Þjóðmál - 01.03.2012, Page 13
12 Þjóðmál VOR 2012
gæta þjóðhagslegrar hag kvæmni og lang
tímasjónarmiða, huga þyrfti að atvinnu
frelsi í greininni og að hagsmuna aðilar
fengju eðlilegan aðlög un ar frest að breyttu
fyrirkomulagi . Yrðu gerðir „samningar um
nýtingu afla heim ilda og þannig gengið
formlega frá því að auðlindinni væri ráðstafað
af ríkinu gegn gjaldi og að eignarréttur ríkisins
væri skýr“, svonefndir „nýtingarsamningar“ .
Afla heimild um yrði skipt í „potta“ þar sem
annars vegar væru afla hlu tdeildir og hins
vegar bætur og ívilnanir . Tilgangur þeirrar
leiðar var að tryggja réttlátari skiptingu og
dreifingu afla heim ildanna .
Hinn 19 . maí 2011 lagði Jón Bjarnason,
sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, fram
frumvarp til laga um stjórn fiskveiða . Eftir
að mælt hafði verið fyrir frumvarpinu og það
hlotið umræðu var því vísað til sjávar útvegs
og landbúnaðarnefndar alþingis . Nefndin
sendi frumvarpið til umsagnar til fjölda aðila
og á fjórða tug þeirra skilaði inn umsögnum .
Mikill ágreiningur varð um frumvarpið, sem
náði inn í raðir allra þingflokka . Í stuttu máli
hlaut frumvarpið hroðalega útreið og stóð
ekki steinn yfir steini í því eftir að umsagnir
höfðu borist . Var því einfaldlega kastað út af
borðinu . Þótt um stjórnarfrumvarp væri að
ræða og það því ekki lagt fram án samþykkis
allra ráðherra líkti Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra frumvarpinu síðar við
„bílslys“ .
Frumvarpið hlaut meðal annars þá
einkunn að það mundi kollvarpa rekstri
sjávarútvegsfyrirtækja, eigið fé sjávarútvegs
fyrirtækja mundi lækka um 181 milljarð
yrði frumvarpið að lögum .
Eftir að þingnefnd hafði endursent
frum varpið til Jóns Bjarnasonar í sept
ember 2011 setti hann á laggirnar enn
einn hópinn . Jón kynnti ríkisstjórninni
vinnu skjöl þessa hóps síns þriðjudaginn
22 . nóvember 2011 . Föstudaginn 25 . nóv
ember 2011 var ákveðið að fela Katrínu
Jakobs dóttur menntamálaráðherra og Guð
bjarti Hannessyni velferðarráðherra að fara
yfir vinnuskjölin . Spunaliðum Samfylk
ingar innar þótti nokkru skipta að setja
þessa málsferð í neikvætt ljós fyrir Jón
Bjarnason . Í fréttum RÚV sunnudaginn
27 . nóvember 2011 var fullyrt að málið
hefði verið „tekið af“ honum . Þess var látið
ógetið að það yrði ekki gert nema hann yrði
sviptur ráðherraembætti . Jón var rekinn úr
ríkisstjórn 31 . desember 2011 .
II .
Jóhanna Sigurðardóttir sagði í RÚV 27 . nóvember 2011 að Jón Bjarnason hefði
haldið allri ríkisstjórninni og þingflokkun
um utan við gerð þeirra skjala sem hann lagði
fyrir ríkisstjórnina þrátt fyrir ítrekaðar óskir
Samfylkingarinnar um að koma að þessu
máli og Jón hefði hunsað aðkomu annarra
úr stjórnarliðinu að þessu verki . „Þetta eru
auðvitað vinnubrögð sjávarútvegsráðherra
sem eru algjörlega óásættanleg og ekki
boðleg í samskiptum flokkanna,“ sagði
Jóhanna í RÚV 27 . nóvember 2011 .
Taldi hún Jón „kominn ansi fjarri stefnu
flokkanna í sjávarútvegsmálum“ og ljóst
væri að þetta frumvarp óbreytt yrði aldrei
lagt fram sem stjórnarfrumvarp .
Í ræðu á flokksstjórnarfundi Samfylk ing
ar innar 28 . janúar 2012 sagði Jóhanna Sig
urðar dóttir að frumvarp um breytt fisk veiði
stjórn unarkerfi yrði lagt fyrir alþingi í febrúar
2012 ef allt gengi eftir . Vaxandi sam staða
væri meðal stjórnarflokkanna um út færslur
og unnið væri að lokafrágangi málsins,
áður en látið yrði „til skarar skríða“ . Ættu
breytingarnar að nást í gegn í tíð þessarar
ríkisstjórnar, yrði að afgreiða málið á því
þingi sem nú situr enda hæfist síðasta fisk
veiði ár þessa kjörtímabils í september 2012 .
Morgunblaðið leitaði álits Steingríms J .
Sigfússonar, sjávarútvegs og landbúnaðar