Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Page 22
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 3. tbl. 89. árg. 201318
Fjölmennur aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldinn 31. maí
2013. Á fundinum tók Ólafur G. Skúlason við embætti formanns félagsins.
AÐALFUNDUR 2013
Elsa B. Friðfinnsdóttir, fráfarandi formaður,
ávarpaði fundarmenn í upphafi fundar.
Hún óskaði Ólafi G. Skúlasyni innilega
til hamingju með kjörið og óskaði
honum velfarnaðar í starfi formanns
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Elsa sagði það hafa verið forréttindi að
fá að vera formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga síðastliðin 10 ár þar
sem starfið er gefandi og skemmtilegt
og einnig vegna þess orðspors sem
félagið hefur meðal almennings og hjá
stjórnvöldum. Hún sagði gríðarlega margt
hafa áunnist síðustu ár og miklar breytingar
hafi orðið í öllu skipulagi og starfi félagsins.
Brýnustu verkefni félagsins fram undan
taldi hún vera að halda áfram að beita
Aðalbjörg J. Finnbogadóttir, adalbjorg@hjukrun.is
sér alls staðar þar sem ákvarðanir um
heilbrigðismál eru teknar, undirbúa kjara
samninga sem eru fram undan og beita
sér fyrir auknum fjárveitingum til hjúkrunar
fræðináms. Hún brýndi hjúkrunar fræðinga
til að nýta þau sóknar færi sem fram
undan eru í heilsugæslunni og í öldrunar
þjónustunni. Hjúkrunarfræðingar þyrftu að
taka forystu í skipulagi og rekstri hjúkrunar
móttöku í heilsugæslu og sú umræða
sem fram undan er um flutning heilsu
gæslunnar til sveitarfélaga er kjörið tæki
færi fyrir hjúkrunar fræðinga til að taka
stjórnina í þeim mála flokki. Hið sama
gildir um öldrunar þjónustuna. Sam
kvæmt áætlunum á að færa þjónustu við
aldraða yfir til sveitar félaganna um næstu
áramót, en undir búningi er hvergi nærri
lokið þannig að þeirri yfir færslu seinkar
eitthvað. Þá hvatti hún hjúkrunar fræðinga
til að gefa kost á sér til setu í sveitar
stjórnum í kosningunum næsta vor og
sagði hjúkrunar fræðinga þurfa að vera
pólitíska í hugsun, taka virkan þátt og vera
þar sem ákvarðanirnar eru teknar. Að loknu
ávarpi sínu setti Elsa fundinn og lögbundin
aðalfundarstörf hófust.
Fjármál og félagsgjöld
Reikningar félagsins og fjárhagsáætlun
næsta starfsárs voru samþykktar. Staða
félagssjóðs er góð enda mikil áhersla
lögð á kostnaðarstýringu innan félagsins.