Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Blaðsíða 3
bls. 3
Meistari Megas ætlar að leggja land undir fót um
páskana með Passíusálmana í farteskinu. Stefnan
er sett á Skálholt en þar ætlar meistarinn að flytja
sálmana (í það minnsta nokkra þeirra) á föstudaginn
langa við undirleik valinna tónlistarmanna. Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem Megas fæst við sálmana,
hann segist hafa burðast með þá frá árinu 1973
þegar hann flutti þá fyrir fullu húsi í Nýlistasafninu.
Hann endurtók leikinn tólf árum síðar í Gamla bíói
og aftur var húsfyllir. Passíusálmatónleikar í Austur-
bæjarbíói ári síðar gengu hins vegar ekki eins vel.
„Þeir urðu mér fjárhagslega næstum um megn,“
segir Megas, „enda hef ég enga smjörlíkisgerð á
bak við mig.“ Engu síður finnst honum kominn tími
til að reyna aftur, því „guð vill það“.
„Auðvitað eru Passíusálmarnir mér kærir, þeir
eru hluti af Íslendingnum,“ svarar Megas þegar
spurt er um viðhorfið til viðfangsefnisins. Í hans
huga eru þetta uppreisnarljóð og sýna embættis-
mannahatur. „Þemað er að valdsmenn séu af því
slæma,“ útskýrir hann. Megas á ekki erfitt með að
velja uppáhaldssálminn: „Númer 25, eins og hjá
öllum öðrum,“ segir hann en bætir þó við sálmum
númer 30, 31 og 36.
Það er ýmislegt fleira fram undan hjá Megasi.
Strax eftir páska verður dagskrá í kaffistofu Nýlista-
safnsins þar sem hann mun kynna og flytja hljómorð
af nýjum geisladiski sem ber titilinn Haugbrot:
Glefsur úr neó-reykvískum raunveruleika. Efnið er
sótt í skáldsögu Megasar, Björn og Sveinn – eða
makleg málagjöld (Mál og menning 1994) og í
óbirtan prósa eftir hann. Útgáfa disksins er í
höndum Eddu en áætlað er að hann komi út um leið
og fólk er búið að jafna sig eftir Passíusálmana, eins
og Megas orðar það. Hann áréttar að þetta sé ekki
kynning á skáldsögunni, aðeins glefsur úr henni.
Haugbrot er ekki hefðbundinn tónlistardiskur,
undirleik við lestur Megasar annast Pollock-bræður,
Michael og Daniel, auk Guðlaugs Kristins Óttars-
sonar og Hilmars Arnar Hilmarssonar sem að sögn
Megasar „sér um að gera raunveruleikann raun-
verulegan með hljóðum“.
„Ég sá Mikka (Pollock) einu sinni lífga við annars
leiðinlegan texta og hugsaði með mér að ég gæti
ekki farið í gröfina fyrr en ég væri búinn að láta hann
lyfta undir prósa hjá mér,“ segir Megas um tilurð
disksins.
Mikið mun einnig bera á Megasi í haust því að
um miðjan september verður sett þing í Nýlista-
safninu, í samvinnu vefritsins Kistunnar (kistan.is)
og safnsins, helgað höfundarverki hans í tónlist,
myndlist og ritlist. Þingið mun standa í tvær vikur;
haldin verða málþing og efnt til tónlistarkvölda, auk
tónleika með Megasi. Fjöldi þekktra listamanna
mun koma fram. Nýlistasafnið verður lifandi allan
tímann og þar verða uppákomur af ýmsu tagi: Mál-
þing, tónlistaratriði, gjörningar, upplestur, kvik-
myndasýningar, tónleikar og fleira.
Megas sjálfur segist hins vegar ekki hafa
hugmynd um hvað gera eigi á þinginu, eða „réttar-
haldinu“ eins og hann kallar það.
Ó synd, ó syndin arga,
hvað illt kemur af þér.
Ó, hvörsu meinsemd marga
má drottinn líða hér.
Þitt gjald allt þetta er.
Blindað hold þig ei þekkti,
þegar þín flærð mig blekkti.
Jesús miskunni mér.
Úr 25. Passíusálmi eftir Hallgrím Pétursson
Passíusálmar og Haugbrot
Passíusálmar og Haugbrot
Margmiðlaður Megas
G8126 tmm mars 22x27 Q.4.1 3/30/01 11:45 PM Page 3