Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Side 60

Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Side 60
sögu byggir mikið á því að sviðsetningar gangi upp og í litlum byggðarlögum eins og hér á landi viljum við helst láta þau hús vera til sem um er fjallað. Svo dæmi sé tekið þá gengur ekki upp fyrir íslenskan höfund að geta þess að afbrot sé framið í fjölbýlishúsi við götu þar sem eingöngu einbýlishús eru í raunveruleikanum eða að láta frásögn eiga sér stað á tilbúinni götu í miðbænum. Segja má að íslenskir lesendur hafi í huganum skýra mynd af þeirri götu sem nefnd er í sögunni og sú mynd sem höfundur dregur upp verður að passa við þá sem lesandinn hefur. Þarna hafa erlendir höfundar miklu frjálsari hendur því flestar sakamálasögur gerast að hluta í stórborgum þar sem íbúar þekkja aðeins takmarkað til einstakra hluta borganna. Uppbygging spennu Eitt helsta vandamál höfunda sem fjalla um afbrot er að byggja upp spennu um tildrög og atburðarás við brotið, því þetta verður alltaf í ákveðnu ósamræmi við raunveruleikann. Þannig vinnur lögregla í flestum tilvikum markvissa vettvangsvinnu þar sem grafist er fyrir um atburðarásina. Þessa atburðarás þarf yfirleitt að hafa umtalsvert hægari í frásögnum bóka, og reyndar einnig kvikmynda, svo að ráðrúm gefist til að byggja upp spennu. Á þessu sviði er einna helst hægt að setja fram ábendingar sem bætt geta þekkingu íslensku höfundanna, einkum um möguleika tækninnar og gildi hennar fyrir rannsóknir í heild sinni. Miklar framfarir hafa orðið á þessu sviði hjá lögreglunni og hefur miklum fjármunum verið varið til að tryggja meiri möguleika hennar. Staðreyndin er sú að einstaklingur getur ekki komið inn á ákveðinn vettvang, t.d. inn í íbúð, án þess að skilja eftir sig (eða taka með sér) ummerki sem hægt er að nota til að sanna veru hans á staðnum. Það er í raun einungis spurning um hversu mikill tæknibúnaður er til staðar og hversu mikil vinna er lögð í rannsóknina. Að mínu mati hefur Stellu Blómkvist tekist sérstaklega vel upp í þessum þætti. Uppbygging spennu í Morðinu í sjónvarpinu gengur að minnsta kosti mjög vel upp í raunveruleikanum. Íslenskt samfélag hefur breyst á þann hátt að það gefur nú rithöfundum sem skrifa um afbrot miklu meira svigrúm og því þurfa þeir ekki lengur að óttast með sama hætti og áður að sögur þeirra um alvarlegt afbrot á Íslandi verði ótrúverðugar. Ég tel ótvírætt að við eigum orðið nokkra mjög frambærilega spennusagnahöfunda sem gaman verður að lesa í framtíðinni. Karl Steinar Valsson er afbrotafræðingur og starfar sem aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík. G8126 tmm mars 22x27 Q.4.1 3/30/01 11:55 PM Page 60

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.