Þjóðmál - 01.03.2012, Side 16

Þjóðmál - 01.03.2012, Side 16
 Þjóðmál VOR 2012 15 það breytast fram að kosningum 2013? Sendiherra Íslands gagnvart ESB segir aðildarviðræðurnar á „sann gjarnri leið“ . Íslenska ríkisstjórnin hefur hvorki vald á efni né tíma þegar rætt er við ESB: ráðherraráð sambandsins ræður ferð inni . Þórir Ibsen sendiherra staðfestir það í samtali við EurAktiv 24 . febrúar 2012 . Allt tal ríkisstjórnarinnar um samráð vegna ESB­viðræðnanna hefur reynst mar k­ laust . Hinn 7 . nóvember 2011 var til dæmis skýrt frá því að skipuð hefði verið þriggja manna stjórn í samráðsnefnd sem alþingi krafðist 16 . júlí að yrði sett á lagg irnar . Þegar þetta er skrifað í lok febrúar 2012 hefur samráðsnefndin ekki enn verið skipuð . V . J óhanna Sigurðardóttir reyndist lægsti samnefnari innan Samfylkingar innar þegar flokkurinn heimtaði forsætisráð herra­ embættið af Sjálfstæðisflokknum í lok jan­ úar 2009 . Þingflokkurinn samþykkti hana af því að Jóhanna beitti neitunarvaldi sínu gegn öðrum en sjálfri sér . Að þingflokk urinn bjóði þjóðinni forystumann sem heldur ekki betur á spilunum en staða fyrrgreindra þriggja meginmála ríkisstjórnarinnar sýnir er áfellisdómur yfir þingmönnum Sam­ fylkingarinnar . Hlutur þingmanna VG er þó jafnvel verri því að þeir láta gjarnan eins og allt sem er hjartans baráttumál Jóhönnu sé þeim á móti skapi, engu að síður styðja þeir hana til forsætisráðherrastarfa . Neikvæð afstaða í garð sjálfstæðismanna og annarra andstæðinga ríkisstjórnarinnar er líftaug stjórnarsamstarfsins . Það er borin von að sú neikvæðni leiði til jákvæðra stjórnar­ athafna . Vilji stjórnarflokkarnir í raun leiða meginbaráttumálin þrjú til lykta ættu þeir fyrst að skipta um forsætisráðherra . FLUGFÉLAG ÍSLANDS MÆLIR MEÐ því að borða nesti í Lystigarðinum á fallegum sumardegi eða renna sér niður Hlíðarfjall í púðursnjó á fallegum vetrar­ degi. Á Akureyri er hver dagur öðrum fegurri og framburður innfæddra er einstaklega fagur. Prófaðu að panta bauk af kóki á akureysku og hlauptu svo í hláturskasti upp kirkjutröppurnar. Akureyri flugfelAg.isAlltAf ódýrAri á netinu pAntA ðu í d Ag ekki á morg un á flu gfelA g.is netti lboð Nú er

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.