Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Síða 22

Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Síða 22
Ísrael – Saga af manni Úr nýrri skáldsögu Stefán Máni Einu sinni, um sjöleytið á miðvikudagskvöldi, voru kokkarnir að rembast, hver á fætur öðrum, við að reyna að opna stóra glerkrukku með sól- þurrkuðum tómötum en gátu ekki bifað græna tinlokinu, hvernig sem þeir reyndu, hvort sem þeir voru rétthentir eða örvhentir eða notuðu tusku til að ná betra taki, og svo fór að lokum að yfirkokkurinn, sem var hár og grannur, ljós- hærður með arnarnef, köld augu og þunnar var- ir, náði í hníf og ætlaði að stinga honum undir lokið og juða honum þar til þess að hleypa lofti inn í krukkuna, en þá var mér nóg boðið, þurrk- aði mér um hendurnar, þreif af honum krukk- una, spurði hann hvort hann væri algjör kerling og opnaði síðan krukkuna með háum hvelli, fyr- ir framan undirmenn hans, einn þjón og tvær stúlkur, skellti henni síðan á borðið og sagði gjörðu svo vel, frú mín góð, og síðan þá var hann búinn að hafa horn í síðu mér og fann alltaf einhver skítverk handa mér í þau fáu skipti sem lítið eða ekkert var að gera, eins og að þrífa undir borðum og inni í hornum, tæma hillurnar og þurrka af þeim með blautri tusku og ausa heitri rauðvínssósu með langri ausu úr stórum potti yfir í fjöldann allan af sósukönnum þegar stórir hópar biðu eftir matnum sínum, hvort sem ég mátti vera að því eða ekki. Eitt mánudagskvöldið, laust eftir miðnættið, þegar ég var um það bil búinn að vaska upp og ganga frá og hann hefði fyrir löngu átt að vera farinn heim, bað hann mig um að koma aðeins með sér út í port, þar sem heilt bretti af frosn- um nautasteikum í þrjátíu punda, brúnum vax- pappírsöskjum stóð á planinu rétt fyrir framan daufbláu dyrnar, en í fjarska sá ég ómerktan, lít- inn flutningabíl með lyftu hverfa inn í nóttina. Rífðu öskjurnar utan af kjötinu og hentu þeim í ruslagáminn og komdu svo kjötinu fyrir í frystinum, sagði hann og rétti mér vinnuvett- linga og fór síðan aftur inn í ljósið og hlýjuna. Ég gerði eins og hann bað mig um, reif öskj- urnar utan af blokkunum og raðaði kjötinu, sem var í glærum plastpokum, í háa stafla fyrir inn- an dyrnar, henti brettinu síðan bak við gáminn sem var næst mér, vöðlaði umbúðunum sam- an og byrjaði að troða þeim ofan í yfirfulla gámana, tók síðan eftir því í miðjum klíðum að þær voru merktar á einhverju erlendu tungu- máli, líklega þýsku, og að síðasti söludagur hafði verið um miðjan september, eða fyrir þremur vikum síðan, og reif sýnishorn af einni öskjunni, braut það saman og stakk því í rassvasann áður en ég bar steikurnar inn í fryst- inn. Tveimur dögum síðar, um áttaleytið á rólegu miðvikudagskvöldi, þegar ég var búinn að standa sjötíu og tvær vaktir í röð vegna þess að enginn hafði verið ráðinn á móti mér, gægðust kokkarnir hver á eftir öðrum fram í salinn til þess að dást að barmmikilli ljósku í bláum, flegnum kjól, sem sat við borð þrjú með glæsi- legum og vel til höfðum manni á fertugsaldri. Svo liggur hún útglennt og emjandi undir þessum montrassi, bara vegna þess að hann er með milljón á mánuði, sagði yfirkokkurinn með fyrirlitningu. Ha? . . . með hverjum er hún? spurði annar neminn og reyndi að gægjast yfir öxlina á hon- um. Æ, hvað heitir hann þarna, ég man það ekki, . . . viðskiptafræðingur, . . . einn af bankastjór- um Þróunar- og viðskiptabankans, svaraði hann og gretti sig, . . . einn af þeim sem heldur að hann viti allt og geti allt af því að hann ólst upp í Arnarnesinu. Það er nú óþarfi að öfunda manninn svona, sagði ég þá og settist upp á borðið hjá upp- þvottavélinni og kveikti mér í sígarettu, . . . bara vegna þess að hann er betur menntaður en þú, betur klæddur og í betri vinnu, . . . og eflaust talsvert klárari í kollinum, hvar svo sem hann ólst upp. Hvað áttu við, drengandskoti? hvæsti hann og varð eldrauður í framan, en undirmenn hans virtust ekki trúa sínum eigin eyrum, göptu bara og litu til skiptis á okkur og hörfuðu nokkur skref afturábak, og þjónninn sem þá stundina hafði verið staddur í eldhúsinu lét sig hverfa fram í salinn. Þú heyrðir hvað ég sagði, sagði ég og lagði sígarettuna frá mér í öskubakkann ofan á þvottavélinni, . . . það er alveg merkilegt með ykkur iðnaðarmenn, þið lítið niður á okkur verkamennina, brjótið eins oft á réttindum okk- ar og þið getið og farið með okkur eins og til- raunarottur eða þriðjaheimsbörn, rétt eins og við séum úreltar vinnuvélar á síðasta snúningi, og öfundið á sama tíma alla þá sem komist hafa hærra í þjóðfélagsstiganum, sem eru bet- 22 Ísrael Stefán Máni 17.10.2002 11:02 Page 22

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.