Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Blaðsíða 59
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 3. tbl. 89. árg. 2013 55
Ritrýnd fræðigrein
SCIENTIFIC PAPER
kunna að felast meðal annars í fjölbreyttari vinnumarkaði og
áhrifum stefnumótandi ákvarðana varðandi sjúkrahúsþjónustu
LSH. Fjölbreyttara vinnuframboð á höfuðborgarsvæðinu gæti
skýrt að hluta til hvers vegna starfsfólk heilbrigðisstofnana í
nágrenni við höfuðborgarsvæðið hugsaði oftar um að hætta í
núverandi starfi en aðrir þátttakendur.
Meginstefna stjórnvalda er að sjúkrahúsþjónusta flytjist
einkum til LSH og sjúkrahússins á Akureyri og áherslan á
landsbyggðinni verði á heilsugæslu og þjónustu við aldraða
(Elsa B. Friðfinnsdóttir, 2011). Skortur á framtíðarsýn,
sameining heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni og tilfærsla
verkefna á undanförnum árum hefur leitt til atvinnuóöryggis
og fækkunar starfsfólks og hefur líklega neikvæð áhrif á líðan
heilbrigðisstarfsfólks almennt. Einnig getur ótryggt almennt
atvinnuástand í héraði haft neikvæð áhrif á framtíðaráform
gagnvart vinnustað þar sem atvinnumöguleikar maka hafa áhrif
á búferlaflutninga. Skipulagsbreytingar og sparnaðarráðstafanir
stjórnvalda geta þó ekki skýrt nema að vissu marki
óánægju starfsmanna með yfirstjórn stofnunar og líklega að
takmörkuðu marki óánægju með næsta yfirmann. Niðurstöður
rannsóknarinnar benda einnig til þess að í stjórnunarstíl
yfirmanna gætu legið skýringar á neikvæðum viðhorfum og
vanlíðan starfsfólks enda sýna rannsóknir að góð samskipti
við næsta stjórnanda skipta miklu máli fyrir starfsánægju og
líðan (Matzler og Renzl, 2006). Greinilegur landshlutamunur
í svörum um samskipti starfsfólks og yfirmanna bendir til
þess að í þessum samskiptum sé víða pottur brotinn og
að ástæður munarins geti hugsanlega legið í mismunandi
stjórnunarháttum eftir landshlutum. Niðurstöðurnar benda þá
til þess að sérstök ástæða sé til þess að huga að bættum
stjórnunarháttum deildarstjóra á hjúkrunarheimilum í nánd við
höfuðborgarsvæðið.
Takmarkanir rannsóknarinnar
Helstu takmarkanir rannsóknarinnar eru að eingöngu var
stuðst við spurningalista sem lagður var fyrir einu sinni. Einnig
mætti finna að því að Akureyri tók ekki þátt í rannsókninni. Þar
sem meðalstórar hjúkrunardeildir eru fáar um landið þurfti – til
þess að gæta persónuverndar – að greina frá svörum eftir
landshlutum en ekki einstökum stofnunum og torveldar það
nokkuð umræðu hvað varðar félagslega áhrifaþætti. Þrátt fyrir
takmarkanirnar má telja að rannsóknin sýni afstöðu og líðan
starfsfólks á hjúkrunardeildum í minni bæjarfélögum þar sem
niðurskurður hefur verið mikill og atvinnutækifæri kvenna eru
hugsanlega af skornum skammti. Áhugavert væri að endurtaka
könnunina til þess að meta áhrif áframhaldandi breytinga á
líðan heilbrigðisstarfsfólks þar sem niðurskurður og breytingar
hafa haldið áfram innan þessara stofnana allt til dagsins í dag.
ÁLYKTUN
Starfsánægja og líðan tengjast viðhorfum til stjórnunar. Starfsfólk
hjúkrunardeilda á landsbyggðinni er almennt ánægt í vinnunni
og kulnunar gætir lítið þrátt fyrir mikið vinnuálag, óánægju með
laun og sparnaðartengdar breytingar undanfarin ár. Munur
starfsstétta með tilliti til líðanar og afstöðu til stjórnunar er
lítill, en talsverður eftir landshlutum. Allir stjórnendur innan
heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni þurfa að vera meðvitaðir
um áhrif breytinga og stjórnunarhátta á líðan starfsfólks og
ánægju í starfi, ekki síst í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.
Þakkir
Sérstakar þakkir færum við heilbrigðisstarfsfólki deildanna
fyrir þeirra framlag og þátttöku í rannsókninni ásamt
hjúkrunarforstjórum heilbrigðisstofnananna fyrir aðstoð
við dreifingu og söfnun gagna. Sérstakar þakkir fá Hjördís
Sigursteinsdóttir, Guðmundur Kristján Óskarsson og Kjartan
Ólafsson fyrir tölfræðilega aðstoð. Rannsóknarsjóði Hrafnistu
og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga viljum við þakka
fjárhagslegan stuðning vegna verkefnisins.
Heimildir
Berg, A.M. (2006). Transforming public services – transforming the public
servant. International Journal of Public Sector Management, 19, 556
568.
Blythe, J., Baumann, A., og Giovannetti, P. (2001). Nurses’ experiences of
restructuring in three Ontario hospitals. Journal of Nursing Scholarship,
33 (1), 6168.
Bogaert, P.V., Meulemans, H., Clarke, S., Vermeyen, K., og Heyning, P.V.
(2009). Hospital nurse practice environment, burnout, job outcomes and
quality of care: Test of a structural equation model. Journal of Advanced
Nursing, 65 (10), 21752185.
Branham, L. (2005). The 7 hidden reasons employees leave. How to
recognize the subtle signs and act before it’s too late. New York:
Saratoga Institute.
Buchanan, D., Fitzgerald, L., Ketley, D., Gollop, R., Jones, J.L., Lamont,
S.S., Neath, A., og Whitby, E. (2005). No going back: A review of the
literature on sustaining organizational change. International Journal of
Management Reviews, 7 (3), 89205.
Dagrún Þórðardóttir (2006). Einelti á vinnustað: Samanburður
þriggja opinberra vinnustaða. Óbirt MSritgerð: Háskóli Íslands,
viðskiptafræðideild.
Elsa B. Friðfinnsdóttir (2009). Formannspistill. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 1
(85), 3.
Elsa B. Friðfinnsdóttir (2011). Áhrif efnahagskreppunnar á heilbrigðisþjónustu
og heilbrigðisstarfsmenn á Íslandi. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 5 (87),
2428.
European Agency for Safety and Health at Work (2003). Gender issues in
safety and health at work – a review. Sótt á http://agency.osha.eu.int/
publications/report/209/en/ ReportgenderEn.pdf.
Faragher, E.B., Cass, M., og Cooper, C.L. (2005). The relationship
between job satisfaction and health: A metaanalysis. Occupational and
Environmental Medicine, 62, 105–112.
Fischer, J.A.V., og SousaPoza, A. (2009). Does job satisfaction improve
the health of workers? New evidence using panel data and objective
measures of health. Health Economics, 18, 7189.
Fjármálaráðuneytið (2000). Ábyrgð, valdsvið og stjórnunarumboð
forstöðumanna ríkisstofnana. Nefndarálit. Reykjavík: Fjármálaráðuneytið.
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, Hólmfríður K. Gunnarsdóttir og Kristinn
Tómasson (2004). Work organization, wellbeing and health in geriatric
care. Work, 22, 4955.
Heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytið (2001). Heilbrigðisáætlun til ársins
2010: Langtímamarkmið í heilbrigðismálum. Reykjavík: Heilbrigðis og
tryggingamálaráðuneytið.
Hólmfríður K. Gunnarsdóttir, Kristinn Tómasson og Guðbjörg Linda
Rafnsdóttir (2004). Vinnuálag og líðan mismunandi starfshópa kvenna í
öldrunarþjónustu. Læknablaðið, 90, 217221.
Leiter, M.P., og Schaufeli, W.B. (1996). Consistency of the burnout construct
across occupations. Anxiety, Stress and Coping, 9, 229243.
Lorenz, V.R., Benatti, M.C.C., og Sabino, M.O. (2010). Burnout and stress
among nurses in a university tertiary hospital. Latin American Journal of
Nursing, 18 (6), 10841091.
Maslach, C., Schaufeli, W.B., og Leiter, M.P. (2001). Job burnout. Annual
Reviews, 53, 397422.