Þjóðmál - 01.03.2012, Blaðsíða 87
86 Þjóðmál VOR 2012
Bókadómar
_____________
Skyldulesning um
stjórnarhætti, alþingi
og stjórnmál
Ragnheiður Kristjánsdóttir, Ragnhildur
Helgadóttir, Stefanía Óskarsdóttir og Þorsteinn
Magnússon: Þingræði á Íslandi – samtíð og saga.
Forlagið, Reykjavík, 2099, 497 bls .
Eftir Björn Bjarnason
Þess var minnst á hátíðlegan hátt 1 . febrúar 2004 að 100 ár voru liðin frá því
að heimastjórn kom til sögunnar á Íslandi
og Stjórnarráð Íslands var stofnað . Í tilefni
af því var meðal annars efnt til athafnar í
Þjóðmenningarhúsinu og þrjú bindi af
rit verkinu Stjórnarráð Íslands 1964–2004
afhent . Ríkisstjórnin beitti sér fyrir ritun
verksins undir ritstjórn Sumarliða Ísleifs
sonar sagnfræðings .
Opinberir aðilar létu ekki við þetta eitt
sitja við fræðiritun og rannsóknir í tilefni af
hinum merku tímamótum í stjórnmála og
stjórnskipunarsögunni . Upphaf þingræðis á
Íslandi er formlega rakið til þess að ráð herr
ann varð íslenskur með búsetu hér á landi
1 . febrúar 1904 og í tilefni 100 ára afmæli
þingræðisins ákvað forsætisnefnd al þingis
að standa að ritun bókar um þing ræði á
Íslandi í 100 ár . Þriggja manna ritstjórn
verksins var skipuð í desember 2005 . Í henni
sátu Helgi Skúli Kjartansson, prófessor í
sagnfræði, Ragnhildur Helgadóttir, laga
prófessor og formaður ritstjórnar, og Þor
steinn Magnússon, stjórnmálafræðingur
og að stoðar skrifstofustjóri alþingis . Setti
rit stjórn sér það markmið að „ritið yrði
heild stætt, læsilegt og m . a . yrði fjallað um
upp runa þingræðisins, eðli og inntak þing
ræðis reglunnar, sögu þingræðis almennt og
á Ís landi og framkvæmd þess hér á landi“ .
Þessari stefnu ritstjórnarinnar var hrundið
í framkvæmd á þann veg að bókinni er skipt
í fjóra hluta: I . Þingræði í sögulegu og al
þjóðlegu samhengi; II . Þingræðisreglan í
ís lenskri stjórnskipun; III . Þingræði í fram
kvæmd á Íslandi og IV . Staða Alþingis í
meiri hluta þingræði .
Fjórir höfundar skipta því á milli sín að
skrifa um þetta efni:
Ragnhildur Helgadóttir prófessor ritar II .
hluta bókarinnar í tveimur köflum: Þing
ræðis reglan og staða hennar í stjórn skip un
inni og Framkvæmd þingræðis regl unnar .
Þorsteinn Magnússon aðstoðarskrifstofu
stjóri ritar fyrsta kafla bókarinnar: Almenn
merking orðsins þingræði og síðan loka
hluta hennar þar sem kaflarnir eru þrír auk
inn gangs: Samþætting meginvaldaþátta rík
isins; Samþætting valdaþáttanna og hlut
verk Alþingis; Samþætting valdaþáttanna
og þróun Alþingis auk niðurstöðukafla .
Ragnheiður Kristjánsdóttir ritar þrjá kafla í
I . hluta bókarinnar: Drög að þjóðríki á 19 . öld
og þingræði 1904; Þing, konungsvald og stjórn
1904–1918 og Efasemdir um þingræði .
Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræð
ingur ritar tvo kafla í I . hluta: Þingræði