Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Blaðsíða 28
fyrirsögn
undirfyrirsögn
Brynhildur Þórarinsdóttir
Ósýnilega konan
sg tríóið leikur og syngur
Sigurður Guðmundsson, Ósýnilega konan, bls. 13 . Útgefandi Mál og menning 2000
Ég er með sama líkamann: er gráhært, sköllótt, nota númer
46 af skóm, hef penis, er kvænt, á fjögur börn og 8 barnabörn, og svo framvegis.
Ég er ekki rómantískt en hef gaman af einstaka tegund rómantíkur. Skoðanir mínar eru í lausu
formi, ekki fígúratívar, ekki epískar. Þær eru líkari hráefnum en þeim hlutum sem unnir eru úr þeim.
Skoðanirnar geta verið einsog hveiti, egg, salt, mjólk, smjör og sykur. Nú – langi mig að bjóða sjálfu mér
og öðrum uppá pönnukökur þá hræri ég 2–3 egg útí hveiti þangað til ég er komið með kekklaust deig,
bæti svo mjólk útí meðan ég held áfram að hræra, set ég örlítið af salti og sykri með og enda svo á
smá skammti af bræddu smjöri, svo að ég þurfi ekki smjör á pönnuna til að losa frá. Ég býð
þeim sem vilja uppá pönnsur en mundi ekki beint kalla pönnuköku skoðun
mína, -þótt það væri kannski ekki svo vitlaust.
G8126 tmm mars 22x27 Q.4.1 3/30/01 11:51 PM Page 28