Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Blaðsíða 20
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 3. tbl. 89. árg. 201316
sjálfsvíg eða deyr með skyndilegum hætti haft afdrifaríkar afleiðingar
sem mætti koma í veg fyrir ef gripið er nógu fljótt inn í. Spurningin
er hvort við getum hugsað betur um þessa hópa,“ segir Þórdís.
Rannsóknir á Íslandi
Þórdís segir rannsóknarumhverfið á Íslandi vera að mörgu leyti
gott. „Við fáum ekki stór úrtök í mörgum rannsóknum en eigum
hins vegar auðvelt með að fá allt þýðið. Við fáum til dæmis hér á
bráðamóttöku fólk af öllu landinu og stærðin á bráðamóttökunni
er alveg á stærð við bráðamóttökur erlendis. Það ásamt rafræna
sjúkraskrárkerfinu, stuttum boðleiðum og vel menntuðu og
áhugasömu starfsfólki veitir okkur tækifæri til þess að gera
mjög góðar rannsóknir sem eiga erindi í alþjóðlegu samhengi.“
Það sem Þórdísi finnst helst skorta í rannsóknum á Íslandi er
aðgangur að tölfræðingum. „Það er alveg lýsandi hér og eitthvað
sem mér finnst að spítalinn ætti að huga að. Við sækjum um
styrki í vísindasjóð spítalans til þess að borga utanaðkomandi
tölfræðingum. Betra væri að hafa aðgang að klínískum
tölfræðingi tengdum spítalanum sem hefur áhuga á rannsóknum
í heilbrigðisvísindum. Þetta er nú einu sinni háskólasjúkrahús.
Þetta fyndist mér að ætti að koma inn í samstarfssamning milli
spítalans og háskólans þannig að háskólinn útvegaði okkur
tölfræðing, sem aftur hagnast af reynslunni og birtingum. Til
þess að komast að í góðum tímaritum þarf helst að vera stimpill
tölfræðings á greininni,“ segir hún.
Margir hjúkrunarfræðingar vilja rannsaka en stundum er erfitt að
útvega fé og rými til rannsókna. „Sjóðir eru til hjá hjúkrunarfélaginu
og á Landspítala. Svo eru doktorssjóðir fyrir nema í HÍ og þá
þarf að búa til doktorsnemastöður. Maður hefur heyrt að fólk
flosni upp og hætti eftir eitt eða tvö ár þannig að þetta er
barátta. Það sem ég sé framtíð í er til dæmis Evrópusamvinna.
Landlæknir er til dæmis í evrópsku slysaskráningarverkefni.
Ég veit ekki hvaða möguleikar eru þar fyrir doktorsnema en
það má alveg huga að fleiri slíkum verkefnum. Þar þurfa menn
að búa til heildaráætlanir. Þá myndum við kannski samþætta
allar rannsóknir sem við erum að gera hér í eina áætlun um
bráðaþjónustu og búa til stöður. Ég get alveg séð fyrir mér að
þannig gæti maður sótt um peninga í framtíðinni. Það er margt
hægt að gera þó að ég sé bara á byrjunarreit hér. Ég hef notað
þennan vetur til þess að kynna mér hvað er að gerast og koma
ákveðnum rannsóknum í gang og svo eru allir velkomnir með
hugmyndir og ég vil hvetja sem flesta til þess að rannsaka,“
segir Þórdís.
Þórdís hefur kennt svolítið í hjúkrunar fræðideild og tekið þátt í
að móta nýtt meistaranám í hjúkrun bráðveikra sem er að byrja
í haust. Hún hefur áhuga á að starfa meira við háskólann en
segir að hún vilji leggja mesta áherslu á þverfaglegar rannsóknir.
„Það þarf að brjóta niður deildarmúra innan háskólans og
vinna með öllum sem koma að heilbrigðisþjónustu, sama
hvaðan þeir koma. Við fengum til dæmis fyrirspurnir hingað
frá íþróttafræðingum sem höfðu áhuga á höfuðáverkum í
boltaíþróttum. Ég er vön því frá Svíþjóð að sitja í kaffitímum með
mismunandi fagstéttum, velta upp hlutunum frá ýmsum hliðum
og fá nýjar hugmyndir,“ segir Þórdís.
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Jón Bjarnason
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elíasson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
POWERCARE A/S
Sønderhøj 16
DK-8260 Viby J
Tlf.: (+45) 45 540 540
www.powercare.dk
Hjúkrunarfræðingar á skurðdeild
Hjúkrunarfræðingar á lyflækningadeild
Svæfingahjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar á skilunardeild
Hjúkrunarfræðingar á gjörgæsludeild
Hjúkrunarfræðingar á nýburðardeild
Hjúkrunarfræðingar á blóð- og
krabbameinslækningadeild
Hjúkrunarfræðingar á skurðlækningadeild
Ljósmæður
Við borgum fyrir allt og skipuleggjum
ferð þína og dvöl.
Við erum félagi þinn!
Með jöfnu millibili verðum við með ráðningarviðtöl
í danska sendiráðinu í Reykjavík.
Nánari upplýsingar:
Sími: (+45) 45 540 540
Hægt er að fylla út umsóknar-
eyðublað á heimasíðu okkar:
www.powercare.dk
Leitað er að hjúkrunar-
fræðingum og ljósmæðrum
til Noregs – á mjög
eftirsóknarverðum kjörum