Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Blaðsíða 14

Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Blaðsíða 14
Myndir þýða eitthvað –um ljósmynd ársins, Ara Magg og Leni Riefenstahl Ásgrímur Sverrisson Er ég sá eini sem finnst ljósmyndin sem nýlega var kjörin „besta mynd ársins“ af blaðaljósmyndurum orka tvímælis? Þarna er um að ræða auglýsinga- mynd vegna uppsetningar á tónverkinu Baldri eftir Jón Leifs. Á henni sjást tveir föngulegir ljóshærðir karlmenn niður að brjóstkassa og beinist mynda- vélin mót þungbúnum himni. Ekkert er við ljós- myndina að athuga, nema síður sé, að undanskildu einu atriði: því sögulega samhengi sem hún vísar í. Fagurfræði hennar kemur beina leið úr skóla Leni Riefenstahl, þeirrar merku kvikmyndagerðarkonu, hvers nafn og verk eru órjúfanlega tengd hinum þýska nasisma og drauminum um þúsund ára ríkið. Nú er í sjálfu sér ekkert að því að fá lánað; „ef þú þarft að stela, steldu frá þeim bestu,“ segir mál- tækið og kannski er það tilfellið hér. Ef við gefum okkur að ljósmyndarinn, Ari Magnússon, og/eða aðrir hugmyndasmiðir í kringum hann, þekki söguna og séu meðvitaðir um hvað þeir eru að vitna í, má ætla að þankagangurinn hafi verið eitthvað á þessa leið: „Baldur – norræn goðafræði – ragnarök – nasisminn – Leni Riefenstahl – Jón Leifs – Þýskaland á nasistatímanum – hálfgerð ragnarök hjá honum líka ha? Flott tenging, ekki spurning, kýlum á þetta.“ Hér væri þá semsagt um að ræða einhvers konar „Nazi chic“, að vitna í íkónógrafíu þjóðernis- sósíalista vegna ákveðinnar yfirborðstengingar en ekki síður vegna flottheitanna. Þetta var jú ansi smart hjá þeim á sínum tíma – svona fagurfræðilega séð. Útkoman er plakat fyrir merkan menningar- viðburð sem dreift var um alla borg síðasta sumar. Ljósmynd sem er eins og klippt út úr Olympíu eða Sigri viljans, þessum tveimur meistaralega gerðu heimildarmyndum sem skópu orðstír Riefenstahl og myndgerðu nasismann. Þekki ljósmyndarinn hins vegar ekki söguna er það þyngra en tárum taki og nær að verðlauna mynd- ina sem „klúður ársins“ eða eitthvað þess háttar. Hins vegar tel ég þetta ekki vera tilfellið því ekki þarf annað en að horfa til þeirrar ljósmyndar sem valin var „tískuljósmynd ársins“ og er eftir sama mann til að átta sig á uppruna andagiftarinnar. Ég veit að nú er pólitísk afstæðishyggja lenska og allt sem máli skiptir dregið stórlega í efa. Það er gott og blessað en hér vil ég staldra við. Mér hættir nefnilega til að taka fullt mark á myndmáli sem tjáningarmáta og hér fæ ég ekki varist þeirri hugsun að ef til vill sé verið að færa mér skilaboð sem mér hugnast lítt – hugmyndir um æðri kynþætti, ofur- mennarækt, skipulögð þjóðarmorð, þrælahald, einræði hins sterka og fleira miður geðslegt – en allt einhvern veginn óvart og jafnvel fyrir misskilning. Eða hvað? Er þetta ekki bara sniðug hugmynd, vel útfærð og framsett? Er ekki of langt gengið að saka höfund myndarinnar um að breiða út fagnaðarerindi nasista? Jú, enda er það fjarri mér. En hvar afstaða hans liggur til þeirra hugmynda sem verk hans vísar í er mér ekki alveg ljóst. Finnst honum samhengið rökrétt? Er þetta ádeila? Ögrun? Eða finnst honum þetta bara smart? Þá er hægt að spyrja á móti: Dæmir ekki hver fyrir sig? Segir ekki meðal annars í úrskurði dómnefndar að myndin veki „fjölda spurninga um tilveru mannsins og vegferð hans“? Er ekki bara ágætt að myndin veki mann svona til umhugsunar? En til umhugsunar um hvað? Hvaða spurningar eru það sem vakna um tilveru mannsins og vegferð hans þegar horft er á þessa ljósmynd? Norræn goðafræði geymir vissulega margar slíkar vanga- veltur og látum heita að verið sé að vísa þangað í orðum dómnefndar. En hvað með afstöðu ljósmynd- arans / listamannsins til viðfangsefnis síns? Leyfist honum að valsa um listasöguna og fá hitt og þetta lánað sem honum finnst smart? Án tillits til þess samhengis sem slík verk voru gerð í? Og án tillits til G8126 tmm mars 22x27 Q.4.1 3/30/01 11:47 PM Page 14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.