Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Blaðsíða 48
„körlum“ sem hægt er að breyta þannig að þeir beri
einkenni mismunandi dýrategunda. Á mínu heimili
er til eintak sem hefur mennska fætur, en efri hluta
búksins er hægt að breyta úr býflugu sem skýtur
örvum, í skrautlegan fisk með eiturgadda. Öllu
sakleysislegri voru Transformers-fígúrurnar sem
voru vinsælar fyrir 10–15 árum, en sú lína innihélt
vélmenni sem gátu breytt sér í ýmiss konar
farartæki.
Þá eru ýmis leikföng sem tengjast kvikmyndum
áberandi og eru Disney-leikföng þar fremst í flokki.
Þar er þó ekki verið að skapa nýjan leikheim, heldur
endurskapa heim kvikmyndanna. Því verður ekki
fjallað ýtarlega um þau hér. Rétt er þó að vekja
athygli á því að töluvert er til af leikföngum fyrir börn
frá fjögurra ára aldri sem tengjast kvikmyndum sem
Kvikmyndaeftirlit ríkisins telur ekki hæfa svo ungum
börnum.
Ævintýrin í Lególandi
Hið danska LEGO er eitt þeirra fyrirtækja sem hafa
boðið upp á tilbúna söguheima. Þessi heimur er
sýndur í vörulistum, tölvuleikjum, teiknimyndaserí-
um sem fylgja sumum leikföngunum og á vefsíðu
fyrirtækisins. (2) Síðustu ár hefur LEGO fyrirtækið
boðið upp á nokkra mismunandi heima í litlu
kubbalínunni sinni. Einn þeirra er nútímasamfélag,
en innan hans hafa fengist nokkrar mismunandi
vörulínur: Bæjarlíf, lestir, björgunarsveit, ofurhugar á
torfærutröllum, geimflaugar og það nýjasta;
norðurheimsskautsfarar og fótboltakarlar. Hinir
heimarnir eru „Rock Raiders“ (námuverkamenn á
framandi plánetu í leit að orkukristal), Star Wars og
miðaldaheimur. Á síðustu árum hafa einnig verið til
kúreka- og indjánaheimur, sjóræningjar, fornleifa-
fræðingar í Egyptalandi snemma á öldinni og
neðansjávarævintýri, þar sem tvö lið illskeyttra
framtíðarkafara takast á um gersemar á hafsbotni.
Hlutfall karl- og kvenpersóna í þessum heimum
er langt frá því að vera jafnt. Á móti hverri kven-
fígúru eru minnst fimmtán karlar. Sjóræningjarnir
eru allir karlkyns og sömuleiðis kúrekarnir, en konur
má finna í hópi indjánanna. Einn fornleifafræð-
inganna er kvenkyns, en hlutverk hennar er að taka
myndir af körlunum að störfum og átökum þeirra við
múmíurnar sem eiga það til að lifna við. Hún er því
ekki gerandi í ævintýrinu, heldur einungis óvirkur
áhorfandi. Geimnámuverkamennirnir eru allir meira
og minna skeggjaðir og
engin kona sjáanleg.
Ofurhugarnir eru allir karl-
kyns, sem og fótbolta-
karlarnir, en ein kona er á
áhorfendapöllunum. Björg-
unarsveitarguttarnir eru allir karlkyns, en í
vörulistanum frá 1998 eru þeir látnir bjarga nokkrum
konum, sem eru allar sýndar í láréttri stöðu, ýmist á
jörðinni eða í örmum karlanna.
Í eldri gerð af miðaldaheiminum var ógurleg norn
eina kvenpersónan og erkióvinur allra karlanna. Sá
heimur byggðist á göldrum og ævintýrum og er
athyglisvert að í þessum heimi var líka almáttugur
galdrakarl en hann var góður. Nú er komið nýtt
miðaldaævintýri, „Knights´ Kingdom“ sem er Hróa
hattar saga með öfugum formerkjum. Það byggist á
kastala, konungsfjölskyldu og karlkyns riddurum
sem heyja mikla varnarbaráttu gegn flokki illra
ræningja (allir að sjálfsögðu karlkyns) sem reyna að
komast í fjárhirslur konungs. Hefðbundin og nokkuð
rasísk litanotkun greinir milli góðs og ills í þessum
heimi. Hestar konungs eru allir hvítir og búningar
riddaranna í björtum litum. Hins vegar ber mest á
svarta litnum hjá ræningjunum; hestar þeirra eru allir
svartir, svo og herklæðin, auk þess sem svarti
liturinn er áberandi í andlitum þeirra. Þótt ræn-
ingjarnir séu eins gulir í framan og allir hinir LEGO -
karlarnir, sést minna í þá fyrir svörtu skeggi, miklum
hárlufsum og leppum fyrir augum.
Bæjarlífslínan samanstendur af slökkviliði,
lögreglu, bílum, lestum og bátum, bílaverkstæði og
byggingar- og vegavinnuflokkum. Sjálfsagt höfðar
Ein þeirra
vinnur á bílaverkstæði,
önnur er bátakona
og sú þriðja er
lögga. Hún er
að vísu ekki að
gera neitt
merkilegt, en
hún er
reglulega flott
í búningnum.
(2) Á síðasta áratug lagði
LEGO mikla fjármuni í hönnun
ólíkra vörulína. Síðastliðin ár
hefur fyrirtækið hins vegar
verið rekið með tapi. Því var
ákveðið að fækka vörulínum
og byggja þess í stað á
kvikmyndum, t.d. Star Wars
og Disney-fígúrum á borð við
Bangsímon og Mikka mús.
G8126 tmm mars 22x27 Q.4.1 3/30/01 11:54 PM Page 48