Þjóðmál - 01.03.2012, Side 53
52 Þjóðmál VOR 2012
David Owen, nú Owen lávarður, fyrrverandi leiðtogi frjálslyndra og
jafnaðarmanna í Bretlandi og utanríkis
ráðherra, leggur til að Bretar vinni að því að
koma á tvískiptu Evrópusambandi (ESB),
víðu og þröngu . Þeir verði sjálfir í hinu
víða samstarfi ásamt EESríkjunum, Tyrk
landi og fleirum . Hugmyndir sínar kynnti
hann nýlega í ræðu í Peterhouse College í
Cambridge og birtust þær m .a . í grein í
tímaritinu The Spectator 24 . febrúar 2012 .
Owen segir að Angela Merkel Þýska
lands kanslari líti á nýgerðan ríkisfjármála
samn ing 25 ESBríkja sem stökkpall yfir í
nýjan sáttmála um samstarfið innan ESB í
stað Lissabonsáttmálans . Markmið hennar
sé að fella ESBmál og innanlandsmál ESB
ríkja undir sama hatt .
Þá minnir hann á að Viviane Reding,
dómsmálastjóri ESB, hafi lagt til að ný
ríkjaráðstefna verði kölluð saman til að
undirbúa nýjan sáttmála fyrir ESB í því
skyni að stofna til þess samstarfs sem sé
Merkel að skapi . Reding vilji að ESBþingið
verði sannkallað löggjafarþing og þar megi
menn hafa frumkvæði að nýrri löggjöf en séu
ekki háðir frumkvæði framkvæmdastjórnar
ESB eins og nú er . Þingið kjósi einnig
framkvæmdastjórn ESB . Hinn nýi sáttmáli
liggi fyrir árið 2016 og verði staðfestur árið
2019 með gildistöku árið 2020, enda hafi
tveir þriðju aðildarríkjanna samþykkt hann .
Þau ríki sem ekki vilji samþykkja hina nýju
skipan yrðu aukaaðilar með aðild að innri
markaðnum .
Owen segir að ýmsir breskir stjórn mála
menn, þar á meðal hann sjálfur, hafi hvatt
til þess allt frá 1978 að Evrópusamstarfið
yrði deildaskipt . Hann segir að það hafi
verið mistök hjá David Cameron á leið
togafundinum í Brussel 8 . og 9 . des emb
er 2011 að neita að taka þátt í gerð ríkis
fjármála samningsins, hann hefði átt að eiga
fulltrúa við gerð samningsins en hafna aðild
að honum eftir að hann lá fyrir fullgerður .
Þá hefðu Bretar komið að því sjónarmiði að
samningurinn dygði ekki til síns brúks og
það yrði að koma til þess pólitíska samruna
sem Merkel tali nú um til að bjarga evru
samstarfinu . Owen segir:
Tvískipt ESB — vítt og
þröngt
Evrópuvaktin
_____________