Þjóðmál - 01.03.2012, Side 19
18 Þjóðmál VOR 2012
þeir með þessu viljað koma í veg fyrir að
forsetinn freistaðist til inngripa í þau mál
með vísan til lagaheimilda sem ef til vill
mátti hártoga .
Smám saman jókst togstreitan á milli
Davíðs og Ólafs Ragnars . Tengdist það
átökum í stjórnmálum og viðskiptalífi á
sama tíma . Forsætisráðherra og margir
nánir samstarfsmenn hans upplifðu það
svo að forsetinn drægi taum stjórnar and
stöðuflokkanna og hóps kaupsýslu manna
sem vildu stokka upp spilin í viðskipta lífinu
og komast sjálfir þar til áhrifa .
Það var í þessu andrúmslofti ákveðinnar tortryggni og vaxandi andúðar sem farið
var að skoða hvaða fyrirbyggjandi ráðstafnir
mætti gera til að Ólafur Ragnar gæti ekki
misbeitt forsetavaldinu . Eitt af því sem þá
var staldrað við var orðalag drengskapar heits
ráðherra sem minnst var á í upphafi .
Drengskaparheitið hafði verið nær
óbreytt frá því Ísland laut Danakonungi .
Nýr ráðherra undirritaði svohljóðandi
texta við embættistöku á ríkisráðsfundi:
„Ég undirritaður sem skipaður er ráðherra
í ríkisstjórn Íslands lofa hér með og heiti
því að vera forseta Íslands trúr og hlýðinn,
halda stjórnskipunarlög landsins og gegna
trúlega og dyggilega skyldum þeim, er
framannefnt embætti og veitingarbréf
leggja mér á herðar .“ Slíkan texta hafði
Davíð Oddsson sjálfur undirritað alla sína
ráðherratíð, síðast við skipan ráðuneytis
síns eftir þingkosningarnar vorið 2003 . En
einhverjar efasemdir hafa sótt á hann þetta
sama ár; hefur hann kannski hugsað með
sér að þetta gamla orðalag gæti einn daginn
orðið uppspretta einhverra æfinga eða
tilraunastarfsemi á vegum forsetans . Þegar
haldinn var ríkisráðsfundur á Bessastöðum
á gamlaársdag, þar sem Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir skyldi taka við embætti
menntamálaráðherra, mætti forsætisráð
herra með breytt skjal á fundinn . Ekki mun
hann hafa kynnt Ólafi Ragnari hinn nýja
texta fyrr en komið var á Bessastaði .
Drengskaparheitið, sem Þorgerði Kat
rínu var falið að undirrita, hljóðaði svo:
„Ég undirrituð sem skipuð er ráðherra í
ríkis stjórn Íslands lofa hér með og heiti
því að halda stjórnskipunarlög landsins og
gegna trúlega og dyggilega skyldum þeim,
er framan nefnt embætti og veitingarbréf
leggja mér á herðar .“
Hér höfðu orðin „heiti því að vera forseta
Íslands trúr og hlýðinn“ verið felld á brott .
Ólafur Ragnar Grímsson gerði athuga
semd við þessa breytingu, en ókunnugt
er hvort það var á fundinum sjálfum eða
áður en gengið var til hans . Davíð Odds
son svaraði með því að benda á að dreng
skaparheitið byggðist á ákvæði í 20 . grein
stjórnarskrárinnar . Þar segir „Embættis mað
ur hver skal vinna eið eða dreng skap ar heit að
stjórnarskránni .“ Hvergi væri kveðið á um
að embættismenn, þ .m .t . ráð herrar, hétu því
að vera forsetanum trúir og hlýðnir .
Þar við sat . Forseti Íslands mun ekki hafa
gert frekari rekistefnu út af þessu máli, en
vafalaust hugsað sitt .
Davíð Oddsson lét af embætti forsætisráðherra haustið 2004 . Þá um
sumarið hafði Ólafur Ragnar beitt laga
synjunarvaldi í fyrsta sinn í sögu for seta
embættisins og varð af því mikið írafár eins
og flestum er í fersku minni . Vorið 2007
var mynduð ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
og Samfylkingar . Og fyrir þremur árum
myndaði Jóhanna Sigurðardóttir nýja
stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna .
En Ólafur Ragnar sat áfram á forsetastól á
Bessastöðum . Þá vaknar sú spurning hvort
eftirmenn Davíðs á forsætisráðherrastóli
hafi horfið aftur til fyrra horfs með orðalag
drengskaparheitsins . Vel má hugsa sér að
forsetinn hefði beitt sér fyrir því . En í svari