Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Side 42

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Side 42
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 3. tbl. 89. árg. 201338 Sigríður María Atladóttir, s.atla@talnet.is Mér var falið verkefni! Fyrstu viðbrögðin voru að afþakka boðið. Hvað hef ég fram að færa? Leið mín lá í líkamsræktina mína og fræi hafði verið sáð í huga minn. Á gráum steinvegg í líkamsræktarsalnum voru skilaboð sem ég ákvað að taka til mín. „Ef þú gerir alltaf það sama, hvernig geturðu þá búist við nýrri niðurstöðu?“ Einhver hafði hugsað til mín og treyst mér fyrir þessu verkefni og þá var auðvitað bara að vinda sér í það. Fyrst örlítið hik en svo ákvað ég að halda áfram og deila með lesendum hugleiðingum mínum um fjölskylduhjúkrun á vökudeild. Hverjum degi í starfi hjúkrunarfræðings fylgja vandasöm úrlausnarefni. Í starfi mínu á vökudeild mæti ég fjölskyldum í gleði og sorg. Fjölskyldan gleðst yfir nýju lífi, nýju upphafi. Flestir foreldrar hafa undirbúið komu barnsins í heiminn og hafa vonir um heilbrigðan nýbura. Fæstir búast við að upphafið sé á vökudeild. Það getur þess vegna verið krefjandi verkefni fyrir mig sem hjúkrunarfræðing að greina þarfir fjölskyldunnar varðandi stuðning og fræðslu. Sumar fjölskyldur hafa fengið undirbúning og vita að einhverju leyti við hverju er að búast en oft Sigríður María Atladóttir er hjúkrunarfræðingur á vökudeild Barnaspítala Hringsins. er innlögn barns á vökudeild óundirbúin eða með stuttan aðdraganda. Það er tvennt ólíkt að takast á við stór verkefni undirbúinn eða óundirbúinn. Þess vegna reynir oft á hjúkrunarfræðinginn að styðja við fjölskyldur með ólíkar þarfir og væntingar. Hlutverk hjúkrunarfræðingsins er svo margþætt og á vökudeild er hjúkrunarfræðingurinn málsvari barnsins og fjölskyldunnar á viðkvæmum tíma í lífi þeirra. Það myndast oft traust samband á milli fjölskyldu og hjúkrunarfræðings sem er forsenda þess að hjúkrunarfræðingurinn geti sinnt hlutverki sínu sem best. Barn getur þurft að leggjast inn á vökudeild vegna ýmissa vandkvæða sem upp koma í fæðingu eða eftir fæðingu. Stundum þarf nýburi einungis skammvinnt eftirlit eftir fæðingu en oft þarf barnið að dvelja vikum og jafnvel mánuðum saman á deildinni vegna fæðingar fyrir tímann eða alvarlegra veikinda. Eftir fæðingu ætti alltaf að reyna að komast hjá aðskilnaði móður og barns. Á fyrstu klukkustundunum og dögunum fer fram mikilvæg tengslamyndun hjá móður og barni sem er óneitanlega trufluð ef barn leggst inn á vökudeild. Það er mikil ábyrgð sem fylgir því að taka barn úr fangi foreldra og flytja það á vökudeild en stundum er það nauðsynlegt. Hjúkrunarfræðingur gegnir þarna mikilvægu hlutverki í að stuðla að samveru foreldra og barns og minnka þannig áhrifin sem aðskilnaður getur haft í för með sér. Með reynslu og þekkingu öðlast hjúkrunarfræðingurinn færni til að standa vörð um rétt barna og foreldra til samveru þar sem öryggi barnsins ÞANKASTRIK FJÖLSKYLDUHJÚKRUN Á VÖKUDEILD Skjólstæðingur hjúkrunarfræðings á vökudeild er ekki einungis litla nýfædda barnið heldur einnig fjölskylda þess. Hlutverk hjúkrunarfræðingsins er margþætt og á vökudeild er hjúkrunarfræðingurinn málsvari barnsins og fjölskyldunnar á viðkvæmum tíma í lífi þeirra. Þankastrik er fastur dálkur í blaðinu og höfundur hvers pistils stingur upp á þeim næsta. Í þankastriki gefst hjúkrunarfræðingum færi á að tjá sig um ýmislegt sem varðar hjúkrun og er þeim hjartfólgið. Pistlarnir geta fjallað um ákveðin málefni, sögur af kynnum við sjúklinga eða starfsfólk, eitthvað sem hefur orðið höfundum til hugljómunar eða hvaðeina annað sem tengist starfinu og hugmyndafræði þess.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.