Þjóðmál - 01.03.2012, Blaðsíða 90

Þjóðmál - 01.03.2012, Blaðsíða 90
 Þjóðmál VOR 2012 89 stjórnmálum en þegar festa ríkir í stjórnar­ fari og efnahagur blómgast . Hún segir: „Með hæfilegri einföldun má því segja að kreppur í víðum skilningi hafi kallað fram efasemdir um stjórnskipunina, þar á meðal þingræði; þegar Íslendingar hafa leitað skýringa á því sem fór úrskeiðis, eða leiða til að ráða bót á erfiðleikum, hafi þeir meðal annars beint sjónum að þingræðinu .“ Ragnheiður telur að fyrir bankahrunið hafi borið á „stjórnmálakreppu sem leiddi til aukinnar umræðu um grunnþætti ís­ lenskrar stjórnskipunar, ekki síst vald þingsins gagnvart framkvæmdavaldinu og um valdsvið og hlutverk forseta . Þá miklu umræðu sem varð um nauðsyn nýrrar stjórnarskrár og stjórnlagaþings í lok árs 2008 og fram að kosningum 2009 verður að skoða í því ljósi . Stjórnkerfiskreppan átti sér nokkurn aðdraganda .“ Undir það má taka með Ragnheiði að efnahagskreppan varð vatn á myllu þeirra sem vildu breyta stjórnarskránni og helst án þess að alþingi ætti þar hlut að máli eins og fram kom í tillögum Jóhönnu Sigurðar­ dóttur um stjórnlagaþing eftir að hún varð forsætisráðherra 1 . febrúar 2012 . Í því felst hins vegar mikil blekking að unnt sé með breytingu á stjórnarskrá að hindra hrun á borð við það sem hér varð haustið 2008 . Ragnhildur Helgadóttir segir „óheppi­ legt“ að fræðileg merking hugtaksins þingræði skuli vera allt önnur og þrengri en almenna merkingin . Hún ræðir hina fræðilegu merkingu eða að þingið „ráði því í reynd hverjir sitji í ríkisstjórn“ og veltir fyrir sér spurningunni um hvað sé — vegna þing ræðisins — „skylda að gera eða gera ekki þannig að það sé lögbrot ef vikið er frá því“ . Þingræðisreglan er með öðrum orðum laga regla sem ber að virða . Hún segir að hér á landi hafi „verið talið að þingræðisreglan sé regla með stjórnarskrárígildi þótt ekki sé hún skýrt skráð í stjórnarskrá“ . Vandinn hér sé því ekki sá hvort þingræðisreglan sé bindandi „heldur hvað felist í henni“ . Ragnhildur leitast við að skýra inntak regl­ unnar og tekur ýmis dæmi til skoðunar úr íslenskri stjórnmála­ og stjórnskipunarsögu, meðal annars til að athuga hvort ekkert sé „brot á þingræðisreglu í íslenskum rétti nema að hunsa vantrauststillögu sem hefur verið samþykkt á Alþingi“ . Hún nefnir sem dæmi að það sé heppilegast að ráðherra eða ríkisstjórn sem óskar eftir traustsyfirlýsingu en fær hana ekki víki . Það sé hins vegar óljósara hvort það sé beinlínis lögbrot eða brot á þingræðisreglu ef það er ekki gert . Hér skulu þessi álitamál ekki reifuð en Ragnhildur hefur í ýmsu tilliti aðra fræðilega skoðun í þessum efnum en forverar hennar í stjórnlagafræðinni . Hún rökstyður mál sitt á einfaldan og skýran hátt og dregur fram að fræðilega einstigið er ekki alltaf auðratað og að sýna verði aðgát þegar til dæmis er leitast við að skýra hvort til sögunnar séu komnar óskráðar reglur sem öðlast hafi ígildi stjórnarskrárákvæða og verði því ekki beitt nema með breytingu á stjórnarskrá . Ein þessara reglna er að dómstólar eigi síðasta orð um hvort lög brjóti í bága við stjórnarskrá eða ekki . Segja má að reglan gangi ekki síður inn á valdsvið þingmanna en synjunarvald forseta sem þó styðst við 26 . gr . stjórnarskrárinnar . Túlkun fræði manna, sem leiðir til þess að þeir telja stjórnar skrár reglu hafa mótast, verður að sækja styrk í góð rök . Hljóti reglan viðurkenningu takmar kar hún svigrúm lýðræðislega kjörinna fulltrúa til að setja lög sem brjóta í bága við regluna . Forvitnilegt er að lesa það sem Þorsteinn Magn ús son hefur að segja um alþingi og sam teng ingu þings og ríkisstjórnar, hún hafi verið svo sterk að tala megi um vissa samþættingu valdaþáttanna, löggjafarvalds og framkvæmdavalds . Hún hafi „kristallast í því að þeir stjórnmálaflokkar sem mynda meirihluta á Alþingi hverju sinni og standa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.