Þjóðmál - 01.03.2012, Page 72
Þjóðmál VOR 2012 71
Sendu Kress og aðrir þeir fangar, sem nú
voru lausir og búsettir höfðu verið á Íslandi,
þegar kveðjur frá Gautaborg til fjölskyldna
sinna á Íslandi .31 Fangarnir voru síðan fluttir
til Þýskalands . Að styrjöld lokinni hóf Kress
1945 kennslu í skólum í Mecklenburg,
nyrst á hernámssvæði Rússa . Íslensk kona
hans, Kristín Anna Kress, hafði eftir mikið
þóf útvegað honum leyfi til að snúa aftur til
Íslands .32 Kom hún að sækja hann haustið
1947, þar sem hann bjó í smáþorpinu
Rambeel austur af Lýbiku .33 En Kress vildi
ekki hverfa aftur til Íslands . Í Þýskalandi
hafði hann kynnst tíu árum yngri konu,
Margarete Peetske, sem átti einn son fyrir .
Þau Kress og Kristín Anna skildu að lögum
1950, og Kress kvæntist óðar Margarete
og eignaðist með henni tvær dætur, Elke
og Anke . Nú hafði Þýska alþýðulýðveldið,
DDR, verið stofnað á hernámssvæði Rússa,
og stjórnuðu kommúnistar þar með harðri
hendi í skjóli Rauða hersins . Kress varð
brátt skólastjóri í bænum Redewisch, rétt
austan landamæranna við VesturÞýskaland .
Í grenndinni var háskólinn í Greifswald, og
þar hafði starfað Norræn stofnun, Nordische
Institut, allt frá 1918 . Stofnunin var endur
reist árið 1954, og varð norrænufræðingur
inn dr . Ruth Dzulko forstöðumaður . Hún
hafði stundað íslensku nám í Háskóla Íslands
1937–1938 og talaði málið reiprennandi .34
Öryggismálaráðuneyti AusturÞýskalands,
Bruno Kress var félagi nr . 3 .401 .317 í þýska nas ista
flokknum . Á meðan hann var styrkþegi rann sókn ar
stofnunar SS, Ahnenerbe, undirritaði hann jafnan bréf
til hennar með Hitlerskveðju .
Stasi, hafði rækilegt eftirlit með þegnum
ríkisins . Það fór þess á leit við Dzulko, að hún
njósnaði um starfssystkini sín . Dzulko vildi
ekki gera það og flýði vestur á bóginn 1955 .
Þá var málfræðingur einn fenginn til að veita
stofnuninni forstöðu til bráðabirgða, en
1956 var virtur mið aldafræðingur, dr . Hans
Friedrich Rosen feld, ráðinn forstöðumaður .
En hann var tregur til að beita stofnuninni í
þágu komm únista, svo að stjórn flokksdeildar
komm únista í Rostockhéraði ákvað í árs
byrjun 1957 að víkja honum frá og ráða
Bruno Kress í hans stað . Í skýrslu til flokks
deildarinnar um þær mundir skrifaði Kress:
Prófessor Rosenfeld hafði engan skilning á
nýjum verkefnum og sjónarmiðum stofn
unarinnar . Hann vildi ekki víkka svið
norrænna fræða út yfir hið málvísinda
lega, var ófús að veita forstöðu stofnun
með stjórnmálaverkefni og lét eins og til
væru stofnanir, sem ekki hefðu einhver
stjórnmálaverkefni .35
Næstu ár vann Kress ósleitilega með yfir
manni flokksdeildarinnar í Rostockhéraði,
Karli Mewis (sem hafði dvalist í nokkur
ár í Svíþjóð og hafði sérstakan áhuga á
Norðurlöndum), að því að „víkka svið
norrænna fræða út yfir hið málvísindalega“ .
Sænskulektor, sem ekki var þóknanlegur
kommúnistum, var til dæmis rekinn, en
þrír lektorar ráðnir í Norðurlandamálum .
Það var eitt fyrsta verk Brunos Kress,
eftir að hann varð forstöðumaður Norrænu
stofnunarinnar í Greifswald, að taka upp
samband við íslenska kommúnista og sósíal
ista . Ritstjórar Þjóðviljans, Magnús Kjart
ansson og Magnús Torfi Ólafsson, heim
sóttu hann í boðsferð vorið 1958 . „Dr . Kress
er maður hressilegur og talar reiprennandi
íslensku,“ skrifaði Magnús Torfi í blað sitt .36
Í maí 1958, skömmu eftir heimsókn þeirra
nafna til Greifswald, hélt Kress til Íslands í