Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Blaðsíða 13
Engill alheimsins bls. 13
Blóm á leiðið
Vitfirringurinn segir
að það sé búið
að jarða sig
Á hverjum sunnudegi
fer hann upp í kirkjugarð
og setur blóm á leiðið
Frelsi
Þið sem talið um frelsi,
maður getur verið frjáls
innan fangelsismúra
eða í spennitreyju.
Frjáls að lesa blóm hugans,
frjáls í hengingarsnöru,
frjáls í myrkri,
frjáls á sorphaug lífsins.
Elskað og verið elskaður,
sameinast og verið sameinaður,
lifað og verið útlifaður,
dáið og endurfæðst,
skynjað hjól tilverunnar,
sem er allt allsstaðar.
Halldór Laxness
Í gljúfrasteini býr hann
ljúfastur manna
öðlingurinn mikli
sei sei jú
mikil ósköp
Heim ég hann sótti
með vini mínum
í 14 stiga gaddi
Inn var oss boðið
spjölluðum saman
sei sei jú
mikil ósköp
Betri mann
hvar er að finna
stórskáldið góða
Hundurinn minn er orðinn gamall
og hættur að bíta
og trén í garðinum eru orðin stór
sei sei jú
mikil ósköp
Gaf okkur kaffi
vindla og kökur
brosti svo blíður
og sagði okkur sögur
sei sei jú
mikil ósköp
G8126 tmm mars 22x27 Q.4.1 3/30/01 11:47 PM Page 13