Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Blaðsíða 58

Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Blaðsíða 58
Í skjóli raunveruleikans Íslenskar glæpasögur í lögreglurannsókn Karl Steinar Valsson Íslenskt samfélag hefur tekið umfangsmiklum breytingum á síðustu áratugum, mannlífið orðið fjölbreytilegra og upplýsingabyltingin hefur sett mark sitt á það. Þegar ég var spurður að því fyrir skömmu hvernig mér litist á að setja fáein orð á blað um það hvernig íslenskar sakamálasögur endur- spegluðu þann raunveruleika sem lögreglumenn sjá í starfi sínu fannst mér hugmyndin strax mjög spennandi. Ekki síst vegna þess að ég hef í gegnum tíðina lesið mikið af sakamálasögum, mest erlendum vegna þess hversu fáar innlendar bækur hafa verið til af því tagi. Og lestur þeirra hefur ekki alltaf fallið mér í geð og frásagnirnar ekki alltaf gengið upp í mínum huga. Þetta er þó að breytast til betri vegar, bæði eru innlendir reyfarar orðnir fleiri og gæði þeirra hafa stóraukist. Svo allrar sanngirni sé gætt má þó segja að íslenskt samfélag hafi þar til fyrir fáum árum verið svo einlitt og fábreytt að það hafi ekki gefið mikil tækifæri til þess að skapa þar lifandi og trúverðugar frásagnir af æsilegum sakamálum. En hvað skyldi búa að baki þessari þróun? Öllum er ljóst að umfjöllun um lögreglumál og mál tengd afbrotum hefur aukist verulega hér á landi. Að hluta til er það vegna stóraukinnar fjölmiðlunar, að hluta til vegna aukins upplýsingastreymis frá yfirvöldum, meðal annars vegna áhuga almennra borgara á þessum málaflokki. Á lögreglu hvílir, eins og yfir- völdum almennt, meðal annars sú skylda að fræða almenning um þróun afbrota og samhliða því hvað gera megi til að hindra afbrot og fjölgun þeirra eins og kostur er. Þótt það kunni að þykja einkennilega til orða tekið af lögreglumanni, þá hefur aukin tíðni afbrota og fleiri alvarleg sakamál gefið rithöfundum miklu meiri möguleika en áður til þess að sviðsetja trúverðuga glæpasögu í íslenskum samtíma. Það er kannski hið eina „jákvæða“ við þessa þróun á Íslandi. Fyrsta afbrotasaga sem kom upp í huga minn í þessu sambandi var Svartfugl Gunnars Gunnars- sonar sem lengi hefur verið ein af mínum uppá- haldsbókum. Þar eru raunverulegir atburðir settir á svið með sterkri persónusköpun og skírskotað til frumheimilda um sakamál. Svartfugl kom fyrst út á íslensku 1938 og mun vera að koma út í nýrri útgáfu á þessu ári. Í þeirri bók sýnir Gunnar okkur að hægt er að byggja á raunverulegum heimildum og halda tryggð við staðreyndir, en búa jafnframt til grípandi frásögn. Þessi frásagnarmáti er reyndar þekktur í nútímabókmenntum og má líka vísa í Grámosann glóir eftir Thor Vilhjálmsson sem einnig byggir að miklu leyti á raunverulegum atburðum. Fleiri kvikmyndir kalla á góðar saka- málasögur Allar götur síðan Svartfugl kom út má segja að áhrifamiklar sakamálasögur í íslensku umhverfi hafi verið afar fáar, þar til á síðasta áratug. Að mínu mati má ótvírætt rekja þá þróun að hluta til sífellt fleiri kvikmynda um sakamál. Oftar en ekki eru þær byggðar á bókum og hafa þannig skapað mikla spurn eftir sakamálasögum Fyrir nokkrum árum hefði verið nánast útilokað að skrifa bók eða frásögn um morð og sviðsetja hér á landi. Frásögnin hefði þótt ótrúverðug og ekki verið líkleg til að halda athygli lesenda, sem vissu sem var að morð voru afar fátíð í íslensku samfélagi og jafnvel mörg ár liðu án þess að nokkurt morð væri framið á Íslandi. Þessu er nú öðruvísi farið, því alvarlegum afbrotum hefur fjölgað verulega og mörg þeirra eru vel skipulögð og undirbúin. G8126 tmm mars 22x27 Q.4.1 3/30/01 11:55 PM Page 58
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.