Þjóðmál - 01.03.2012, Side 7
6 Þjóðmál VOR 2012
gagnrýni Róberts Spanós, forseta lagadeildar
Háskóla Íslands, á undirréttardómnum sem
Hæstiréttur staðfesti . Engin ný gögn virðast
hafa komið fram sem réttlæta að málið
skyldi opnað aftur eftir að Baldri hafði verið
tilkynnt að rannsókn þess væri lokið . Fleiri
atriði í dómi Hæstaréttar orka tvímælis,
svo að vægt sé að orði komist . Þyngd refs
ing ar innar vekur sérstaka athygli . Fróð legt
verð ur að sjá hvernig dóm s tólarnir taka á
hinum raunverulegu hrun völdum, stjórn
endum og eigendum bankanna, eftir að hafa
dæmt embættismann í tveggja ára fangelsi
fyrir þann dómgreindar brest að selja hluta
bréf sín í banka á óheppilegum tíma punkti .
Miðað við þann dóm ættu hrunvald arnir að
fá þúsund ára fangelsisdóm upp á ameríska
vísu fyrir að hafa sett þjóð félagið á annan
endann, sökkt ríkissjóði í lang var andi skuldir
og svipt tug þúsundir manna eigum sínum .
Fáir menn hafa sætt grimmilegri aðför á
opinberum vett vangi en Baldur Guðlaugs
son . Í fjöl miðlum og á áhrifamiklum net
síðum hefur verið dregin upp fullkomlega
skrum skæld mynd af persónu hans . Hann er
sagður spilltur flokks jálkur sem eigi upphefð
sína að þakka dyggri flokksþjónustu og sé
hann í raun holdgervingur alls þess sem
aflaga fór í því sem kallað hefur verið „gamla
Ísland“ . Þeir sem þekkja til Baldurs og starfa
hans vita hins vegar að hann er grandvar og
vammlaus maður í hvívetna sem naut trausts
og virðingar fyrir lögfræði störf sín og þótti
einstaklega samviskusamur og skylduræk inn
embættismaður . Honum varð á augnabliks
dóm greindarbrestur og fyrir það galt hann
með starfi sínu, stórkostlegu eigna tapi og
mannorðsmissi í fjölmiðlum . Verður það
ekki að teljast ærin refsing fyrir gjörð sem
skaðaði ekki nokkurn mann?
Sú spurning vaknar óneitanlega hvort
dóm ararnir hafi látið undan dómstóli göt
unnar . Á það mun reyna fyrir mann rétt
inda dómstólnum í Strass borg . Spyrjum að
leikslokum .
Dómurinn í meiðyrðamáli hrunvalds ins Jóns Ásgeirs Jóhannessonar gegn Birni
Bjarnasyni, fyrrverandi ráðherra, vekur ekki
síður undrun . Það er hlálegt að dómar inn
skuli telja það neinu skipta fyrir mann með
orðspor Jóns Ásgeirs hvort hann sé sagður
hafa gerst sekur um fjárdrátt eða meiri háttar
bók haldsbrot . Dómarinn má þó eiga það að
hann telur æru Jóns Ásgeirs ekki mikils virði
(200 .000 kr .) . En eins og svo oft í dómum
á Íslandi er lítt eða ekki vikið að aðal atriði
málsins í þessum dómi . Höfundi bókar
verða á þau mistök að segja rangt frá í 1–2
atriðum um niðurstöðu dómsmáls . Þegar
athygli hans er vakin á missögninni biðst
Metsölubókin Rosabaugur yfir Íslandi eftir Björn
Bjarna son sem út kom snemma sumars 2011 . Máls
höfðun Baugsverja gegn höfundi bókar innar er, að
mati lögmanns Björns, liður í til raun um þeirra til að
þagga niður gagnrýni . Dapurlegt er ef dómstólarnir
leyfa þeim að komast upp með það .