Þjóðmál - 01.03.2012, Blaðsíða 15

Þjóðmál - 01.03.2012, Blaðsíða 15
14 Þjóðmál VOR 2012 afgreiðslu stjórnskipunar­ og eftirlitsnefndar í bréfi til forsætisnefndar alþingis eftir að málinu hafði verið vísað til ráðsins . Í bréfinu gerir Salvör „alvarlegar athugasemdir“ við það hversu fyrirvarinn til að kalla saman stjórnlagaráð sé skammur og hversu óskýrt hlutverk fyrirhugaðs fundar ráðsins sé, „bæði um hvað hann eigi að fjalla og hverju hann eigi að skila“ . Þá segir Salvör: „Vert er að geta þess að ekkert samstarf var haft við stjórn stjórnlagaráðs við mótun þingtillögunnar .“ Að því er stefnt á alþingi að meðferð þess á stjórnlagatillögum verði lokið fyrir 29 . mars svo að leggja megi málið undir þjóðaratkvæði samhliða forsetakosningum 30 . júní 2012, en þrír mánuðir þurfa að líða frá því að þjóðaratkvæðagreiðsla er boðuð þar til hún fer fram . Í ályktun alþingis um atkvæðagreiðsluna er ekki vikið einu orði að um hvað hún skuli snúast heldur segir aðeins: „Alþingi skal standa fyrir víðtækri kynningu á efni þeirra tillagna og spurninga sem bornar verða upp í þjóðar­ atkvæðagreiðslu, sbr . 6 . gr . laga um fram­ kvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna .“ Í þessari lagagrein segir: „Alþingi skal standa fyrir víðtækri kynningu á því málefni sem borið er undir þjóðaratkvæði skv . 1 . mgr . 1 . gr . Forsætisnefnd Alþingis skal setja nánari reglur um fyrirkomulag kynningar .“ Ályktun þingsins ber með sér uppgjöf meirihluta þess í glímunni við tillögur stjórnlagaráðs . Meginreglan samkvæmt lögunum um þjóðar atkvæðagreiðslur er að leggja skal fyrir kjósendur spurningu sem þeir geta svarað með því að segja já eða nei . Hvernig unnt er að fara að þessari reglu þegar um er að ræða skjal með meira en 100 greinum sem auk þess eru hvorki ræddar til fulls eða samræmdar er óljóst eins og allt annað í þessu máli . Allir fræðimenn í lögum sem tekið hafa til máls opinberlega um afgreiðslu meirihluta alþingis á tillögum stjórnlagaráðs lýsa undrun og hneykslun yfir málsmeðferðinni . „Mér finnst þetta vera allsherjar handarbakavinna og í raun algjört klúður,“ sagði Sigurður Líndal, prófessor við Háskólann á Bifröst, í Morgunblaðinu 24 . febrúar 2012 . „Eins og málin standa í bili, að það takist að leysa þetta á einum mánuði . Ég held það myndi jaðra við almættisverk . Ég tel að það sé einfaldlega ekki tími til þess að leggja þetta fyrir þjóðina þannig að hún geti tekið vitræna afstöðu . Það er kjarni málsins . Tíminn er of stuttur og málið of vanbúið til að hægt sé að greiða atkvæði um það . Ég tel ekki að það sé hægt að leysa það á einum mánuði .“ Undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur og þeirra sem fylgja henni eins og blindir kettlingar er borin von að skynsamlega verði staðið að breytingu á stjórnarskránni . Jóhanna rakst á vegg þegar hún ætlaði að svipta alþingi hlutverki stjórnarskrárgjafa fyrir kosningar í apríl 2009 . Hún hefur síðan reynt að bjarga þessu hjartans máli sínu fyrir horn . Til þessa hefur þetta brölt kostað þjóðina um einn milljarð króna . Þessari vegferð er því miður ólokið . Forsætis­ ráðherra ræðir málið eins og um heilagt stríð sé að ræða . Ábyrgð þeirra er mikil sem taka ekki fram fyrir hendur ráðherrans . IV . A ðildarviðræðurnar við ESB mjakast áfram án þess að ríkisstjórnin hafi gert grein fyrir samningsmarkmiðum sínum í landbúnaðarmálum eða sjávarútvegsmálum . Steingrímur J . Sigfússon fór til Brussel 25 . janúar 2012 til að votta framkvæmdastjórn ESB virðingu sína og sýna að til sögunnar væri kominn ráðherra „stóru“ meginmálaflokkanna sem gæti skipst á skoðunum við þá . Stein­ grímur J . segir þingmönnum að þegja þegar spurt er um efnislegt erindi hans til Brussel . Til þessa hefur ekkert verið að marka tíma setningar sem ráðherrar nefna vegna aðildarviðræðnanna . Hvers vegna skyldi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.