Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Blaðsíða 14

Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Blaðsíða 14
afl til að sjá það fyrir sér að landsmenn geti brátt lent í sömu stöðu aftur og það verði sögu- leg nauðsyn að ganga í ESB. Þá munu Íslend- ingar og Norðmenn líklega verða samskipa í sambandið, sem er vel við hæfi í ljósi sögunn- ar. Íslendingar á tuttugustu öld hafa að vísu haft annað augað á stórveldinu í vestri, Vínlandi hinu góða, sérstaklega í varnarmálum. En þeg- ar á skal herða tilheyra Íslendingar Evrópu, þó að þeir standi næst Ameríku af öllum Evrópu- þjóðum. Smáþjóðir hafa ekki efni á sömu dillum og draumum og stórþjóðir. Íslendingar vilja aðeins vera gjaldgengir í Evrópu. Þeir gera sér engar grillur um að afsal fullveldis hér heima fyrir muni færa þeim völd í málefnum álfunnar. Ef þeir sjá færi á að taka þátt í evrópsku samstarfi, fá aðgang að evrópskum stofnunum, án veru- legra fjárútláta en samt fá að ráða sjálfir sínum málum hér við ysta haf, þá munu þeir að öllum líkindum flagga fána Evrópusambandsins – jafn glaðir og þeir sóru Hákoni gamla hollustu forð- um. En ef fullveldisafsalið snýst um markverða hluti – og það sem meira er – ef landsmenn sjá sjálfa sig sem leiksopp miðstjórnar í Brussel gæti komið annað hljóð í strokkinn. Þrátt fyrir allt er mjög erfitt að sjá fyrir sér að landsmenn gefi frá sér það fullveldi sem þeir hafa notið í rúm 1100 sumur – jafnvel þó að þeim sé hleypt að evrópskum kjötkötlum. Spurningin snýst því í raun ekki um hvað Íslendingar vilja í Evrópu- málum heldur hvers sambandið krefst fyrir að- ild – sem liggur ekki ljóst fyrir – og getur reynd- ar tekið töluverðum breytingum á næstu árum með stækkun og ef til enn nánari samruna. Heimildaskrá Ásgeir Jónsson: Siglt gegn vindi, þjóðhagfræðileg greining á íslenska hagkerfinu 1400–1600. Fjár- málatíðindi, 2. hefti 1994. Diplomatarium Islandicum. Íslenskt fornbréfasafn I–X. Kaupmannahöfn og Reykjavík 1857–1949. Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland. Reykjavík 1987. Halldór Laxness: Heiman eg fór. Reykjavík, 1976. Jón Jóhannesson: Íslendinga saga I–II. Reykjavík 1956. Jón Gizurarson: Ritgjörð Jóns Gizurarsonar um siða- skipta tímana. Safn til sögu Íslands og íslenskra bókmennta I (Kh. 1856), 640–701. Sigurður Nordal: Íslenzk menning I. Reykjavík 1942. Snorri Sturluson: Ólafs saga helga. Reykjavík, 1893. Sturla Þórðarson: Íslendinga saga. Reykjavík 1974. Sturla Þórðarson: Hákonarsaga Hákonarsonar. Reykjavík 1977. Ásgeir Jónsson (f. 1970) er doktor í hagfræði. Hann starfar sem sérfræðingur á Hagfræðistofnun og kennir við Háskóla Íslands. Gissurarsáttmáli, sá sem samþykktur var á Alþingi 1262 Það var sammæli bænda fyrir norðan land og sunnan, 1. að þeir játuðu ævinlegan skatt herra Hákoni kon- ungi og Magnúsi konungi, land og þegna, með svörnum eiði, tuttugu álnir hver sá maður, sem þingfararkaupi á að gegna. Þetta fé skulu saman færa hreppstjórar og til skips og fá í hendur kon- ungs umboðsmanni og vera þá úr ábyrgð um það fé. 2. Hér í mót skal konungur láta oss ná friði og ís- lenskum lögum. 3. Skulu sex skip ganga af Noregi til Íslands tvö sum- ur hin næstu, en það í frá sem konungi og hinum bestu bændum landsins þykir hentast landinu. 4. Erfðir skulu upp gefast í Noregi fyrir íslenskum mönnum, hversu lengi sem þær hafa staðið, þeg- ar réttir arfar koma til eða umboðsmenn. 5. Landaurar skulu uppgefast. 6. Slíkan rétt skulu íslenskir menn hafa í Noregi sem þá, er þeir hafa bestan haft, og þér hafi sjálfur boð- ið á yðrum bréfum og að halda friði yfir oss, svo sem Guð gefur yður framast afl til. 7. Jarlinn viljum vér yfir oss hafa, meðan hann held- ur trúnað við yður, en frið við oss. 8. Skulum vér og vorir arfar halda allan trúnað við yður, meðan þér og yðrir arfar halda oss þess sátt- argjörð, en lausnir, ef hún rýfst, að bestu manna yfirsýn. Eiðurinn: Til þess legg ég hönd á helga bók, og því skýt ég til guðs, að ég sver Hákoni konungi og Magnúsi land og þegna og ævinlegan skatt með slíkri skipan sem nú erum vér ásáttir orðnir og máldagabréf þar um ger vottar. Guð sé mér svo hollur sem ég satt segi, gram- ur, ef ég lýg. Þessi samningur var síðan endurskrifaður og staðfest- ur með Gamla sáttmála (1302) þar sem ákvæðið um sex skip á ári var gert varanlegt, utanstefnur konungs á hendur íslenskum mönnum voru bannaðar og kveð- ið á um að embættismenn konungs hérlendis yrðu að vera af gömlu goðaættunum. (DI I, 619–625; DI IX, 1–3; DI X, 5–6) 09 ESB og gamli sáttmáli 17.10.2002 10:58 Page 14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.