Þjóðmál - 01.03.2012, Blaðsíða 96

Þjóðmál - 01.03.2012, Blaðsíða 96
 Þjóðmál VOR 2012 95 Væri Ísland í Evrópusambandinu og gengi samrunastefnan til þess endapunkts, sem trúuðustu samrunamennirnir þrá, mætti með sanngirni segja, að staða hins íslenska Alþingis yrði mjög áþekk því, sem hún var á fyrstu dögum hins endurreista þings, fyrir 150 árum . [ . . .] Um daga Jónasar Hallgrímssonar var mikill munur á móðurríkinu, Danmörku og hinum hrímhvíta kletti, hinum kalda klaka ríkisins í norðri . Munurinn á aumasta koti og hárri höll nægir vart til samanburðar á Reykjavík og Kaupmannahöfn árið 1845 . En hvorki Jónas skáld né Jón forseti efuðust eitt augnablik um tilverurétt þjóðar sinnar, þrátt fyrir það og því síður flögraði að þeim, að þessi þjóð gæti ekki séð málum sínum borgið, fengi hún til þess traust og tækifæri . Nú, 150 árum síðar, getur Ísland borið sig kinnroðalaust saman við hvaða þjóð sem er . Þetta land hefur ótal kosti, sem margur þráir, sem annars staðar býr . Því er þyngra en tárum taki, þegar velmenntað og velmeinandi fólk er uppfullt af vanmetakennd fyrir þjóðarinnar hönd . Þeir, sem lengst ganga, segja að Ísland geti í besta falli nýst sem verstöð til að tryggja þjóðinni mannsæmandi líf í útlöndum .“ Auðvelt er að komast að þeirri niðurstöðu að Páll oftúlki orð Davíðs svo að vægt sé til orða tekið . Forsætisráðherra sagði til dæmis hvergi að aðild að ESB jafngilti „svikum við Jón forseta“ . Þegar lesinn er kafli bókarinnar um Evrópusambandið blasir tvennt við: Í fyrsta lagi hve fráleitt er að túlka orð Jóns Sigurðssonar í bréfi til bróður síns á þann veg að í því felist stuðningur við ESB­aðild . Þegar Þorsteinn Pálsson vitnaði til þeirra árið 1989 stóð Íslendingum til boða að gerast aðilar að innri markaði Evrópubandalagsins án þess að ganga í bandalagið . Það gekk síðan eftir með samningnum um evrópska efnahagssvæðið árið 1992 . Það er mikill munur á því að mæla með frjálsum viðskiptum og aðild að fjórfrelsinu innan Evrópubandalagsins og vilja aðild að ESB . Í öðru lagi að í umræðunum um ESB­aðild er Jón Sigurðsson tákngervingur fyrir að Íslendingar geti staðið á eigin fótum og átt góð samskipti við aðrar þjóðir, þetta tvennt eru ekki andstæður . Í því felst hins vegar alls ekki að Íslendingum sé nauðsynlegt að ganga í ríkjasamband á leið til sambandsríkis í Evrópu . Í umræðum um stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna og framtíðarmarkmið má stundum heyra að það sé til marks um afdalamennsku að benda á Jón Sigurðsson eða önnur stór nöfn í Íslandssögunni máli sínu til stuðnings . Þjóðerniskennd sem brjótist fram á þennan hátt eða annan sé ekki í takt við tíðarandann „úti í hinum stóra heimi“ eða eigi ekki upp á pallborðið hjá fræðimönnum .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.