Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Side 37
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 3. tbl. 89. árg. 2013 33
Ég hef alltaf haft áhuga á myndlist og hef lagt það í vana minn að
sækja söfn víða um heiminn. Margir listamenn sögunnar hafa heillað
mig og er Erró í miklu uppáhaldi. Oft hef ég hugsað að gaman
væri að skoða þessa veröld betur, skilja myndlist, gæði hennar og
eiginleika.
Aldrei hafði hvarflað að mér að mála, en svona gerast hlutirnir svo oft
í lífinu. Allt í einu dettur maður inn um aðrar dyr og fær aðra sýn á
veröldina og það er dásamlegt. Ég kynntist listamanninum Borghildi
Önnu og hef verið í einkatímum hjá henni í mörg ár, bæði í kennslu
í listasögu og málaratækni. Fyrst byrjaði ég að vinna með kolum en
svo tóku vatnslitirnir við. Þeir áttu ekki við mig, að vinna með akrýl er
það sem mér hentar best. Það er gott að mála, hvíla hugann, hlusta
á tónlist og vera í allt öðrum heimi. Loksins er ég farin að læra að
taka nokkur skref frá myndinni þegar ég mála, horfa vel, spá í litina og
skapa sögu í kringum hverja mynd fyrir sig. Heimur málaralistarinnar
er einstakur og maður er alltaf að læra eitthvað nýtt.
Það er ekki svo langt síðan ég lauk við þessa mynd en fyrir mér lýsir
hún ofbeldi, vanrækslu og misnotkun. Myndin nefnist EKKI SNERTA
MIG. Ofbeldi gagnvart börnum hefur lengi viðgengist vegna þagnar
og aðgerðaleysis samfélagsins.
Kristín Þórarinsdóttir er hjúkrunarfræðingur á heilsu gæslustöð
Seltjarnarness og rekur ásamt öðrum fyrirtækið PDCAráðgjafar. Það
sérhæfir sig í að aðstoða önnur fyrirtæki við að koma á fót stjórnkerfi
samkvæmt ISO 9001/2000gæðastaðlinum.
Kristín Þórarinsdóttir, stinasigga@gmail.com
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
OG LISTAMAÐUR
Ánægjulegt er að kynna fyrir lesendum Kristínu Þórarinsdóttur,
hjúkrunarfræðing á Seltjarnarnesi, en þegar hún stundar ekki
hjúkrun tjáir hún sig á striga.
Einn lesandi vildi koma því á framfæri
að oftast hefði verið talað um
saltvatnstæki. Það orð virðist hins vegar
hafa dottið út við einnotabyltinguna og
vökvagjafarsett komið í staðinn. Þegar
þessi lesandi og hjúkrunarkona kom
í vinnu eftir nokkurra ára hlé skildi hana enginn þegar hún spurði hvar
saltvatnstækin væru geymd.
Líklega hafa þessi margnota tæki sums staðar verið í notkun aðeins lengur
en talað var um í myndatextanum eða eitthvað fram á sjöunda eða jafnvel
áttunda áratuginn. Svo tóku einnota vökvagjafarsettin alveg við.