Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Side 24

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Side 24
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 3. tbl. 89. árg. 201320 Starfsreglur siðaráðs og endurskoðaðar starfsreglur siða­ og sáttanefndar voru einnig samþykktar. Lagabreytingar Tillögur stjórnar FÍH um breytingar á lögum félagsins á 3. grein um fulla aðild, fagaðild og aukaaðild, 13. grein um formannskjör og 35. grein (sem verður 37. grein) um allsherjaratkvæðagreiðslu voru samþykktar. Þá voru samþykktar tvær nýjar lagagreinar um siða­ og sáttanefnd og um styrktarsjóð. Vegna nýju greinanna hliðrast númeraröð lagagreinanna til þannig að greinar 27 til 38 verða nú 29 til 40. Lagabreytingartillaga Aðalheiðar D. Matt­ hías dóttur og Evu Hjörtínu Ólafs dóttur um að fella út svæðisdeild höfuð borgar ­ svæðisins úr 15. grein um svæðis deildir var felld svo og tillaga stjórnar svæðis ­ deildar Suður lands um að bæta við svæðis deild Vest mannaeyja í 15. greinina. Líflegar umræður sköpuðust um tilgang og hlutverk svæðis deilda og var rætt meðal annars hvort einstaka land svæði gætu stofnað fagdeild. Bent var á að fundurinn hefði þegar samþykkt heildarendurskoðun laga félagsins í starfsáætlun stjórnar og var ítrekað að taka þessa umræðu inn í þá endurskoðun. Kosningar Kjörnefnd auglýsti eftir framboðum til formanns félagsins fyrir kjörtímabilið 2013­2015. Sjö framboð bárust, frá þeim Elínu Hönnu Jónsdóttur, Herdísi Gunnarsdóttur, Margréti Guðjónsdóttur, Ólafi G. Skúlasyni, Ragnheiði Gunnars­ dóttur, Sigríði Snæbjörnsdóttur og Vigdísi Hallgrímsdóttur. Sigríður Snæbjörnsdóttir dró síðar framboð sitt til baka. Allsherjaratkvæðagreiðsla fór fram 1.­11. mars síðastliðinn en hún var úrskurðuð ógild að undangenginni kæru eins frambjóðanda. Endurtekning á allsherjar atkvæðagreiðslu fór fram 19.­29. apríl 2013. Á kjörskrá voru 3.687. Atkvæði greiddu 2.265 eða 61,4% atkvæðisbærra félagsmanna og skiptust atkvæði þeirra þannig: Nafn Fjöldi atkvæða % Herdís Gunnarsdóttir 118 5,2 Ólafur G. Skúlason 1097 48,4 Elín Hanna Jónsdóttir 12 0,5 Vigdís Hallgrímsdóttir 845 37,3 Margrét Guðjónsdóttir 120 5,3 Ragnheiður Gunnarsdóttir 69 3,0 Auðir seðlar og ógildir 4 0,2 Formannskjöri lýst Kjörnefnd lýsti Ólaf G. Skúlason rétt­ kjörinn formann Félags íslenskra hjúkr­ unar fræðinga fyrir kjörtímabilið 2013­ 2015. Ólafur ávarpaði fundarmenn og þakkaði það traust og þann stuðning sem hann hlaut í kjöri til formanns FÍH og sagðist hlakka til að takast á við krefjandi og viðamikið starf formannsins og sagði það heiður að fá að vinna að málefnum hjúkrunarfræðinga fyrir hjúkrunar fræðinga. Hann þakkaði fráfarandi formanni fyrir sitt ötula starf í þágu hjúkrunarfræðinga síðastliðinn áratug og sagði erfitt að feta í þau fótspor. Ólafur sagði mörg verkefni bíða en helsta verkefnið væri gerð nýrra kjarasamninga og ljóst að þar væri á brattann að sækja. Helstu kröfu hjúkrunarfræðinga sagði hann vera að jafna laun þeirra við aðrar sambærilegar stéttir innan ríkisins og að það væri algerlega ólíðandi að hefðbundnar kvennastéttir væru ekki með sömu laun og sambærilegar hefðbundnar karlastéttir. Hann sagði ákveðinn sigur hafa unnist síðastliðinn vetur þegar þáverandi Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, haldinn á Hótel Natura föstudaginn 31. maí 2013, fagnar því að í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar sé tekið fram að bæta eigi árangur á sviði jafnréttismála og vinna gegn kynbundnum launamun. Félagið minnir á að vinna gegn kynbundnum launamun er þegar hafin. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hvetur stjórnvöld til að vinna að aðgerðaráætlun tengdri launamun kynjanna í samráði við stéttarfélög fyrir 1. október 2013 með það að markmiði að hægt verði að útfæra hana við gerð næstu kjarasamninga. Ályktun um kjaramál Ólafur og Elsa fengu bæði blóm frá stjórn félagsins.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.