Þjóðmál - 01.03.2012, Blaðsíða 62

Þjóðmál - 01.03.2012, Blaðsíða 62
 Þjóðmál VOR 2012 61 töldu þjóðinni enn á ný trú um, að þeir gætu stjórnað . Ekki sér fyrir endann á þeim ósköpum öllum, en vonandi nær Sjálf stæðis­ flokkurinn vopnum sínum á ný, þannig að þjóðin nái að koma sér upp úr þeim forarpytti sem vinstri öflin hafa grafið hana í . Helsta vegsemd Sjálfstæðisflokksins og jafnframt helsti vandi hans er, að hann hefur borið gæfu til að eiga mestu stjórnmálaleiðtoga þjóðarinnar innan sinna raða . Án þess að gert sé lítið úr öðrum formönnum flokksins, en allir hafa þeir átt sína góðu kosti, þá er það staðreynd að Jón Þorláksson, Ólafur Thors, Bjarni Benedikts­ son eldri og Davíð Oddsson eru sterkustu og bestu leiðtogar síðustu aldar; reyndar sat Davíð fram á þessa öld en hann er nú hættur afskiptum af pólitík, þótt hann tjái skoðanir sínar í frábærum ritstjórnargreinum sem vekja alltaf mikla athygli . Það er óvanalegt að svona lítil þjóð eignist fjóra afburðaleiðtoga á sömu öldinni, en vandi fylgir víst vegsemd hverri . En segja má það Sjálfstæðisflokknum til hróss, að sterkustu leiðtogarnir leita ávallt þangað . Ástæðan er vitanlega sú, að Sjálfstæðis­ flokkurinn á sér, einn flokka hér á landi, alvörustefnu til að fara eftir . Alvörumenn nenna ekki að taka þátt í einhvers konar þvælu sem helst gengur út á að ljúga sem mestu upp á pólitíska andstæðinga eins og vinstri flokkarnir gerðu og gera enn . Vandinn við góðan og sterkan leiðtoga er sá, að flokksmönnum hættir til að sofna á verðinum og þeir treysta um of á leiðtogann, fáir nenna að læra af honum og flokkurinn verður eins og strá í vindi þegar skipta þarf um forystu . Ýmsar umræður hafa átt sér stað innan flokksins, sumir vilja ástunda svokölluð samræðustjórnmál sem engu skila eða færa flokkinn inn á hina svokölluðu miðju . Samræðustjórnmál eiga ekki að þekkjast, því það eru svik við kjósendur að segja eitt í kosningabaráttu og breyta svo um stefnu til að þóknast öðrum flokkum þegar kjöri er náð . Sjálfstæðisflokkurinn á heldur ekki að færa sig inn á miðjuna, hún er ekki hans staður, enda er miðjan ekkert annað en vettvangur til þjónkunar við kjósendur og aðra flokka . Færa má rök fyrir því, eins og í upphafi var haldið fram, að Fjölnismenn hafi verið fyrstu boðberar sjálfstæðisstefnunnar, en það má aldrei hætta og aldrei gefast upp á að berjast fyrir frelsinu . Það er skylda okkar sjálfstæðismanna að standa vörð um sjálfstæði þjóðarinnar og að vera eldheitir boðberar frelsis, til athafna jafnt sem orða . Á tímum sem þessum, þegar margir vilja að þjóðin lúti erlendu valdi, þá er þörf á sterku afli sem berst gegn öllum hugmyndum sem takmarka frelsi okkar og möguleika til vaxtar og þroska . Sjálfstæðisflokkurinn verður að berjast fyrir frelsinu og aldrei má hvika frá því, hann á að tileinka sér eldmóðinn, sem Fjölnismenn áttu, í bland við stjórnvisku og kænsku Jóns Sigurðssonar . Vegsemd sína hlýtur hann af því, að sannfæra þjóðina um að tímar þóknunarstjórnmála séu liðnir undir lok . Framleiðslan stendur ekki undir loforðaflaumi stjórnmálamanna, við þurfum að hverfa frá eyðslustefnunni og hætta að þóknast ákveðnum hagsmunahópum, við eigum að þóknast stefnu okkar, heildar hags­ munum þjóðarinar og íslenskum ófæddum þegnum um ókomna tíð . Þetta gerum við með sparsemi og fyrir­ hyggju, lágum sköttum og frelsi á markaði og með því að varðveita sjálfstæði landsins . En við þurfum að vinna með öðrum þjóðum og eiga góð samskipti við þær, annars skríðum við í daunilla moldarkofa á ný . Góð og farsæl samskipti við aðrar þjóðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.