Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Blaðsíða 18

Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Blaðsíða 18
tengslum við og það er þessi líkami sem skapar líf og hlýju í verkin hans þó að umgjörðin virki tæknileg og kaldranaleg. Verkið Pocket Ocean er óður til vatnsins. Við erum vatn og við sækjum í vatn meðal annars til þess að upplifa kyrrðina. Vatnið býr einnig yfir hreyfingu og hraða rétt eins og líf okkar í erli stórborg- anna. Í verkinu Pocket Ocean var tækni skemmti- lega beitt til þess að skapa upplifun af vatni. Nafn verksins og markmið þess komust vel til skila bæði í sterkri sviðsmynd og frábærum dansi. Vatnið birtist okkur í sviðsmyndinni á tvennan hátt. Öðrum megin á sviðinu hékk skermur niður úr loftinu og á hann var varpað upptöku af beljandi fljóti. Hinum megin var svartur renningur fram sviðið með vatni í. Tilvist vatnsins þar varð þó ekki skýr fyrr en einn dansarinn sullaði meira vatni í renninginn og gáraði vatnsflötinn. Vatnsrenningurinn var á góðum stað, því annars vegar skapaði hann orku í sýning- una með því að dansararnir þurftu að stökkva yfir vatnið á leiðinni út af sviðinu og hins vegar skapaði spegilslétt vatnsyfirborðið kyrrð og ró. Dansinn inn og út af sviðinu var einnig í samhljómi við straum árinnar á tjaldinu. Tengsl myndbandsupptöku og dans er orðið þekkt tæknileg útfærsla í danssýn- ingum sem og tengsl dansins við aðra nútímatækni eins og skuggamyndir, hljóðblöndun, tölvugrafík o.s.frv.. Gömul útfærsla og ný var síðan að láta skuggamynd dansara birtast í straumiðu beljandans. Speglun á hreyfingu vatnsins á gólfinu upp á vegginn skapaði mynd sem minnti á það þegar barn leikur sér í flæðarmálinu og var yndisleg leið til þess að tengja tæknina við náttúruna. Pocket Ocean er í grundvallaratriðum óhlut- bundið verk. Í því leitast höfundur við að skapa stemningu með hjálp tækni og hreyfinga fremur en að segja sögu eða að tjá mannlegar upplifanir. Verkið bjó samt yfir mannlegum og hlýjum skírskot- unum. Dansinn sjálfur er fjölbreyttur; í hópatriðum dansa dansararnir í ákveðinni samfellu einfaldar og endurteknar hreyfingar. Síðan eru kaflar þar sem leikræn tjáning og raddbeiting gegnir mikilvægu hlutverki. Í samdansatriðum (kontaktdansi) má bæði sjá fallegt samspil á milli karl- og kvendansara og líka kröfugra samspil tveggja karldansara. Að lokum voru sóló sem drógu fram persónulegan stíl þeirra sem dönsuðu. Fjölbreytni í þjálfun lykilatriði Rui Horta tekur fram í viðtali að íslensku dansararnir, sérstaklega þeir þrír sem fara með aðalhlutverkin, hafi persónulega lagt mikið af mörkum í sýninguna. Þessi orð endurspegla vel hve samvinna dans- höfunda og dansara er mikilvæg þegar nútíma- dansverk eru samin. Áhersla er lögð á persónulega túlkun dansaranna og danshöfundurinn sækir hugmyndir að útfærslu atriða í færni og stíl þeirra dansara sem hann vinnur með hverju sinni. Fjölbreytni í þjálfun og kennslu er lykilorð í dans- menntun auk þess sem nemendur fá bæði að kynnast því að dansa og skapa dans í náminu. Bæði er það til þess að einstaklingurinn geti skapað sér sinn eigin stíl sem dansari og unnið með ólíkum danshöfundum og til þess að hver og einn geti bæði samið og sýnt. Nútíma danssköpun byggist ekki á neinni fyrirfram skilgreindri fagurfræði eða líkamlegum tjáningarmáta heldur hefur hver dans- höfundur sína sérstöðu. Þó að verkin tvö sem Íslenski dansflokkurinn frumsýndi 3. mars væru eftir ólíka höfunda þá myndaði sýningin heild. Það mátti finna samhljóm í tónlistinni í báðum verkunum. Í fyrsta lagi komu fram kaflar þar sem tónlistin minnti á upptökur úr vélsmiðju, þung og taktföst högg og bakgrunnshljóð eins og í rafsuðutækjum. Í öðru lagi var tal notað sem undirspil í báðum sýningunum. Báðar eru þessar útfærslur algengar í nútímadanssýningum. Sviðsuppsetning og búningar voru samsvarandi. Í báðum tilfellum var sviðið í grundvallaratriðum í svart/hvítu og ferningsformið áberandi. Hjá Horta var það hvíti skermurinn og vatnsferningurinn en hjá Strömgren ljósgeislarnir sem gáfu fernings- tilfinninguna. Í báðum verkum voru dansararnir í venjulegum fötum. Í Pocket Ocean voru það sport- leg strandföt í dempuðum gulum og bláum litum en í Kraak voru strákarnir í jakkafötum og stelpurnar í buxum og blússum. Vatnið er mikilvægt tákn í báðum verkunum. Hjá Rui Horta er vatnið sýnilegt sem mikilvægur hluti af sviðsmyndinni en hjá Jo skynjum við nálægð þess með eyrunum. En þrátt fyrir sameiginleg einkenni voru verkin ólík því Pocket Ocean var eins fágað og dýrasti demantur en Kraak Een, Kraak Twee líktist meira skartgripum sem fást á götutorgum Evrópu, hrátt og ópússað í afslappaðri umgjörð. Líta má á veröld vestræns nútímalistdans sem heild óháða landamærum. Danshöfundar og dansarar og danshópar ferðast mikið milli landa og skapa með því sterk tengsl og sameiginleg markmið. Sýning Íslenska dansflokksins fellur innan þessarar skilgreiningar því að þar voru tveir danshöfundar af ólíku þjóðerni að semja verk fyrir flokk sem hefur bækistöðvar í þriðja þjóðlandinu. G8126 tmm mars 22x27 Q.4.1 3/30/01 11:48 PM Page 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.