Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Síða 39

Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Síða 39
Viðtal: Þetta er afar skrítin þjóð! bls. 39 fyrirbæri,“ endurtekur Guðmundur. „Þegar við horfum í kringum okkur snýst öll umræða um það hvernig við búum til hina fjölþjóðlegu þjóð sem er auðvitað allt annað en að öll þjóðin sé eins. Við sjáum að Frakkar eru alveg gríðarlega stoltir af fótboltalandsliðinu sínu sem er ekki síst vegna þess hversu fjölbreytilegt það er. Ég held að fótboltinn sé að verða eitt af fáum táknum sem geta sameinað þjóðir. Þar skapast þessi tilfinning að allir litir regnbogans geti verið heild.“ Þjóðsönginn heyrir maður ekki nema á landsleikjum í dag, er þörf fyrir þessi gömlu tákn? „Já hiklaust,“ segir Guðmundur. „Þjóðsöng og fána.“ „Það er svo annað mál hvort það þurfi að vera sálmur,“ bætir Sigurður við um leið og kaffið klárast. Það er samt engan þjóðsöng að fá í túristabúðinni í anddyri Þjóðmenningarhússins, – hvorki sálminn hans Matthíasar né „Ísland er land þitt“ með Pálma Gunnarssyni. Þar fæst hins vegar plusshundur með hringaða rófu og sperrt eyru, lítill, loðinn selur – mjallhvítur og hreinn, „eins og náttúra landsins“, og sérkennileg brúnleit tuskuskepna sem að líkindum er íslenski hesturinn í miðju brokki. Tákn þeirrar fleygiferðar sem þjóðin er á í nútímanum? Málin ræddu: Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði, Sigurður A. Magnússon, rithöfundur, og Þorgerður Þorvaldsdóttir, sagn- og kynjafræðingur. Brynhildur Þórarinsdóttir stýrði umræðunum. G8126 tmm mars 22x27 Q.4.1 3/30/01 11:53 PM Page 39

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.