í hjúkrun og þar með bæta heilbrigðisþjónustuna á Íslandi.