Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Blaðsíða 60

Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Blaðsíða 60
faldlega að væntingar okkar liggi til grundvallar skynjuninni. En þetta sýnir einnig að sé spegli haldið upp að okkur, í formi viðbragða annarra eða kvikmyndar, þá sjáum við það sem við sjá- um, annað ekki; við gætum jafnvel ofmetið eða vanmetið það sem fyrir ber. Við sjáum e.t.v. það sem okkur er sýnt beint, en við sjáum okk- ur ekki sjálf sjá þetta. Í þessu samhengi eiga kvikmynd og veruleiki auðvelt með að renna saman. Veruleikinn virðist því vera fyrirfram ákvarðaður eins og kvikmynd; mannlífið sjálft endurspeglar kvikmyndina. En þá erum við komin í lokaðan hring. Ef mannlífið fer að end- urspegla kvikmyndina, þá er eftirmyndin (icon), eða ímyndin, farin að móta fyrirmyndina sjálfa: Eftirmyndin er orðin fyrirmyndinni raunveru- legri eða sterkari. Þetta sérkenni er svo sem ekki bundið við kvikmyndir, heldur á þetta við um svo margt annað sem hrint er af stað í speglasal mannlífsins. Rétt er því að hafa í huga þau atriði sem mynda uppistöðuna í þess- um áhrifamikla miðli eins og höfundinn, sjónar- hornið, miðilinn og boðskapinn, en þau sýna með skýrum hætti að kvikmyndin er búin til og framleidd undir vissum menningarlegum og sögulegum skilyrðum. Sveinn Einarsson leikhúsfræðingur hefur rit- að heilmikið um sögu íslenskrar leiklistar. Við skulum skoða eitt atriði sem hann nefnir og heimfæra það upp á kvikmyndina. Leiklistin á að vísu margt sameiginlegt með kvikmyndalist- inni, en munurinn er einnig firnamikill. Sveinn leiðir hugann að því sem hann segir leiklistar- fræðinga hafa sinnt æ meir, það er hinum fé- lagsfræðilega þætti leiklistarstarfs, viðbrögðum áhorfenda og öðrum viðtökum.12 Hér má út- leggja viðbrögð áhorfenda á grundvelli þeirra væntinga er ná að festast í sessi undir vissum félagslegum, menningarlegum og sögulegum skilyrðum. En Sveinn, eins og svo margir aðrir, dregur í efa beint samband fræða og kenninga við listina, og spyr: „En ljær listin fræðinni nokkurn tímann fangastað á sér?“13 Þannig hafa fræðimenn oft reynt að útskýra listina inn- an tiltekins fræðakerfis. Dæmi um þetta eru ummæli sálkönnuðarins Sigmunds Freuds þeg- ar hann talar um afstöðuleysi skáldanna: „Þau eru langt á undan venjulegu fólki í þekkingu á sálarlífinu, því að þau ausa úr lindum, sem vér höfum ekki enn opnað vísindunum. Aðeins ef þessi hlutdeild skáldanna væri ótvíræðari!“14 Víst er að fræðin einblína oft mjög afmarkað á listina. En Sveinn bendir á að samspil svo ótal margra þátta í sviðsleik geri hann að list; „tón- list og hrynjandi, samspil hreyfingar og fasts forms ramma leiksviðsbyggingarinnar, eða verks leikmyndahönnuðarins, litir, ljós, skugg- ar, táknleg skilaboð . . .“15 Sömu sögu má segja um kvikmyndalistina, hún er háð samspili ótal þátta tíðarandans. Hér má einnig minna á þann mun sem er á bók og kvikmynd,16 þrátt fyrir þá áráttu margra að bera sífellt saman bók og kvik- mynd. Bók byggist á orðum og setningum, en kvikmynd byggist á myndrænni framsetningu tákna, líkt og leikhúsið. Auk þess er tónlist sem merkingarauki, oftast stór þáttur í kvikmynd. Táknfræðingurinn Roland Barthes skrifaði heila bók um Ábyrgð listforma.17 Þar fjallar hann m.a. um kvikmyndaformið, sem er fólgið í boð- skap og er komið áleiðis með þáttum sem hann nefnir sendingu, rásir og móttöku. Barthes segir að sending og móttaka boðanna snerti svið félagsfræðinnar sérstaklega. Send- ingin felur í sér framleiðendur, kvikmyndagerð- armenn og leikendur, og móttakan felur í sér hinn almenna áhorfanda. Barthes mælist til þess að við athugum mismunandi samfélags- hópa í þessu tilliti með það í huga að skilgreina áhugasvið og viðhorf þeirra og hvernig lífsstíll þeirra tengist samfélaginu í heild.18 Þetta væri þá liður í því að átta sig betur á þeim gagn- kvæmu væntingum sem til staðar eru í sam- skiptum mismunandi samfélagshópa. Vísinda- heimspekingurinn Thomas S. Kuhn orðar þetta ágætlega í bók sinni Gerð vísindabyltinga,19 en þar segir hann að „vísindaþekking, líkt og tungumál, sé ófrávíkjanlega sameign tiltekins hóps manna; til þess að skilja þessa vísinda- þekkingu (eða tungumál) verðum við að þekkja til helstu einkenna hópsins sem skapar og not- ar hana.“20 Hæglega má heimfæra þessa af- stöðu yfir á kvikmyndaheiminn og áhorfendur. Við verðum að þekkja til einkenna og væntinga þeirra sem skapa og nota miðilinn ef við eigum að öðlast einhverja vitneskju um þýðingu kvik- mynda. Barthes segir að allar endurskapaðar líkingar veruleikans, eins og kvikmyndir og leikhús, hafi tvískipt boð: annars vegar grunnmerkingu, sem er líkingin sjálf, og hins vegar aukamerkingu, sem er sú hugmynd sem samfélagið hefur um líkinguna. Grunnmerking er þá fólgin í því sem er kvikmyndað/ljósmyndað, en aukamerking er fólgin í því hvernig það er kvikmyndað/ljós- myndað.21 Aukamerkingin er samkvæmt þess- um hugleiðingum fólgin í sjónarhorninu, en sjónarhornið er einmitt sá þáttur sem aðgreinir oft kvikmyndir og fellir þær undir sérstök teg- undarheiti. Tegundamörk og kvikmyndir Helstu einkenni kvikmynda eru gjarna tegundar- heitin (genre) sem þær hljóta, hvort heldur það er af hálfu áhorfenda, framleiðenda eða gagn- rýnenda. Áhorfendur eru oftast fljótir að stað- setja kvikmynd. Hún gæti t.d. verið „grínmynd“, „hasarmynd“, „hryllingsmynd“, „leynilögreglu- mynd“, „söngvamynd“, „spennumynd“, „tryll- ir“, „ævintýramynd“, „vegamynd“, „vestri“ eða eitthvað allt annað. Án vísbendinga um teg- und kvikmyndar væri hún sennilega líkust „landslagi án örnefna“ í huga áhorfenda (en höf- um hugfast að til eru nýlegar kvikmyndir sem gangast upp í því að líkjast „landslagi án örnefna“, og einnig að til er fólk sem kærir sig kollótt um „örnefni í landslagi“ kvikmynda). Þegar kvikmynd er framleidd er það æði oft und- ir formerkjum tegundar, en tegundarflokkun fel- ur alltaf í sér vissar væntingar og visst sjónar- 58 Um kvikmyndir 22.10.2002 10:13 Page 60
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.