Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Qupperneq 52

Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Qupperneq 52
verkunum en hann birtist á ólíkan hátt. „Öndvegis- konurnar eru ofsalega aggressívt leikrit, mjög nær- göngult á óhugnanlegan máta,“ segir hún. „Það hreinlega slær mann utan undir. Píkusögur er allt öðruvísi. Það er miklu jákvæðara og léttara. Við höfum fengið margt fólk baksviðs til okkar eftir sýningu á Öndvegiskonunum sem veit hreinlega ekki hvað það á að segja. Leikhúsið hefur hreyft við því á einhvern hátt, það getur bara ekki skilgreint á hvaða hátt. Verkið tætir upp einhverjar tilfinningar og hugsanir, fólk situr úti í sal og uppgötvar að það er að hlæja að tabúum. Það er verið að vekja dýrið, – eða púkann, sem blundar í okkur. Það er kannski ekki svo djúpt á því hjá hinni siðmenntuðu manneskju. En ég held að um leið og við viðurkennum það hættulega í okkur sjálfum verðum við sterkari manneskjur“. Sigrún Edda segist hafa fengið handritið að Öndvegiskonunum í hendur dag einn þegar hún sat við morgunverðarborðið. „Ég hætti mjög fljótt að borða,“ segir hún „en ég gat ekki hætt að lesa. Þetta heltók mig algerlega. Sumir ná þessu ekki strax en það þarf að kafa ofan í verkið því það eru margir fletir á því. Maður þarf að hafa húmor fyrir veikleikum manneskjunnar. En það er líka rosalegur sársauki í verkinu.“ Margir hafa spurt hvað höfundurinn, Werner Schwab, sé að fara með Öndvegiskonunum. Sigrún Edda bendir á að hann sé sjálfur fæddur á botni samfélagsins og skrifi um fólk sem hann þekkir, mömmu sína og vinkonur hennar. „Hann veltir upp ýmsum flötum á mennskunni gagnvart hinu siðmenntaða samfélagi og þeim gildum sem við erum vön að miða við,“ segir hún. Sigrún Edda hefur ekki áður leikstýrt verki í Borgarleikhúsinu en kann skýringu á því hvers vegna henni var falin stjórnin á Píkusögum. „Ætli það sé ekki vegna þess að ég er svo mikill dóni,“ svarar hún glottandi. Hún segist hafa lýst áhuga á að spreyta sig í leikstjórn og leikhússtjórinn tekið hana á orðinu og boðið henni þetta verk. „Ég sagði strax já takk. Það er gaman að höfundum sem eru að taka á óvenjulegum viðfangsefnum“. Átti von á meira dónatali Upphaflega sýndi Eve Ensler, höfundur verksins, það sjálf en hér hefur því verið breytt úr einleik í sýningu sem fimm leikkonur koma að. Verkið er byggt á viðtölum við 200 konur og Sigrún Edda segir að það spanni reynslu kvenna, þar sé að finna allt frá einræðu gamallar konu sem hefur gaman af því að fara á hundasýningar en hefur aldrei verið með karlmanni og yfir í umfjöllun um nauðgunarbúðirnar í Bosníu. „Verkið er fullt af húmor en líka mikilli alvöru,“ segir hún. „Það byggist á skemmtilegum pælingum um sjálfsvitund kvenna, sérstaklega á kynferðislega sviðinu. Ég átti samt von á meira dónatali út frá nafninu! Hún skrifar þetta í fullri alvöru og gerir það eins skemmtilega og einlæglega og hægt er. Þetta byggist ekki á kaldhæðni eins og við erum vön að nota í sambandi við kynferðistal heldur miklu frekar hlýju. Þetta er ekki klám, langt því frá.“ Umræður um kynferðismál – eða öllu heldur vandamál hafa verið miklar á síðustu misserum. Sigrún Edda er á því að leikritið tengist vel umræðunum í samfélaginu. Hún bendir á að Eve Ensler hafi staðið fyrir svokölluðum „V-Day“ í Bandaríkjunum þar sem stórstjörnur á borð við Glenn Close og Susan Sarandon hafi lagt henni lið við að vinna á móti ofbeldi gegn konum. „Leikritið kemur til að mynda inn á kynlífsþrælkun í Evrópu,“ bætir hún við. „Eve Ensler talaði við vændiskonur þegar hún skrifaði það þótt það sé ekkert eintal sem tengist þeim beinlínis“. Sigrún Edda er fljót að samsinna því að verkið hafi pólitískan tilgang. „Vissulega hefur það tilgang fyrst það beinist gegn ofbeldi,“ segir hún. „Það er auðvitað líka pólitík fólgin í því að konur hafi sjálfsvirðingu og skynji sig sem kynverur án þess að skammast sín fyrir það. Kynferðismálin hafa verið tabú sem hafa staðið í vegi fyrir konum um allan heim“. Gamla matsalnum í Borgarleikhúsinu hefur verið breytt í leikhús þar sem fólk getur setið við borð og fengið sér kaffibolla eða vínglas. Leikstjórinn kallar þetta frásagnarleikhús og segist vilja skapa svolitla uppistandsstemningu. En heldur hann að verkið veki viðbrögð? „Ég er alveg sannfærð um það,“ svarar Sigrún Edda. „Ég held að fólk sé tilbúið að líta á leikrit sem uppsprettu umræðu. Annars væri ég ekki að þessu, þá væri leikhúsið ósköp máttlaust“. Ef þú getur ekki sagt það, þá áttu ekki að sjá það! Nafn verksins eitt og sér hefur nægt til að vekja viðbrögð. „Úti stuðar þetta sumt fólk svo mikið að þegar það er að panta miða biður það um two tickets for the monologues,“ segir Sigrún Edda. „Ein skvísa í miðasölunni svaraði alltaf: „If you can´t say it, you can´t see it“. Hún játar að það hafi verið mikill höfuðverkur að finna íslenskt nafn á verkið og ýmsar misgáfulegar hugmyndir komið fram, eins og tussutal, píkuskrækir og píkupískur svo eitthvað sé nefnt. Það var þó ekki erfitt að færa verkið í íslenskan búning, að sögn Sigrúnar Eddu, þar sem um sam- eiginlegan reynsluheim kvenna er að ræða. „Vangavelturnar eru mjög skemmtilegar,“ segir Sig- rún Edda. „Höfundurinn spurði konurnar til dæmis í hvað píkan þeirra myndi klæða sig og svörin eru mjög misjöfn, leðurjakka, silkisokka, langan bleikan fjaðrakraga. Hún spurði einnig hvað hún myndi segja ef hún gæti talað og fékk jafnfjölbreytt svör.“ Sigrún Edda játar því að íslensku leikkonurnar hafi ósjálfrátt velt þessu spurningum fyrir sér meðan æfingar stóðu yfir á leikritinu. „– Heldur betur,“ segir hún en lætur ekki leiða sig lengra. Hún segir að undirbúningur sýningarinnar hafi kallað á ýmsar vangaveltur og athuganir. Leikkonurnar hafi til dæmis fengið sent myndband frá Bandaríkjunum sem tekið var á kynlífsnámskeiði fyrir konur. Þar sitji þær allsberar í hring og ræði saman. „Þetta þótti okkur í fyrstu alveg ofboðslega fyndið en upp- götvuðum síðan að það var ýmislegt til í því sem þær voru að segja,“ segir Sigrún Edda en neitar því þó að þær hafi tekið mið af námskeiðinu við æfingar á leikritinu. „En við pældum mikið í kynferðislegri vitund og styrk kvenna,” segir hún, “og erum G8126 tmm mars 22x27 Q.4.1 3/30/01 11:54 PM Page 52
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.