Þjóðmál - 01.03.2012, Blaðsíða 38
Þjóðmál VOR 2012 37
lánanefndar bankans . Lánanefndin var
kölluð saman í vikunni áður en neyðarlögin
voru sett og bankakerfið hrundi . Á
umræddum fundi var lagður fram listi með
óafgreiddum lánum og hann samþykktur,
þar á meðal voru umrædd lán .4
AlThanifléttan
Ólafur Ólafsson er vinur og veiðifélagi sjeiksins Mohamed bin Khalifa
AlThanis, bróður emírsins af Quatar,
en konungsfjölskyldan hefur haldið um
stjórnartauma í landinu í hálfa aðra öld . Al
Thani sér um fjárfestingar fyrir fjölskylduna
vítt og breitt um heiminn, en hann var
um tíma varaforsætisráðherra landsins og
fulltrúi þess í ráðherraráði OPEC, sam
taka olíuframleiðsluríkja . Quatar er ein
auðugasta þjóð veraldar en hún telur um
800 .000 manns .
Q Iceland Finance, eignarhaldsfélag í
eigu eignarhaldsfélags í eigu sjeiks AlThani
var skráð fyrir 5,01 prósenta eignarhluta í
Kaupþingi við fall bankans, en 22 . sept
ember 2008 keypti félagið 37,1 milljón
hluti á genginu 690 . Félag AlThanis var þar
með orðið þriðji stærsti hluthafi bankans .
Ólafur Ólafsson hafði milligöngu um
kaup Q Iceland Finance ehf . á eignarhlut
í Kaupþingi . Lán Q Iceland Finance var
fjármagnað með láni frá Ólafi sem aftur fékk
lán frá Kaupþingi . Kaupþing veitti Ólafi
Ólafssyni lán fyrir helmingi kaupverðsins í
gegnum félag Ólafs á Bresku Jómfrúareyjum,
tryggt með veði í bréfunum sjálfum og án
persónulegrar ábyrgðar hans .
Í kjölfar tilkynningar um að sjeikinn
hefði hug á að gerast stór hluthafi í bank
anum sendu stjórnendur bankans frá sér
orð sendingu til fjölmiðla þess efnis að um
trausts yfirlýsingu við bankann væri að
4 Sama heimild .
ræða . Við kaupin sagði Sigurður Einarsson,
stjórn ar for maður bankans:
Okkur er það sannkallað gleðiefni að bjóða
hans hátign Sheikh Mohammed Bin Khalifa
AlThani velkominn í hlut hafahóp Kaupþings
banka . Við höfum sífellt verið að laða að
okkur nýja fjárfesta og gleðjumst yfir því
hvernig stefna okkar um aukna fjölbreytni
í hluthafahópnum hefur borið ávöxt . Við
hlökkum til samstarfsins við hans hátign
Sheikh Mohammed í framtíðinni .
Og að sama tilefni lét AlThani svo um
mælt:
Við höfum fylgst náið með Kaupþingi í
nokkurn tíma og teljum þetta vera góða
fjárfestingu . Staða Kaupþings er sterk og við
höfum trú á stefnu bankans og stjórnendum,
en Kaupþingi hefur vegnað vel í núverandi
umróti og stjórnendur hans sannað að þeir geta
lagað sig að nýjum veruleika á bankamarkaði .
Við lítum á hlut okkar í Kaupþingi sem
langtímafjárfestingu og hlökkum til að eiga
góð samskipti við stjórnendur bankans í
framtíðinni .
Ólafur Ólafsson sagði um kaupin:
Ég er ekki í vafa um að þessi kaup munu
skipta miklu máli fyrir Kaupþing . Bankar
og fjármálafyrirtæki út um allan heim hafa
legið utan í mönnum í Katar með það fyrir
augum að fá þá inn sem hluthafa . Það gefur
því góða mynd af styrk Kaupþings að Sheikh
Mohammed [Bin Khalifa AlThani] skuli
kaupa hlut í bankanum . . .5
Í fyrrnefndri ákæru sérstaks saksóknara
eru tilgreind ummæli sem höfð eru eftir
Ólafi í Morgunblaðinu og 24 stundum
hinn 23 . september 2008, þar sem hann
sagði um kaup sjeiksins að þau væru „mikil
5 „Mun skipta miklu máli fyrir Kaupþing“ . 24
stundir, 23 . september 2008 .