Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Síða 47
Margrét Tryggvadóttir: Hvítar hetjur og svartur skratti bls. 47
ánægja sem þar virðist ríkja. Lífið gengur sinn
vanagang og allir vinna störf sín með bros á vör.
Einnig er athyglisvert að leikheimar forskóla-
barna eru fyrir bæði kynin og staða kynjanna innan
hvers heims er nokkuð jöfn. Reyndar ber meira á
karlfígúrum í hinu opinbera lífi, t.d. á lestarstöðvum
og í lögreglunni og þær eru oftar gerendur. (Hafa ber
í huga að þessar staðhæfingar byggjast á athugun-
um á auglýsingaefni og umbúðum, en ekki leik
barnanna sjálfra). Karlarnir keyra bíla, fljúga
flugvélum og stýra krönum, en kvenfígúrurnar eru
oftar farþegar. Þó má einnig sjá karlmenn inni á
heimilum og í LEGO var til skamms tíma hægt að
kaupa ryksjúgandi pabba.
Í evrópskum leikfangaheimum fyrir yngstu börnin
eru fígúrurnar yfirleitt ljósar á hörund. (1) Í bandarísk-
um leikheimum er þessu á annan veg farið. Ef
nokkrar fígúrur eru seldar saman frá fyrirtæki eins
og Fisher-Price má næstum ganga að því vísu að
hver þeirra sé fulltrúi ákveðins þjóðarbrots eða
minnihlutahóps. Skólabíl í vörulínunni Little People
frá Fisher-Price fylgja fimm fígúrur. Bílstjórinn er af
spænskum ættum, annar strákurinn af afrískum
uppruna, önnur stelpan af asísku bergi brotin og svo
eru tvö hvít börn, en annað þeirra er í hjólastól.
Þannig er öllum haldið ánægðum í anda pólitískrar
rétthugsunar. Frá markaðslegum forsendum er
þetta einnig sniðugt. Fyrir foreldra af öðrum
kynþætti en þessum næpuhvíta, hlýtur valið á milli
leikfanga frá Fisher-Price og evrópsku
framleiðendunum að vera auðvelt.
Almennt má segja að hugmyndafræði leikheima
yngstu barnanna sé ásættanleg (út frá hefðbundn-
um vestrænum gildum, þótt vitanlega telji ekki allir
þau gildi ásættanleg) og reyndar er hún hreinasta
hátíð miðað við það sem eldri börnunum er boðið
upp á. Vert er að hafa í huga að yngstu börnin velja
sér sjaldnast leikföng sjálf. Því eldri sem börnin eru,
því meira hafa þau um það að segja hvaða leikföng
þau eignast. Nýbakaðir foreldrar eru vakandi yfir
uppeldislegum skyldum sínum og ætla má að þeir
velji leikföng á ábyrgan hátt. Hins vegar slaka þeir á
þegar barnið vex úr grasi. Framleiðendur virðast
höfða fremur til skynseminnar og viðurkenndra
uppeldislegra gilda þegar foreldrarnir einir sjá um
valið. Leikföng fyrir yngstu börnin svara því kröfum
um öryggi og eiga að efla þroska barnanna. Þegar
börnin eldast er frekar lögð áhersla á skemmti- og
afþreyingargildi leikfanga. Börnin sjálf kæra sig
kollótt um hvort leikföng séu þroskandi eða ekki.
Ofbeldisfullir hasarheimar
Eftir því sem börnin eldast verða leikheimar þeirra
margslungnari, en jafnframt heildstæðari. Þá eru
sérstakir stráka- og stelpuheimar áberandi. Heimur
Barbie er þekktasti stelpuheimurinn, en fyrir drengi
eru til ýktir hasarhetjuheimar. Þeir svæsnustu eru
oft á tíðum verulega ofbeldisfullir og vart við hæfi
barna. Með þeim skástu er karlmannleg hliðstæða
Barbie, Action-maðurinn.
Venjulega fylgir honum að
vísu vopnabúr en látið er
líta út fyrir að hann berjist
fyrir góðan málstað.
Helstu andstæðingar
Action-mannsins eru Dr. X
og Prófessor Gangrene.
Vondu karlarnir bera báðir
titla menntamanna og þó
að þeir líkist ekki hefðbundnum menntamönnum á
nokkurn hátt er verið að gera menntað fólk tor-
tryggilegt. Skilaboðin eru skýr; of mikil þekking er
hættuleg og óæskileg.
Miklu svæsnari karlar eru á markaðinum, fígúrur
sem eru ómennskar í útliti og eru jafnvel sjálfar
banvænt vopn. Sumar eru eitraðar eða með vopn í
stað útlima.
Óhugnaðurinn sem fylgir slíkum leikföngum er
öðru fremur byggður á samruna ólíkra tegunda,
einkum samruna manna og dýra, en einnig samruna
manna og véla. Vörulínan Beast Wars byggir á
(1) Hér eru vörulínurnar Duplo
frá LEGO og Playmobil 1.2.3
einkum til hliðsjónar. Á fyrstu
árum tíunda áratugarins var til í
Duplo askja sem innihélt
fjölskyldur af ýmsum kynþáttum,
en hún hvarf af markaði fyrir um
átta árum. Síðan þá hafa allar
Duplo-fígúrur verið ljósar á
hörund og það sama á við um
fígúrur fyrir yngstu börnin frá
Playmobil.
hetja
G8126 tmm mars 22x27 Q.4.1 3/30/01 11:54 PM Page 47