Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Blaðsíða 37

Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Blaðsíða 37
Viðtal: Þetta er afar skrítin þjóð! bls. 37 Var þetta viðhorf til Dana ekki nauðsynlegt til að koma sjálfstæðismálum í gegn? „Þetta var ákveðin sjálfstyrking,“ viðurkennir Guðmundur. Kannski er þetta að snúast við. Samsamar unga fólkið sig ekki fremur útlendingum en fortíðinni? Þorgerður tekur undir það að vissu leyti. „Það er auðvitað í gangi ákveðin markaðssetning á landinu,“ segir hún, „og þá er ekki verið að höfða til sögunnar. Það er hreinleikinn sem gert er út á, hreinleiki náttúrunnar. Það eru enn einhverjar hugmyndir í gangi um þjóðgarðinn Ísland. Því er haldið fram að Reykjavík sé hreinasta borg í Evrópu sem er mikið kjaftæði. Það liggur við að maður þurfi stundum grímu á leið í vinnuna á morgnana. En þetta er samt eitthvað sem við erum að reyna að markaðssetja.“ Guðmundur minnir á að markaðssetning sé samspil milli markaðarins og þess sem verið er að selja. Annar aðilinn reyni að selja það sem hinum finnist hann þurfa á að halda. „Útlendingar hafa engan áhuga á íslenskri sögu síðari tíma og því þýðir ekkert að selja hana,“ segir hann. „Við getum hins vegar selt sögurnar á einhvern hátt en náttúran er það sem menn vilja. Fólki sem býr í borgum erlendis finnst notalegt að vita af því að til sé land sem er hreint.“ „…Og með nægilegt olnbogarými,“ bætir Sigurður við. „Þess vegna eru ferðamálafrömuðir mjög reiðir yfir því að verið sé að byggja álver þar sem sést til þeirra,“ segir Guðmundur, „það þykir hins vegar allt í lagi ef þau eru í felum, jafnvel þótt mengunin sé sú sama. Það er í lagi að eyðileggja náttúruperlur ef þær sjást ekki.“ Nútímamenningin vekur mikla athygli Sigurður situr hugsi og skerpir á kaffinu. „Er það tilfellið að ungt fólk hugsi meira um útlönd en Ísland?“ spyr hann. „Ég held að það sé örugglega rétt að það samsami sig meira útlendingum en Íslendingum fortíðarinnar,“ svarar Guðmundur. „Ég held að ungt fólk hafi bara ekki minnsta áhuga á þessari nálægu sögu, Jóni Sigurðssyni og sjálfstæðisbaráttunni til dæmis.“ „Það breytir samt ekki samkennd okkar sem þjóðar,“ segir Sigurður og vill líta jákvæðum augum á erlenda strauma, sem hann minnir á að skili sér í báðar áttir. Hingað sé til dæmis að safnast menntafólk úr öllum áttum. Hann nefnir líka þá byltingu sem hefur orðið í þýðingum á íslenskum bókmenntum. Yfir sjötíu íslenskir höfundar hafi fengið heil verk eftir sig birt á ýmsum tungumálum. Íslenskar bækur séu lesnar út um allan heim. Guðmundur tekur undir með honum og bendir á að íslensk nútímamenning veki heimsathygli, til að mynda Björk og íslenskar popphljómsveitir. „Viðurkenningin kemur þó alltaf að utan,“ segir Sigurður. „Sjáið þið Jón Leifs. Nú er hann viður- kenndur um allan heim.“ „Það þarf nú að skoða Jón Leifs og hvernig hann er búinn til sem þjóðartónskáld á síðustu tíu árum,“ segir Guðmundur. „Maður setur þetta nú ekki beinlínis á fóninn þegar maður kemur heim á kvöldin.“ „Þetta er eins og ég sagði með speglunina,“ segir Þorgerður. „Það er eitthvað í íslenskri list sem menn finna ekki í sinni eigin list,“ segir Sigurður. „Töfraraun- sæið til dæmis er jafngamalt bókmenntahefð okkar, fyrir mörgum útlendingum er þetta framandi. Það var töfraraunsæi í Íslendingasögum og Laxness notaði það í Sjálfstæðu fólki.“ „Enda var það ein af forsendunum fyrir Nóbelsverðlaununum að hann væri að túlka gamla sagnahefð,“ segir Guðmundur. Róttæknin er ekki til lengur Við höfum verið að leita að einkennum þjóðarinnar, er ekki eitt þeirra að Íslendingar tuða yfir öllu? „Ekki alveg öllu,“ svarar Sigurður. „En jú við erum ógurlega þrasgjörn. Auðvitað er stéttaskipting í „Þið eruð að rústa mína eigin ímynd um Íslendinga sem ótrúlega vinnusama.” Þorgerður Þorvaldsdóttir G8126 tmm mars 22x27 Q.4.1 3/30/01 11:53 PM Page 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.